Dagblaðið - 15.09.1981, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981.
GuOmundur Ketilsson lézt 21. ágúst
1981. Hann var fæddur að Sandprýði á
Stokkseyri 13. marz 1902. Hann ólst
upp að Kaðlastöðum á Stokkseyri.
Foreldrar hans voru Ketill Jónasson og
Hildur Vigfúsdóttir. Guðmundur
stundaði sjómennsku í nær 30 ár,
lengst af var hann vélstjóri á vélbátum
frá Vestmannaeyjum. Árið 1935
kvæntist hann Jónínu Helgadóttur frá
Dalbæ í Vestmannaeyjum. Heimili
þeirra var að Fífilgötu 2 þar í bæ. Þau
eignuðust þrjú börn, Helga, Þórhildi
og Viktoríu. Barnabörnin eru 10. í 18
ár vann Guðmundur við vélaviðgerðir
hjá Kaupfélagi Ánresinga á Selfossi.
Hann var jarðsunginn frá Selfosskirkju
31. ágúst.
Kristinn Péturssoi
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 16. september kl. 13.30.
Grétar H. Birgisson, Hátúni 10, lézt í
Landspítalanum 4. september. Hann
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 16. september kl.
10.30.
Ingileif Jakobsdóttir, Keldulandi 19,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 16. september kl.
13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkju-
garði.
Gunnar Austfjörð, pípulagningameist-
ari, Munkaþverárstræti 9 Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 17. september kl.
13.30.
Thomas R. Roberts, Kleppsvegi 2
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 17.
september kl. 13.30.
Jón Björnsson gullsmiður lézt i Landa-
kotsspítala 8. september. Minningar-
athöfn fer fram 17. september kl. 13.30
frá Kópavogskirkju. Jarðsett verður
frá Hafranesi við Reyðarfjörð 19.
september.
Helgi Björnsson, Skúlagötu 42
Reykjavik, lézt af slysförum 11.
september.
Ólafur Kjartansson, Borgarnesbraut 1
Borgarnesi, lézt 12. september í Land-
spítalanum.
MmsaU
Pétur Sumarliðason sem lézt 5. septem-
ber sl. var fæddur 24. júlí árið 1916 í
Bolungarvík. Ársgamall missti hann
móður sína og var eftir það í fóstri víðs
vegar um Vestfirði. Hann lauk
kennaraprófi frá Kennaraskólanum í
Reykjavík árið 1940 og kenndi eftir það
lengst af við Austurbæjarskólann í
Reykjavík. Síðustu árin starfaði hann
við bókasafn skólans. Pétur var kunn-
ur útvarpsmaður las mikið í útvarp,
bæði eftir sjálfan sig og aðra. Árið
1939 gekk hann að eiga eftirlifandi
konu sína, Guðrúnu Gísladóttur, og
eignuðust þau fimm börn. Pétur verður
jarðsettur í dag kl. 13.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Hulda Valdimarsdóttir White andaðist
á Landspítalanum 13. september.
Margrét Halldórsdóttir, Hnífsdal, and-
aðist á sjúkrahúsi ísafjarðar 13.
september.
Ragnar Olsen, fyrrverandi veghefils-
stjóri, Skipasundi 84 Reykjavik, and-
aðist í Borgarspítalanum 13. septem-
ber.
Rannveig E. Erlendsdóttir, Flókagötu
16, er látin.
Soffía Árnadóttir, Efri Hrísum Fróðár-
hreppi, lézt 13. september á heimili
dóttur sinnar.
Jónas Jónsson, Lækjarbug Blesugróf,
var jarðsunginn í morgun, 15. septem-
ber, frá Fossvogskirkju kl. 10.30.
80 ára er 1 dag Ingibjörg Margrét Guð-
mundsdóttir frá Gemlufalli 1 Dýrafirði,
nú að Sólbrekku 14 Húsavík. — Árið
1924 giftist hún Valgeiri Jónssyni frá
Höfðaströnd í Grunnavíkurhreppi.
