Dagblaðið - 25.09.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 25.09.1981, Blaðsíða 14
22 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1981. Veðrið 1 Gert er ráð fyrir norðaustanátt og nœturfrostí á Suðvesturiandi. Við norður og austurströndina verður rigning annað slagið, annars úrkomu- Iftíð en skúrir á Suðuriandi. Kl. 6 voru f Reykjavfk sunnan 2, rigning og 4 stíg; Gufuskálar austan 3, skýjað og 4; Galtarvltí norðaustan 6, rígning og 6; Akureyri vestan 2, skýjað og 5 Raufarhöfn aust- norðaustan 5, rigning og súld og 6; Dalatangi austan 3, súld og 6; Höfn norðaustan 2, skýjað og 9; Störhöföi norðaustan 2, skýjað og 8. ( Kaupmannahöfn var þokumóða og 13 stíg, Osló rignlng og 14, Stokkhólmi þokumóða og 11, London þokumóða og 11, Hamborg þokumóða og 9, Parfs rigning og 14, Madríd skýjað og 14 og Lissabon þokumóða og 18. Andlát Guðrún Kristmundsdóttir, frá Kirkju- bóli, Skutulsfírði, til heimilis að Berg- staðastræti 17 B Reykjavík, lézt 20. september. Hún fæddist 28. apríl 1899. Guðrún vann um árabil í mjólkurbúð- um hjá Mjólkursamsölunni í Reykja- vik. Síðustu árin dvaldist hún á Elli- heimilinu Grund. Hún verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju í dag, 25. september, kl. 15.00. Steinunn Bjarnadóttir, Oddagötu 12, lézt á Hrafnistu 16. september. Hún fæddist 8. janúar 1910, dóttir Ingi- bjargar Guðmundsdóttur og Bjarna páissu.m.r ^ófasts i Steinnesi í Þingi, var Steinunn yngst ellefu sysuuiin. giftist doktor Símoni Jóh. Ágústssyni og tók að sér uppeldi sona hans af fyrra hjónabandi. Steinunn lauk prófi við Kvennaskólann i Reykjavík, einnig stundaði hún framhaldsnám í hús- stjórnarfræðum í Kaupmannahöfn. Steinunn verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í dag, 25., september, kl. 13.30. Guðfinna Þórarinsdóttir, Vesturgötu 32, andaðist að heimili sinu miðviku- daginn 23. september. Guðbjörg S. Guðmundsdóttir, Ásgarði, lézt á sjúkrahúsinu á Selfossi 22. september. Jóhanna Magnúsdóttir fyrrum lyfsali Iézt 23. september. ? —| Mfc" _________ 3: KVIKMYNDA- FILMAN' DAtf véia /> AmvndirnarA SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235. Stefania Brynjólfsdóttir frá Starmýri lézt í Landspítalanum 20. september. Hún fæddist 1. febrúar 1892. Foreldrar hennar voru Guðleif Guðmundsdóttir og Brynjólfur Jónsson. Stefanía var tekin í fóstur af Jóni Hall hreppstjóra og konu hans Oddnýju,, sem var móðursystir hennar. Stefanía giftist Þórarni Jónssyni 13. desember 1914, eignuðust þau 3 börn. Hún var jarð- sungin í morgun frá Fossvogskirkju kl. 10.30. Valdemar P. Einarsson loftskeyta- maður, Mjóuhlíð 12 Reykjavík, and- aðist í Borgarspítalanum 17. septem- ber. Hann fæddist 4. febrúar 1896 að Leiðarhöfn í Vopnafirði. Foreldrar hans voru hjónin Guðriður K. B. Andrésdóttir Nielsen og Einar Th. Bjarnason. Valdemar útskrifaðist loft- skeytamaður frá loftskeytaskóla í Kaupmannahöfn, síðan starfaði hann 25 ár hjá Eimskipafélagi íslands