Dagblaðið - 15.09.1981, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981.
12
di
iþróttir
iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþrót
■ -
UEFA-leikur Víkings og Bordeaux á fimmtudag:
Eitt sterkasta félagslið
sem hingað hefur komið
„Við munum spila til sigurs i heima-
lciknum gegn Bordeaux á fimmtudag.
Vallaraðslæður og islenzk veðrátta
gætu orðið okkur að góðu liði,” sagði
landsliðsmaðurinn úr Víkingi, Ómar
Torfason, á blaðamannafundi í gær en
eins og kunnugt er mæta Víkingar
franska liðinu Bordeaux í UEFA-bik-
arnum á Laugardalsvellinum nk.
fimmtudag kl. 17.30.
Vikingar eru nýorðnir íslandsmeist-
arar en þar með er ekki sagt að keppn-
istimabilinu sé lokið. Það sem eftir er
septembermánaðar leika þeir fimm
leiki gegn erlendum liðum. Gegn
Bordeaux á fimmtudag og daginn eftir
fljúga þeir til Sovétríkjanna þar sem
þeir leika 3 leiki gegn þarlendum 1.
deildarliðum, þar á meðal hinu kunna
liði Torpedo frá Moskvu.Leikið verður
á sunnudag, miðvikudag og laugardag-
inn 26. september. Mánudaginn 28.
ferður haldið til Frakklands og síðari
leikurinn við Bordeaux leikinn mið-
vikudaginn 30. september.
Víkingar hafa tekið þann kostinn að
gefa ekki út sérstaka leikskrá í sam-
bandi við leikinn á fimmtudag. í stað
þess hefja þeir í dag dreifingu auglýs-
ignablaðs sem fyrst og fremst er kynn-
ing á Víkingum. Verður blaðinu dreift í
Reykjavík og nágrannabyggðunum.
Ljóst er að Víkingar þurfa góða aðsókn
á heimaleikinn til að sleppa við tap á
þátttöku í Evrópukeppninni. Að sögn
forráðamanna knattspyrnudeildar fé-
lagsins eru 4—5000 áhorfendur algjört
lágmark.
Lið Bordeaux er væntanlegt hingað á
miðvikudag. í förinni verða um 70
áhangendur og að líkindum verður
leikurinn tekinn upp af frönskum
aðilum fyrir sjónvarpsstöð í Bordeaux.
Frakkarnir óskuðu eftir að fá að koma
með auglýsingar með sér til að setja
upp meðfram vellinum en um það
náðist ekki samkomulag. Vafasamt er
að slikt uppátæki hefði fallið í góðan
jarðveg hjjá UEFA sem gefur ekki einu
sinni leyfi fyrir auglýsingum á búning-
um í mótum á sínum vegum.
Við kynntum lið Bordeaux hér á síð-
unni sl. föstudag og er litlu að bæta við
þá kynningu. Þó hefur komið fram að
fyrir utan þá fimm leikmenn sem nú
eru í franska landsliðshópnum hafa
þeir Francois Bracci og Albert Gemm-
erich leikið með franska landsliðinu,
Alain Giresse, fyrirliði Bordeaux.
Hann hefur verið faslamaður i franska
landsliðinu að undanförnu. Mjög leik-
inn og skotfastur leikmaður sem örugg-
lega verður í sviðsljósinu á Laugardals-
vellinum á fimmtudaginn.
Gilles Eyquech, mjög efnilegur leik-
maður, með unglingalandsliði Frakka,
og Nordine Kourichi er landsliðsmaður
Alsír. Sem dæmi um styrkleika liðsins
má nefna að áðurnefndur Gemmerich
hefur ekki náð að vinna sér sæti í ellefu
manna hópnum í haust. Bordeaux er
nú í efsta sæti frönsku 1. deildarinnar,
hefur ekki tapað leik i fyrstu níu um-
ferðunum og náði jafntefli á Korsíku
gegn Bastia um helgina, 4—4, sem
þykir góður árangur því óvíða er eins
erfitt að leika og á Korsíku.
Ljóst er að Bordeaux er í hópi sterk-
ustu félagsliða sem dregizt hafa gegn ís-
lenzkum liðum í Evrópukeppnh Frakk-
ar eru þekktir fyrir léttan og skemmti-
legan sóknarleik og takist þeim vel upp
á Laugardalsvellinum á fimmtudag má
búast við knattspymu eins og hún ger-
ist bezt í Evrópu um þessar mundir.