Hann er nýlátinn. Eignuðust þau níu
börn semölleruálífi.
75 ára er I dag, 15. sept., Munda
Stefánsdóttir, Skarphéðinsgötu 2,
Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í
félagsheimili Sóknar, Freyjugötu 27,
eftir kl. 6 í dag.
Eins og gefur að skilja var íþrótta-
þátturinn í gærkvöldi að mestu helg-
aður nýbökuðum íslandsmeisturum
Víkings í knattspyrnu. Voru sýnd
atriði úr síðasta leik íslandsmótsins
milli KR og Víkings og afhending
verðlaunanna eftir leikinn. En stjórn-
andi þáttarins, Sverrir Friðþjófsson,
verður að taka sig á í lýsingum á
kappleikjum því lýsing hans á leik
KR og Víkings var vægast sagt mjög
dauf. Vonandi eru þetta byrjunar-
örðugleikar stjórnandans, en til þess
að halda áhofandanum við efnið
verður stjórnandinn alltaf að hafa
Aðalefni fþróttaþáttarins i gærkvöldi voru úrsiit íslandsmótsins f knattspyrnu.
Eins og sjá má á þessari mynd var sigurgleði Víkinga mikil. DB-mynd Bj.Bj.
orðin tilbúin á vörum sínum alla út-
sendinguna, svo ekki myndist langar
þagnir í útsendingunni eins og skeði i
gærkvöldi. Dæmi um íþróttafrétta-
ritara sem kann tökin á þessu er Her-
mann Gunnarsson á útvarpinu.
Aðalefni sjónvarpsins í gærkvöldi
var útfærsla brezka þjóðleikhússins á
gömlum farsa frá 17. öld. Klækja-
refur hét hann. Þrátt fyrir að úrvals-
leikarar, eins og Robert Stephens og
Dorothy Tutin meðal annarra, væru í
aðalhlutverkunum náði ég varla að
brosa þessa eina og hálfa klukku-
stund meðan leikritið stóð yfir.
-HK.
AA-samtökin
í dag þriðjudag veröa fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 12010), græna
húsið, kl. 14 og 21; Tjarnargata 3 (s. 91-16373),
rauða húsið, kl. 12 (samlokudeild) og 21; Neskirkja
kl. 21.
Akureyri, (s. 96-22373) Geislagata 39 kl. 21; ísa-
fjörður, Gúttó við Sólgötu kl. 20,30, Keflavjk (s. 92-
1800), Klapparstig 7 kl. 21, Keflavíkurflugvöllur kl.
11,30, Laugarvatn, Barnaskóli kl. 21, Ólafsvík,
Safnaöarheimili kl. 21, Siglufjörður, Suðurgata 10
kr. 21, Staðarfell Dalasýslu(s. 93-4290) kl. 19.
í hádeginu á morgun, miðvikudag, verða fundir sem
hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12020) kl. 12 og 14
Kvennadeild Barö-
strendingafélagsins
Vetrarstarfið hefst með fundi þriðjudaginn 15.
september kl. 20.30 í Bústöðum (Bústaðakirkja), en
þar verða fundirnir í vetur. Fundarefni: Basarinn o.
fl.
Gjafir sem borizt hafa
Sjálfsbjörgu
Eftirtaldar gjaflr hafa borizt Sjálfsbjörgu félagi
fatlaðra í Reykjavik og nágrenni, frá 1. 1. til 31. 8.
1981.
Kynningaklúbburinn Björk. kr. 350.00.- Hjúkrunar-
félag íslands — Reykjavíkurdeild kr. 1.000.00.-
Einar Kristinn Sveinbjörnsson, Kristín Gróa, Elin-
borg Sveinbjömsdætur og Bjargey Ólafsdóttir,
ágóði af hlutaveltu , kr. 100.00.- Bjarni Þorvaldsson
kr. 70.00.- J. C. Breiðholt, ágóði af sýningu fatlaðra
í Álftamýrarskóla kr. 693.00.- Guðný Matthíasd.,
Sólveig Daníelsdóttir og Maria Baldursdótir kr.