og önnur 25 ár hjá Landssima íslands. Eftir sjötugt vann hann í tíu ár við skrifstofustörf. Hann var kvæntur Jóhönnu Bjarnadóttur, áttu þau eina dóttur. Hann verður jarðsunginn í dag, 25. september, frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Eiríkur Magnússon, bókbindari, Laugavegi 43 B, lézt í Landspítalanum 23. sgptember. Jónasina Guðjónsdóttir, Bolungarvík, lézt 23. september. Ólafur Steinsson, Barkarstöðum, verður jarðsunginn frá Breiðaból- staðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn 26. september kl. 14.00. Gísli Sighvatsson, frá Sólbakka, Garði, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 26. september. AA-samtökin I dag, föstudag, veröa fundir á vegum AA- samtakanna scm hér segir: Tjarnargata 5 (91— 12010) græna húsið kl. 14 21 (opinn fjölskyldufundur) og lokaður uppi á sama tima. Tjarnargata 3 rauða húsið kl. 12 og 21. Hallgríms- kirkja, byrjendafundur kl. 18. Neskirkja 2. deild kl. 18, Neskirkja kl. 21 Akureyri (%-22373),Geislagata 39, kl. 12. Heliissandur, Heilishraut 18, kl. 21. Húsavik, Höfðabrekka 11, kl. 20.30. Neskaupstaður, hgilsbúð kl. 20 Selfoss (99-1787), Selfossvegi 9. Sporafund. kl. kl. 20. í hádeginu á morgun, laugardag, verða fundir sem hér segir: riarnaigati .* gi;«:na húsið kl. 14 og II Akurev-i. (i-.-islata’.a W kl. 11, Keflavík, Klapparstíg 7 k 111, Fáskniðsfjörður, félagsheimilið Skrúður VI. 11, Reyðarljörður, kaupfélagshúsinu, kl. 11, Selfoss, SelfoL^vegur 9, kl. 11. FÖSTUDAGUR KLÚBBUR NEFS: Þursaflokkurinn og Exodus. LAUGARDAGUR KLÚBBUR NEFS: Box frá Keflavík kynnir meðal annars lög af nýútkominni hljómplötu sinni. SUNNUDAGUR TÓNABÆR: Nýja kompaníið. Volvo lækkar um 7% Áhrif gengisfellingarinnar i Svíþjóð þann 14. september síðastliðinn eru nú orðin Ijós hvað varðar verðá Volvoárgerð 1982. w I GÆRKVÖLDI KARLMENN HÉR 0G ÞAR Nú er dillibossa-auglýsingin aðalhitamálið hjá þjóðinni — alltaf leggst okkur eitthvað til. Ég má til með að tjá mig um hana lika. í fyrsta lagi finnst mér að jafn- réttisráð ætti að fá prósentur af þeim afnotagjöldum sem innheimtast út á hana. Næsta ár finnst mér ætti syo að halda áfram á sömu braut. Þá gæti ég hugsað mér glæsilega konu í dragt frá Parísartískunni, í há- um stígvélum og með trefil, koma steðjandi á móti sjónvarpsáhorf- endum. Kringum hana færu á handahlaupum tveir karlmenn. Endilega ekki af þessari týpu, sem orðin er útjöskuð og lúð af áratuga skrifstofusetum og fyrirvinnu- skyldum. Nei, ég meina tvö svona lekker, helzt sólbrennd, karldýr í góðri þjálfun. Búningurinn þyrfti ekki endilega að vera aðskorinn og sýna allt, bara að hann væri smart. Glæsilegasti karlmannadans, sem ég hef séð lengi, voru kósakkar frá Grúsíu, sem dönsuðu á hnjánum í loftinu (í félagsheimili Seítjarnar- ness). Þeir voru klæddir í hermanna- búninga og algjörlega töfrandi. En talandi um jafnréttisráð, þá segja andstæðingar þess oft að marg- ar konur séu svo vondar. Og leikritið í gærkvöldi, Rugguhesturinn