Hinir nýbökuðu íslandsmeistarar Vík-
ings eru staðráðnir í að veita Frökkun-
um verðuga keppni, helzt að sigra þá,
og vonandi verða íslenzkir knatt-
spyrnuunnendur ekki vonsviknir er þeir
yfirgefa Laugardalsvöllinn eftir leik
Víkinga og Bordeaux.
-VS.
Evrópumeistaramótinu í Split lokið:
Austur-þýzku valkyrjurnar
hlutu öll gullverðlaunin
— Fjölmörg Evrópumet sett og landsmetin skiptu mörgum tugum
Auslur-þýzku sundkonurnar unnu
öll gullverðlaun á Evrópumótinu i
sundi í Split. Mótinu lauk á laugardag.
Ekki nóg með þaö, heldur hlutu þær
einnig níu silfurverðlaun af 14 mögu-
legum Ute Geweniger var stjarna móts-
ins. Hlaut fimm gullverðlaun. í karla-
greinum voru sovézku sundmennirnir
sigursælastir. Hlutu sjö gullverðlaun
og sjö silfurverðlaun. Fjölmörg
Evrópumet voru sett á mótinu og
landsmetin skiplu mörgum tugum.
Úrslitin á laugardag urðu þessi:
200 m baksund karla, úrslit.
1. Sandor Wladar, Ung. 2:00,80
2. Vladimir Shemetov, Sovét, 2:01,32
3. Frederic Delcourt, Frakk. 2:03,35
4. Frank Baltrusch, A-Þýzk. 2:04,22
5. Michael Söderlund, Svíþj. 2:04,67
Wladar setti nýtt Evrópumet.
1500 m skriðsund karla, úrslit
1. Vladimir Salnikov, Sovét, 15:09,17
2. Borut Oetric, Júgósl. 15:17,31
3. Rafael Escalas, Spáni 15:17,93
4. Alexander Chaev, Sovét, 15:19,35
5. Darjan Petric, Júgósl. 15:21,20
6. Rainer Henkel, V-Þýzk. 15:21,89
í 3. leikviku Getrauna kom fram
einn seðill með 12 réttum og var
vinningurinn fyrir röðina kr. 76.745.-
en þar sem hér var um 36 raða kerfis-
seöil að ræða, var hann einnig með 11
rétta í 6 röðum. Fyrir 11 rétta var
vinningsupphæöin á röð kr. 2055.00
þannig að hcildarvinningur fyrir þenn-
an seðil varð kr. 89.075.00 sem er næst-
hæsti vinningur fyrir einn og sama
Jón Páll Sigmarsson, KR, varð
Noröurlandameistari í 125 kg flokki í
kraftlyflingum á Noröurlandamótinu,
sem háð var í Stokkhólmi um helgina.
Lyfti samtals 890 kg sem er íslandsmet.
Skúli Óskarsson, UÍA, varð annar í 75
200 m skriðsund kvenna, úrslit.
1. Carmela Schmidt, A-Þýzk. 2:00,27
2. Birgit Meineke, A-Þýzk. 2:00,57
3. Conny van Bentum, Holl. 2:01,15
4. Tina Gustavsson, Svíþj. 2:03,34
5. Ina Bayermann, V-Þýzk. 2:03,36
6. June Croft, Bretlandi, 2:03,79
200 m baksund kvenna, úrslit.
1. Cornelia Polit, A-Þýzk. 2:12,55
2. Jolanda de Rover, Holl. 2:15,22
3. Larisa Gorchakova, Sovét, 2:16,10
4. Carmen Bunaciu, Rúmeníu, 2:16,24
5. Marion Aizpors, V-Þýzk. 2:16,82
4x 100 m fjórsund, karla, úrslit.
1. Sovétríkin 3:44,23
2. Svíþjóð 3:45,01
3. A-Þýzkaland 3:45,66
4. V-Þýzkaland 3:45,78
5. Spánn 3:53,02
6. Bretland 3:52,97
7. Frakkland 3:53,16
8. Sviss 3:54,67
Á föstudag urðu úrslit þessi:
200 m flugsund karla, úrslit.
1. Michael Gross, V-Þýzkal. 1:59,19
2. Philip Hubble, Bretl. 2:00,21
getraunaseðilinn en hæst var greitt í 28.
leikviku i vor kr. 94.890.00.