200.00,- Anna Soffla, Gunnar, Vigdis Hulda,
Bryndís, Bjarnd'is, Pétur og Sigríður úr Hafnarfiröi,
ágóði af hlutaveltu kr. 186.10.- Nokkur böm,
ágóði hlutaveltu kr. 66.00.- Guðrún Sveinsdóttir, kr.
100.00.- S. S. áheit kr. 100.00.- Björgvin Skúli,
Kiistinn, Bjarni og Stefán Þór, ágóði af hlutaveltu.
kr. 80.00,- Þórunn Jónsdóttir, kr. 200.00.- Hólm-
fríður Jóhannesdóttir, í tilefni af ári fatlaðra kr.
5.000.00.- Félag matreiðslumanna i tilefni af ári fatl-
aðra kr. 2.500.00.- Guðrún Magnúsdóttir kr.
100.00.- Þorsteinn Sigurðsson kr. 500.00.- Þor-
björg, Eyrún Þorgerður og Hákon kr. 286.00.-
Björg, Jóna og Harpa kr. 100.00.- Auður Björg og
Hanna B. kr. 65.00.- Elías Jóhann og Rúnar, Ólafs-
vik kr. 380.00.-, Davíð Arnar, Björn, Ásta, Dag-
björt íris og Hugrún, ágóði af hlutaveltu kr.
151.30. - L og S Voss kr. 250.00.- Frænkurnar
Jóna og Helga, ágóði af hlutavt.tu í Presthúsum,
Garði. kr. 215.00.- Óskar Björn, Trausti.Þórhallur,
Sigurjón, María Selma, Sigríður og Stefanía úr
Álfheimunum kr. 320.00.- Stúkan Þorfinnur karls
efni kr. 10.000.00.- Samtals kr. 23.012.40.
Einnig gaf Guðmundur Ármann Sigurjónsson list-
málari verk eftir sig, „Vor við Gáseyri”. Sjálfsbjörg
þakkar öllum þeim sem stutt hafa félagið á árinu.
Taflmót Taflfélags
Reykjavíkur
1. Unglingameistaramót íslands 1981 hefst
föstudag, 18. sept. kl. 20. Mótinu verður fram
haldið laugardag, 19. sept. kl. 13.00 og sunnudag,
20 . sept. kl. 13.00 og lýkur mánudag, 21. sept., kl.
18.30. Tefldar sjö umferðireftir Monradkerfi. Mótið
er ætlað skákmönnum 20 ára og yngri. 1. verðlaun
verða ferð á skákmót erlendis, auk bókaverðlauna
fyrir 2.-5. sæti.
Haustmót Taffélags Reykjavíkur 1981 hefur
sunnudag, 4. okt. kl. 14. Þátttakendum verður skipt
.í flokka með hliðsjón af Eló-skákstigum. Tefldar
verða 11. umferðir i öllum flokkum. í efri flokkun-
um verða 12 keppendur, sem tefla allir við alla, en í
neðsta flokki verður teflt eftir Monradkerfi.
Umferðir verða á sunnudögum kl. 14 og á mið-
vikudögum og föstudögum kl. 19.30. Biðskáka-
dagar verða ákveðnir síðar. Lokaskráning í aðal-
keppnina verður laugardag, 3. október kl. 14—18.
Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugardag,
10. okt. kl. 14. Tefldar níu umferðir eftir Monrad-
kerfí, umhugsunartími 40 mínútur á skák. Keppnin
tekur þrjá laugardaga þrjár umferðir í senn. Bóka-
verðlaun verða fyrir a.m.k. fimm efstu sæfi.
3. Októbér-hraðskákmótið verður þriðjudag,
20. október kl. 20.
4. Hraðskákmót T.R. 1981 — hausthraðskák-
mótið — fer fram sunnudag 1. nóvember og hefst kl.
14.
