Dagblaðið - 15.09.1981, Side 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981.
Utvarp
23
Sjónvarp
D
ÞJODSKORUNGAR 20STU ALDAR - sjónvarp kl. 20,45:
HEILL MEISTARANUM
— Franklin D. Roosvelt
Þjóðskörungur 20stu aldar verður að
þessu sinni Franklin D. Roosevelt
(1884—1945), fyrrum forseti Banda-
ríkjanna, sem var kjörinn í kreppunni.
Roosevelt var mikill framtaksmaður
og þá sérstaklega í utanríkismálum.
Samt var hann varkár og viðkvæmur
mjög gagnvart áliti fólksins. Að lokum
dró hann þó Bandaríkin inn í síðari
heimsstyrjöldina.
Þátturinn verður í tveimur hlutum og
er sá síðari á dagskrá þriðjudaginn 22.
september. Þýðandi og þulur er Þór-
hallur Guttormsson.
-LKM.
Fræðslumyndin 1 kvöld kennir ýmsar llfgunaraðferðir, s.s. hjartahnoð og blástursaðferð.
LAUSEMBÆTTI
sem forseti íslands veitir
Franklin D. Roosevelt var ófeiminn við að taka djarfar og mikilvægar ákvarðanir. Að
lokum tók hann þá ákvörðun að Bandaríkin skyldu taka þátt í heimsstyrjöldinni
sfðari.
LÍFGUN ÚR DAUÐADÁI—sjónvarp kl. 21,45:
Kenndar lífgunaraðferðir
í kvöld verður á skjánum sænsk
mynd sem sýnir og kennir nauðsynleg
viðbrögð þegar komið er að mönnum í'
dauðadái. Myndin kennir ýmsar lífgun-
araðferðir, s.s. hjartahnoð og blásturs-
aðferð.
Að sýningu lokinni verður efnt til
umræðna sérfróðra manna og verða þá
ýmsir bútar úr myndinni endursýndir
og rætt um þá. Þátttakendur verða dr.
Arni Kristinsson hjartasérfræðingur,
Gunnar Sigurðsson varaslökkviliðs-
stjóri og Thor B. Eggertsson frá Hjálp-
arsveit skáta. Umræðum stýrir Sighvat-
ur Blöndal blaðamaður. -LKM.
Prófessorsembætti í vefjafræði í læknadeild Háskóla Islands er laust til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf umsækjenda, rit-
smíðar og rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu fyrir 10. október nk. Menntamálaráðuneytið,
10. septamber 1981.
Viljum ráða
FYRIR AUSTAN FJALL - útvarp kl. 22,35:
1 eða 2 nema í húsgagnasmíði.
MAÐURINN OG UMHVERFIÐ
Uppl. ekki í síma.
Ingvar og Gyffi
Grensásvegi 3.
—Rætt um Náttúruvemdarsamtök Suðurlands
„Þessi þáttur fjallar eiginlega um
manninn og umhverfið,” sagði Gunnar
Kristjánsson kennari á Selfossi um
þáttinn Fyrir austan fjall. ,,Ég rakst á
það á dögunum að til er nokkuð sem
heitir Náttúruverndarsamtök Suður-
lands, en þau hafa haft mjög hljótt um
sig að undanförnu. En í sumar voru
kosnir nýir menn í stjórn og er ætlunin
að hrista af sér slenið og láta eitthvað
til sín taka.
Ég fór þá í Vík í Mýrdal og hitti þar
fyrir Gylfa Júlíusson, formann samtak-
anna, og Einar H. Einarsson sem er
búinn að vera varaformaður frá
stofnun þeirra fyrir átta árum. Einar
er einnig bóndi á Skammadalshóli.
Ég ræði við þá um starfsemi samtak-
anna, baráttumál og hvað er fram-
undan, einnig hvernig þeir hugsi sér að
láta meira til sin taka á þessu sviði, sem
virðist vera eindreginn vilji þessarar
nýkjörnu stjórnar. í þættinum kemur
ýmislegt fram sem lýsir tilgangi svona
samtaka. En þessi samtök eru byggð á
einstaklingsþátttöku og Náttúru-
verndarsamtök Suðurlands stefna nú
að þvi að auka félagatöluna. Það er
ýmislegt í bígerð hjá þeim og verður
haldin ráðstefna á Hvolsvelli í haust
þar sem á að leggja linurnar fyrir
framtíðina.
-LKM.
„í hverri sýslu eru náttúruverndarnefndir en þar er þó upplýsingaskortur sem oft
ræður rikjum. Menn vita ekki hvert þeir eiga að snúa sér i einstaka málefnum. Hér
eins og annars staðar er það fræöslan sem gildir,” segir Gunnar Kristjánsson kennari
á Selfossi sem hefur umsjón með þættinum Fyrir austan fjall.
Ódýrasta kennslan er sú sem sparar þér tíma
Frábærir kennarar sem æfa þig í TALMÁLI.
Kvöldnámskeið. — Síðdegisnámskeið. — Pitmans-
próf. Enskuskóli barnanna. — Skrifstofuþjálfunin.
Sími 10004 og 11109 (kl. 1-5 e.h.).
Málaskólinn Mímir, Brautarholti 4.
J.
Fundur verður haldinn með keppendum og þeim
sem hafa áhuga á að kynna sér nýja „SE”
Street Eliminator keppnisflokkinn, miðvikudag
kl. 21.30 í fundarsal Kvartmíluklúbbsins
Brautarholti 20. Vinsamlega mœtið og kynnist
keppnisfyrirkomulagi því sem notað verður 19.
sept.
Stjórnin.