I samræmi við breytta reglugerð um
seðla, sem berast of seint, eru seðlar frá
fyrri vikum teknir gildir í þeirri leik-
viku, er þeir berast. Einn af seölunum
með 11 rétta var úr 2. leikviku, en náði
þá ekki að verða tekinn með í þeirri
viku, en nú fær eigandinn „sára-
bætur” upp á kr. 2.055.00.
kg flokki á mótinu. Lyfti 705 kg.
Hörður Magnússon varð fjórði í 100 kg
flokki með 775 kg. Kári Elísson, ÍBA,
fjórði i 67,5 kg flokki með 595 kg og
Guðmundur Eyjólfsson fjórði í 110 kg
flokki með 700 kg.
3. Sergei Fesenko, Sovét, 2:00,48
4. Paolo Revelli, Ítalíu, 2:00,87
5. Gerald Schlupp, V-Þýzk. 2:02,33
6. Stephen Poulter, Bretl. 2:02,71
Gross setti nýtt Evrópumet, Hubble
brezkt met.
200 m fjórsund karla, úrslit.
1. Alex Sidorenko, Sovét, 2:03,41
2. Giovanni Franceschi, ít. 2:04,97
3. Josef Hladky, Tékkósl. 2:06,16
4. Leszek Gorski, Pólland, 2:06,17
5. Lopez Zubero,, Spáni, 2:06,50
6. Sergei Fesenko, Sovét, 2:07,12
Sidorenko setti nýtt Evrópumet.
800 m skriðsund kvenna, úrslit.
1. ClaraSchmidt, A-Þýzk. 8:32,79
Sovétmaður
vann í
fluguvigt
Sovétmaðurinn Kanybek Osmon-
aliev sigraði i fluguvigt á heimsmeist-
aramótinu í lyftingum sem fram fór í
Lille í Frakklandi um helgina. Árangur
þriggja efstu manna varð sem hér segir:
1. Kanybek Osmonaliev,
Sovét 247,5 kg
(snörun 110 kg — jafnhöttun
137,5 kg)
2. Jacek Gutowski, Póllandi 240,0 kg
snörun 110 kg — jafnhöttun 130 kg)
3. Kazuto Manabe, Japan 240,0 kg
(snörun 107,5 kg — jafnhöttun
132,5 kg)___________VS.
Óánægðir með
ráðstöfun KSÍ
„Við erum mjög sárir vegna þeirrar
ráðstöfunar KSÍ að setja leikinn á
heimavöll Njarðvikinga,” sagði Aöal-
björn Björnsson, formaður Einherja.
„Leikurinn átti auðvitað að vera á
hlutlausum velli og það sýnir virðingar-
leysi forráðamanna KSÍ fyrir 3. deild-
inni, að þeir skuli ekki hafa rænu á því
að útvega hlutiausan völl i úrslitaleik-
inn.” Og í sama streng tóku nokkrir fé-
lagar hans, sem svo sannarlega hefðu
viljað spila við UMFN á jafnréttis-
grundvelli og töldu að þá væri ekki víst
um hvor hefði 3. deildarbikarinn nú í
höndunum. -emm.
...—■
Tæpar 90 þúsund í getraununum:
Annar hæsti vinn-
ingur frá upphafi
Jón Páll NM-meistari
2. Ines Diers, A-Þýzkal. 8:32,89
3. Jackie Willmott, Bretl. 8:37,22
4. Irina Laricheva, Sovét, 8:44,12
5. Van de Meer, Hollandi, 8:44,28
6. Irina Aksenova, Sovét, 8:50,69
Carla Schmidt setti nýtt Evrópumet,
Willmott brezkt met.
4x 100 m fjórsund kvenna, úrslit.
1. Austur-Þýzkaland 4:09,72
2. Sovétríkin 4:13,23
3. Vestur-Þýzkaland 4:13,42
4. Holland 4:14,12
5. Bretland 4:14,82
6. Ítalía 4:18,14
7. Svíþjóð 4:20,63
200 m fjórsund kvenna, úrslit.
1. Ute Geweniger, A-Þýzk. 2:12,64
2. Petra Schneider, A-Þýzk. 2:13,49
3. Olga Klevakina, Sovét, 2:19,10
4. Agni, Czopek, Póllandi, 2:19,43
5. Savi Scarponi, Ítalíu, 2:19,52
6. Grazyna Dziedzic, Póll. 2:19,73
7. Petra Zindler, V-Þýzk. 2:19,94
Czopek, Scarponi og Zindler settu
landsmet.