5. Nóvember-hraðskákmótið verður sunnudag, 8.
nóvember, kl. 20.
6. Bikarmót T.R. 1981 hefst sunnudag, 22.
nóvember kl. 14. Umhugsunartími 1/2 klst. á skák.
Keppendur falla úr eftir fimm töp Oafntefli = 1/2
tap). Teflt á sunnudögum og miðvikudögum.
7. Descmber-hraðskákmótið verður sunnudag, 13.
desember, kl. 20.
9. Jólahraðskákmót T.R. 1981 hefst mánudag, 28.
des., og er fram haldið þriðjudag, 29. des. Taflið
hefst kl. 20 báða dagana.
9. Skákkennsla og æfingar fyrir unglinga verða á
laugardögum kl. 14—18.
10 ,,15 mínútna mót”eru á þriðjudögum kl. 20 (sjö
umferðir Monrad).
11. „10 minútná mót” eru á fimmtudögum kl. 20
(sjö umferðir Monrad).
önnur skákmót á vegum T.R. verða auglýst síðar.
síðar.
5 hundrað krónu seðlar
töpuðust við Búnaðar-
bankann Aðalstræti
á mánudagsmorgup. Það er hópur aldaðra sem á
þessa peninga. Voru tveir gamlir menn sendir til að
ná í 500 krónur og misstu þeir hundrað krónu
seðlana í Búnaöarbankanum eða fyrir utan hann.
Ekki er auðvelt fyrir aldraða að afla sér fjár, er því
finnandi vinsamlega beðinn að hringja í síma 14688
eða hafa samband við afgreiðslu Dagblaðsins.
Kvennadeild flug-
björgunarsveitarinnar
heldur félagsfund 16. september kl. 20.30. Stjórnin.
Glímusamband
íslands
Ársþing GLÍ fer fram að Hótel Loftleiðum sunnu-
daginn 25. október og verður i Leifsbúð.
ÞJORJRINN FLUDI
0G FÓTBRAUT SIG
Tilraun var gerð til að þrjótast inn i
Iðunnarapótek um kl. sex í morgun.
Maður nokkur sparkaði þá í rúðu í
apótekinu og braut hana, en áður en
hann gat aðhafzt frekar varð hann að
leggja á flótta, þar sem lögregla hafði
séð til hans. Barst leikurinn nokkuð
víða en um síðir hafði lögreglan hendur
í hári mannsins. Lék grunur á að
þjófurinn hefði fótbrotið sig á flótt-
anum og var hann fluttur á slysadeild
strax eftir handtöku. -SA.
GENGIÐ
1 GENGISSKRÁIMING NR. 174 Ferflamanna
| - 15. SEPTEMBER 1981 KL. 09.15. gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 7.799 7.821 8.603
1 Sterlingspund 14.161 14.191 15.610
1 Kanadadollar 8.507 6.525 7.117
1 Dönsk króna 1.0540 1.0569 1.1626
1 Norsk króns 1.3097 1.3134 1.4447 '
1 Sœnsk króna 1:3816 1.3855 1.5241
1 Finnskt mark 1.7230- 1.7288 1.9017
1 Franskur franki 1.3797 1.3836 1.5220
1 Belg.franki 0.2023 0.2028 0.2231
1 Sviasn. franki 3.8898 3.9007 4.2908
1 Hollenzk florina 2.9939 3.0023 3.3025
1 V.-þýzkt mark 3.3098 3.3189 3.6508
1 ítölsk líra 0.00656 0.00658 0.00723
1 Austurr. Sch. 0.4712 0.4726 0.5199
1 Portug. Escudo 0.1185 0.1189 0.1308
1 Spánskur pesati 0.0810 0.0812 0.0893
1 Jopanskt yen 0.03433 0.03442 0.03786
1 írsktDund 12.071 12.105 13.315
SDR (sérstök dráttarréttindl) 01/09 8.9189 8.9439
Simsv&ri vegna gengisskráningar 22190.
* ■