eftir Lawrence, fjallaði einmitt um eina slíka. Konu, sem alltaf var að kaupa sér eitthvað fínna og fínna og hugsaði þar af leiðandi aldrei um neitt nema peninga. Hún var samt svo elskuleg og blíð (leikin af Margréti Guðmundsdóttur) að litli sonurinn hennar elskaði hana ofar öllu. Honum tókst að útvega henni stórar fjárfúlgur með því að ná dulrænu sambandi við rugguhestinn sinn. Hesturinn hjálpaði honum að gizka á sigurvegara í kappreiðum og vinna þannig fé með veðmálum. En spennan sem fylgdi þessu gekk svo nærri heilsu barnsins, að það veslaðist upp og dó — í fangi móður sinnar. D.H. Lawrence hefur fengið allharða gagnrýni fyrir karlrembu (Lady Chatterley er yfirleitt meðvitundarlaus af aðdáun á skóg- arverðinum sínum, sem sperrir sig goðumlíkur í sjálfsánægju sinni) en það breytir því ekki að leikritið var bráðskemmtilegt og ég hafði mjög gaman af því. Mér fannst það líka hressilega þýtt (Eiður Guðnason). Enn merkilegra var að því var vel stjórnað og því miður er það sára- sjaldan sem maður getur sagt það nú orðið um úrvarpsleikrit. Það var Klemens Jónsson sem stóð fyrir því og nú skora ég á hann sem leiklistar- stjóra ríkisútvarpsins að sjá til þess að útsendingar leikritanna í vetur verði í sama gæðaflokki. Volvo 244DL lækkar úr kr. 133.508,- i kr. 124.569,- sem nemur 8,939,-, eða 6,1%. Volvo 244GL með yfirgír lækkar úr kr. 153.217,- í kr. 142.832,-, sem nemur kr. 10.385,-, eða 6,78%, í báðum tilvikum eru bílarnir með vökvastyri. Vörubifreiðar af gerðinni Volvo F-12 lækkar úr kr. 648.435,- i kr. 602.051,-eða um 7,15%, mismun- Umbúðasamkeppni Félags íslenzkra iðnrekenda Félag íslenzkra iðnrekenda gengst nú fyrir umbúða- samkeppni i sjötta sinn. Samkeppnin er fyrir allar gerðir umbúða, svo sem flutningsumbúðir, sýningarumbúðir og neytenda- umbúðir. Verða þær að vera hannaðar á íslandi og hafa komið á markað hér eða erlendis. Allir íslenzkir umbúðaframleiðendur og umbúðanotendur geta tekið þátt í samkeppninni, svo og aðrir þeir sem hafa með höndum gerð og hönnun umbúða. Einungis er leyfilegt að senda inn umbúðir sem komið hafa fram frá því að umbúðasamkeppnin fór síðast fram eða frá miðju ári 1977. Fimm aðilar skipa dómnefnd og eiga sæti í henni Brynjólfur Bjarnason, fulltrui Eélags ísl. iðnrek- enda, Þröstur Magnússon frá Félagi ísl. teiknara, Kristmann Magnússon frá Kaupmannasamtökum íslands, Ottó Ólafsson frá Myndlista- og handiða- skólanum og Gunnlaugur Pálsson frá Neytendasam- tökunum. Umbúðirnar, ásamt upplýsingum um nafn og heimilisfang þátttakenda, umbúðaframleiðanda, umbúðanotanda og þann sem hefur séð um hönnun umbúðanna, skal senda til Félags íslenzkra iðnrek- enda fyrir 9. október nk. Ritari nefndarinnar er Þórarinn Gunnarsson, skrifstofustjóri FÍI, og geta þátttakendur snúið sér til hans með allar fyrirspurnir í sima 27577. Vetrarstarf Bolvíkingafélagsins í Reykjavík hefst með því að Bolvíkingar koma saman til sameiginlegrar kaffldrykkju í Domus