Vegna þrengsla í blaðinu í gær gátum
við ekki birt þcssi úrslit þá.
Vestur-
Þjóðverjar
sigruðu
Vestur-Þjóðverjar urðu Evrópu-
meistarar í sundknattleik í fyrsta skipti
um helgina er Evrópumeistaramótinu
lauk í Split í Júgósiaviu. V-Þjóðverj-
arnir komu mjög á óvart, unnu meðal
annars ólympíumeistara Sovétmanna
10—7. í síðasta leiknum sigruðu V-
Þjóðverjar Júgóslava 10—6 og tryggðu
sér þar með sigur í mótinu.
Lokastaðan í A-flokki varð þessi:
V-Þýzkaland
Sovétríkin
Ungverjaland
Júgóslavía
Spánn
Ítalía
Rúmenía
Holland
1 0 67-49 13
1 1 62-53 11
2 1 54-45
4 54-62
55-60
55-59
49-60
47-55
Tékkar urðu sigurvegarar í B-flokki
og Grikkir númer tvö. Svíar urðu
fimmtu, Danir sjöttu og Finnar höfn-
uðu í ellefta og siðasta sætinu i B-
flokki. -VS.
Ólafur Hannesson.
Árvíkingaí
deildunum
Ólafur Hannesson lögreglufulltrúi á Keflavíkur-
flugvelli og gamall Víkingur og næstum alvitur ■
knattspyrnusögunni, fylgdist með leik UMFN og
Einherja. Hafði sagt við DB fyrir þann leik að þetta
yrði ár allra Vikinga í knattspyrnunni á íslandi.
Njarð-VÍKINGAR, ynnu 3. deildina, Kefi-VÍKING-
AR, 2. deildina og VÍKINGARNIR í Reykjavík þá
fyrstu. Sannspár maður Ólafur Hannesson.
emm.
Lokastaðan
Í2. deild
—og markhæstu menn
2.og3. deildar
Úrslit i 18. og síðustu umferð 2. deildar um helg-
ina:
ÞrótturR.—Selfoss 5—1
Skallagrímur—Reynir 0—1
Völsungur—Þróttur N. 0—1
Haukar—Fylkir 0—4
Keflavík—ísafjörður 2—4
Lokastaðan i 2. deildinni varð þessi:
Keflavik 18 13 2 3 38—12 28
Ísafjörður 18 12 3 3 34—18 27
Þróttur R. 18 7 7 4 22- -13 21
Reynir S. 18 8 5 5 21- -16 21
Fylkir 18 8 3 7 22- -15 19
Völsungur 18 6 5 7 21- -22 17
Skallagrímur 18 5 5 8 20- -21 15
Þróttur N. 18 4 i 6 8 16- -23 14
Selfoss 18 3 3 12 10- -35 9
Haukar 18 2 5 11 18- -46 9
Markahæstu menn:
Óli Þór Magnússon, Keflavík
Olgeir Sigurðsson, Völsungi
Ómar Björnsson, Reyni
Steinar Jóhannsson, Keflavík
Ómar Egilsson, Fylki
Ragnar Margeirsson, Keflavík
Markahæstu menn 3. deildar:
Daníel Einarsson, Viði
Sæmundur Víglundsson, HV
Þórður Karlsson, Njarövík
Björn Rafnsson, Snæfelli
Elis Vigiundsson, HV
VIKINGUR
B0RDEAUX
eftir 2 daga
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981
íþróttir íþróttir Iþróttir
Trausti Haraldsson um samskipti sín við Reinke umboðsmann:
,.Það var leiðindamár
„Ég tel sjálfsagt að félögin, sem hlut
eiga að máli, sendi menn með leik-
mönnum sínum utan, iáti ekki aðeins
erlendan umboðsmann fjalla um mál
þeirra við erlend knattspyrnufélög á
byrjunarstigi samninga. Það var ekki
nógu sniðugt, þegar ég fór i tvígang
utan til Þýzkalands í fyrrahaust með
Willi Reinke sem umboðsmann. Það
var allt saman leiðindamál,” sagði
landsliðsbakvörðurinn kunni í Fram,
Trausti Haraldsson, þegar Dagblaðið
ræddi við hann i gær. Reynsla hans af
umboðsmanninum Reinke var engan
veginn nógu góð.
Willi Reinke hefur komið mjög við
sögu sem umboðsmaður íslenzkra
knattspyrnumanna i Vestur-Þýzka-
landi síðustu árin. Nýlega gerði hann
enn eina ferðina til íslands til að fylgjast
með leikmönnum og eftir þá för hans
eru miklar líkur á því, að þrír íslenzkir
leikmenn fari i haust, fyrstu dagana í
október, til æfinga með félögum í Vest-
ur-Þýzkalandi, Lárus Guðmurrdsson,
Víking, og Pétur Ormslev, Fram, til
Fortuna Dússeldorf og Sævar Jónsson,
Val, til Hannover. Umboðsmenn
knattspyrnumanna taka vissa áhættu,
þegar þeir senda leikmenn til félaga.
Verða að standa undir hluta af kostn-
aði. Ef leikmenn gera samninga er
ágóði þeirra mikill og löglegur sam-
kvæmt lögum FIFA — 10% af sölu-
verði og síðan ágóðahluti af kaupi leik-
mannsins. Willi Reinke hefur mörg
járn í eldinum sem umboðsmaður.
Hefur ekki aðeins komið til fslands í
leit að leikmönnum, heldur til fjöl-
margra landa, auk sambanda innan
Þýzkalands. Til slíks manns verður að
gera kröfur. Ekki aðeins leikmennirnir,
heldur líka félög þeirra og Knatt-
spyrnusamband íslands.
Kom Atla til Dortmund
Willi Reinke var umboðsmaður Atla
Eðvaldssonar, þegar hann gerði samn-
ing við Borussia Dortmund. Það leiddi
síðar til þess að Magnús Bergs gerðist
einnig leikmaður hjá Borussia. Þá kom
Reinke þeim Sigurði Grétarssyni,
Breiðabliki, og Ragnari Margeirssyni,
Keflavík, til 2. deildarliðs 1 V-Þýzka-
landi, Homburg. Ekki voru þeir samn-
ingar til fyrirmyndar. Ragnar og
Sigurður komu heim eftir leiktimabilið
og byrjuðu í sumar að leika með
Öster meistari
Öster varð sænskur meistari annað
árið í röð um helgina. Vann þá Klamar
2—0. Fjórar umferðir eru enn eftir í
keppninni.
Heimsmet
Á HM í lyftingum í Lille í Frakk-
landi í gær setti Beloslav Manolov, Búl-
garíu, nýtt heimsmet í fjaðurvigt (60
kg). Jafnhattaði 170 kj>. Eldra metið
átti Yarik Sarkisian, Itaiíu, 168 kg.
Manolov setti heimsmet samanlagt
302,5 kg. Viktor Marzin, Sovét, átti
eldra metið 297,5 kg. í snörun í fjaður-
vigtinni setti Daniel Nunez, Kúbu, nýtt
heimsmet 135 kg. Átti sjálfur gamla
metið, 134,5 kg.
íris kastaði
tvívegis
, lengraen
Islandsmetið
íris Grönfeldt, unga, borgfirzka
stúlkan, kastaði spjóti tvivegis lengra
en eldra íslandsmet hennar var á móti
hjá ÍR í gær. í fyrstu tilraun kastaði
hún 47,80 m en met hennar var 47,24
m. Þá gerði hún ógilt. Kastaði siðan
47,58 m, 47,18 og 45,81 m. Síðasta kast
ógilt.
Á sama móti kastaði Guðrún
Ingólfsdóttir, KR, kringlunni 50,40 m.
Erlendur Valdimarsson, ÍR, kastaði
kringlu 55,54 m. í fyrradag hljóp Rut
Ólafsdóttir, KR, 800 m á 2:14,0 mín.
Þriðji bezti tíminn í ár. Óskar Thorar-
ensen, KR, stökk 3,71 m i stangar-
stökki og tveir kornungir ÍR-ingar,
Hilmar Þórarinsson og Ragnar
Stefánsson, köstuðu spjóti 52,13 og
51,15 m. -hsim.
Breiðabliki og Keflavík á ný. Willi
Reinke er fljótur að setja sig í samband
við leikmenn ef búast má við miklu af
þeim. Hefur góð sambönd hér á landi
og DB skýrði frá því 6. ágúst sl. eftir að
Lárus Guðmundsson, miðherji Víkings
og landsliðsins, kom úr stuttri ferð til
Belgíu, þar sem hann æfði með félagi,
að Reinke hefði sett sig í samband við
Willi Reinke umboðsmaður.