Medica sunnudaginn 27. september kl. 14.30. Bolvíkingar ungir sem aldnir hittast og ræða saman yfir rjúkandi kaffi og gómsætum kökum. Afnnæii 60 ára er í dag, 25. sept., Gunnar Magnússon sklpstjórl. Hann fæddist i Reykjavík 1921. Hóf hann sjómennsku 15 ára gamall og var á Kveldúlfstog- urunum fyrstu árin en síðan á flutningaskipum. Hann lauk far- mannaprófi við Stýrimannaskóla íslands 1946. Gunnar hefur verið skip- stjóri á íslenzkum flutningaskipum síðan 1950. Hann er einn af stofnendum Nesskips (1974). Hefur hann siglt sem skipstjóri á skipum félagsins frá þeim tíma. Gunnar er nú skipstjóri á stærsta skipi íslenzka floltans m/s „Akra- nesi”. Er afmælisbarnið statt i Brasilíu í dag með skip sitt. Eiginkona Gunnars er Kristin Valdimarsdóttir. Nýútskrifaðir kennarar og einsöngvarar. Fremri röö frá vinstri: Ásrún, Sigrún, Katrín, Garðar Cortes skólastjóri Söngskólans i Reykjavík, aftari röð: Dóra, Valgerður, Elísabet og Hrönn. Níunda starfsár Söngskólans í Reykjavík er nú að hefjast. Skólinn verður settur sunnudaginn 27. sept. kl. 17.00 i Tónleikasal skólans að Hverfis- götu 44. Um 100 nemendur stunda nám við skólann í vetur í almennri deild og einsöngs/kennaradeild. Þá eru einnig starfræktar Ljóðadeild og Óperudeild innan skólans. Allir nemendur skólans leggja stund á einsöng sem aðalnámsgrein, en aðrar kennslu- greinar eru t.d. píanóleikur, tónfræði, hljómfræði, tónlistarsaga, tónheyrnarþjálfun, nótnalestur, o.fl. Sl. vetur útskrifaði skólinn fyrstu nemendur úr einsöngs- og kennaradeild skólans, með Licentiate Diploma (L.R.S.M.) frá Royal Schools of Music í Englandi. Penelope Roskell pianólcikari Irá hddur tónleika í Borgarbíói á Akureyri laugardaginn 26. sept. ög hefjast tónleikamir kl. 17. Þeir sem luku þessum prófum voru: Ásrún Daviðsdóttir einsöngs- og kennarapróf, Dóra Reyn- dal, kennarapróf, Elísabet F. Eiriksdóttir, kennara- próf, Hrönn Hafliðadóttir, einsöngspróf, Katrín Sigurðardóttir, kennarapróf, Sigrún Andrésdóttir, kennaíápi”iif YalRerður J* Gunnarsdóttir, kenn- arapróf. GEIMGIÐ GENGISSKRÁNING NR. 178 ferðamanna — 25. september 1981 kl. 09.15. gjaldeyrir Einingkl. 12.00 kaup Sala Sala 1 Bandarikjadollar 7.756 7.777 8.554 1 Sterlingspund 13.889 13.929 15.321 1 Kanadadollar 6.482 6.500 7.150 1 Dönsk króna 1.0733 1.0763 1.1839 1 Norsk króna 1.3114 1.3151 1.4466 1 Sœnskkróna 1.3937 1.3976 1.5374 1 Rnnsktmark 1.7398 1.7447 1.9192 1 Franskur franki 1.4087 1.4127 1.5540 1 Belg.franki 0.2061 0.2066 0.2273 1 Svissn. franki 3.9506 3.9618 4.3580 1 Hollenzk florina 3.0269 3.0355 3.3391 1 V.-þýzktmark 3.3681 3.3776 3.7153 1 (töbklfra 0.00655 0.00667 0.00733 1 Austurr. Sch. 0.4793 0.4807 0.5287 1 Portug. Escudo 0.1196 0.1199 0.1318 1 Spánskurpesoti 0.0808 0.0811 0.0892 1 Japansktyen 0.03403 0.03412 0.03753 1 irsktound 12ÚI76 12.311 13.542 SDR (sérstök dréttarréttindi) 01/09 8.9164 8.9416 Sknavari vagna gengiaakráningar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.