DB-mynd Bjarnleifur.
hann. Þá var Sævar Jónsson um tíma í
V-Þýzkalandi í fyrra á vegum Hilberts,
fyrrum þjálfara Skagamanna.
Leiðindamál Trausta
I fyrrahaust fór Trausti Haraldsson,
Fran^til Berlínar á vegum Willi Reinke.
Var þar hjá þekktu liði, Hertha Berlín.
Ekkert varð af samningum. Annar leik-
maður kom inn í myndina hjá Berlinar-
liðinu. Willi Reinke hafði ekkert sam-
band við Trausta meðan hann var í
Berlín. Hertha Berlin greiddi fargjöld
hans frá íslandi og heim aftur og for-
ráðamenn liðsins sögðu Trausta að
hann mætti ekki fara heim til íslands
án þess að hafa samband við Reinke.
Hann hefði annað félag í takinu fyrir
hann. Trausta tókst hins vegar ekki að
hafa upp á Reinke, þrátt fyrir tilraunir
og símtöl við íslenzka leikmenn í
Þýzkalandi. Ekki fékk hann neina dag-
peninga frá Reinke eins og umboðs-
manni ber þó skylda til. Trausti hélt
heim til íslands við svo búið.
Eftir heimkomuna var nokkru síðar
hringt til hans frá Þýzkalandi. Skilaboð
frá Reinke að koma strax. Trausti
sagði viðmælanda sínum, að hann
kæmi ekki til Þýzkalands nema að
öruggt væri að hann fengi góðan samn-
ing og að Reinke yrði með honum i
Þýzkalandi. Því var lofað — allt væri
klappað og klárt.
Farseðlar voru til reiðu og Trausti
hélt til Frankfurt. Þar tók Willi Reinke
á móti honum á flugvellinum. Þeir óku
síðan til Stuttgart, þar sem Trausti átti
að vera hjá Stuttgart Kickers, sem leik-
ur í 2. deildinni. Reinke hélt síðan á
brott og Trausti sá hann ekki meir.
Frétti síðar að hann hefði farið til
Miinchen til samninga við Bayern
Múnchen vegna leikmanns. Ekki fékk
Trausti neina dagpeninga frá honum
frekar en fyrri daginn. Hann fór fyrst á
hótel í borginni en var peningalaus og
flutti þá til íslendinga, sem búa í Stutt-
gart. Þegar ekkert bólaði á Reinke hélt
Trausti aftur heim til íslands — án
samnings. Við heimkomuna sagði hann
meðal annars í viðtali við Tímann.
„Forráðamenn Stuttgart Kickers
gerðu sér ekki einu sinni svo lítið fyrir
að heilsa mér og ég sá þá aldrei þann
tíma, sem ég staldraði við hjá félaginu
. . . Það var ekki fyrr én ég var farinn
af hótelinu, sem ég bjó á, að þeir buðu
mér leigusamning, sem átti að gilda í
sex mánuði en ég hef engan áhuga á því
að rífa mig upp með alla fjölskylduna
fyrir svo stuttan tima.”
Þetta sagði Trausti. Þess má geta að
Trausti hafði nýtt sumarfrí sitt, þegar
að þessum Þýzkalandsreisum hans
kom. Hann greip þá til þess ráðs að fá
Trausti Haraldsson, Fram — og þess
má geta að hann leikur með Fram í
Evrópuleiknum á morgun.
frídaga hjá fyrirtæki því, sem hann
vinnur hjá, upp á sumarleyfisdaga sína
í ár. Hann hefur því ekki fengið dagsfrí
á þessu ári vegna þessara Þýzkalands-
ferða á vegum Reinke umboðsrnanns.
Trausti talar ekki þýzku og álti: tals-
verðum erfiðleikum í ferðurtim.
Þessi saga um samskipti Trausta
Haraldssonar og Reinke umboðsmanns
eru ekki til fyrirmyndar. Þeir leikmenn,
sem nú eru á förum, ef til vill til samn-
inga, og félög þeirra, ættu því að
athuga vel sinn rétt áður en haldið er til
Þýzkalands. -hsim.
EVROPUKEPPNIBIKARHAFA
1981-1982
FRAM - DUNDALK
Laugardalsvöllur
miðvikudaginn
16. september
kl. 17.30
FRAMBc.
SíGUfíS
PARIS
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899