Dagblaðið - 25.09.1981, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1981.
Útvarp
31
I
Sjónvarp
BROSTU, JENNY, ÞU ERT DAUÐ
—sjónvarp kl. 21,45:
Einkanjósn-
arinn Harry
Orwell
Þetta er fyrsti þátturinn í langri
seríu um einkanjósnarann Harry
Orwell, sem sýndur var fyrir
nokkrum árum í Bandaríkjunum við
miklar vinsældir. En ekki verður
nema þessi eini þáttur sýndur í
íslenzka sjónvarpinu.
Jenný sú, sem myndin heitir eftir,
er æðislega falleg fyrirsæta, en eins
og vitur maður mælti forðum: „Það
getur líka verið erfitt að vera mjög
fríður” — og Jenný getur sannarlega
skrifað undir það.
í upphafi myndarinnar er henni þó
ekki orðið ljóst, að hún á sér hættu-
legan aðdáanda, gcðklofa Ijósmynd-
ara að nafni Roy St. John. Hann býr
í íbúð sem liggur beint á móti íbúð
núverandi unnusta Jenný.jar, iiðs-
foringjans Lockports. Með
aðdráttarlinsu tekur hann myndir af
Jennýju, hvenær sem hún birtist á
svölum elskhuga síns. Hann stelur
öllu steini léttara, sem henni er á ein-
hvern hátt tengt. Og i sjúkum heila
hans eru að myndast ráðagerðir, sem
allar tengjast Jenný. Hann ímyndar
sér, meðal annars, að hann sé vernd-
ari hennar gegn öllu illu.
En í upphaft myndar veit Jenný
ekkert um þetta og hún hefur ekki
ennþá- kynnzt einkanjósnaranum
Harry Orwell. Njósnarinn veit ekki
heldur að hans verður bráðum þörf
til að hjálpa henni úr hættum. Hann
nýtur góða veðursins á ströndinni.
Að vísu finnur hann tólf ára telpu í
bátnum sínum sem er strokin áð
Einkanjósnarinn og Jenný hin fagra (David Jansen og Andrea Marcovicci) í þungum þönkum, því þegar hér er komið sögu
er búið að fremja dularfullt morð.
heiman og er treg til að snúa aftur, en
það er smámál fyrir þennan töffara.
David Jansen (sem nýlega lézt úr
krabbameini) leikur Harry Orwell,
Andrea Marcovicci Jenný hina fögru
og Jodie Foster litlu stúlkuna, sem
felur sig í báti njósnarans. En
Zalman King er Ijósmyndarinn
geðklofa. -IHH.
ÖRLAGABROT ARA ARNALDS
— útvarp íkvöld kl. 22,35:
ÆVISOGUBROT
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Saia — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — bimi 15480.
Skólavörðustíg 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
ÚR ÞORSKARRÐI
Ari Arnalds var frá Hjöllum í
Þorskafirði i Barðastrandarsýslu og
fæddist árið 1872. Hann tók lög-
fræðipróf og var lengst af bæjar-
fógeti á Seyðisfirði og sýslumaður
Norðmýlinga. Um aldamótin tók
hann nokkurn þátt í stjórnmálabar-
áttu og sat á þingi stuttan tíma. Hann
var þá samherji Bjarna frá Vogi og
Benedikts Sveinssonar.
Bókin Örlagabrot er eiginlega tvær
frásagnir og fjallar sú lengri um
Hjörleif nokkurn Hjörleifsson. Hann
er að vestan eins og Ari, og þeir eru á
svipuðu reki og ætla að fara saman í
skóla.
En svo fara leikar að Hjörleifur
hættir við að fara og verður kyrr í
sinni sveit. Segir Ari frá örlögum
hans og þess fólks, sem honum
tengist.
Einar Laxness sem flytur þennán
þátt eftir Ara segir að Hjörleifs-
nafnið muni vera dulnefni, en þáttur-
inn að öðru leyti sannsögulegur.
Einar hefur áður flutt minningar Ara
í útvarp. ,,Ég kynntist honum sem
barn. Hann kom oft að spila lomber
við afa minn og var vingjarnlegur og
geðþekkur öldungur.”
Einar segir ennfremur, að Ari hafi
ekki farið að rita bækur fyrr en hann
varkominnááttræðisaldur. -IHH.
m ■" >
Ari Arnalds hóf ekki að gefa út
bækur fyrr en hann var kominn fast
að áttræðu, en frásagnir hans þykja
skemmtilegar.
VERZLUNARHÚSNÆÐITIL SÖLU
í miðbæ Kópavogs. Frystir og kælar til staðar.
Uppl. í síma 86876.
Myndiistarsýning
félagsmanna í VR stendur yfir í
Listasafni Alþýöu
á horni Fellsmúla og Grensásvegar.
Sýningunni lýkur
4. október 1981.
Opiðfrákl. 14 til 22.
Allir velkomnir.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN
FELAGSFUNDUR
verður í Iðnó sunnudaginn 27. sept. kl. 2 e.h.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Kosning fulltrúa i 10. þing
V erkamannasambandsins.
3. Uppsögn kjarasamninga, Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ talar um þróun kaupmáttar og nýja
vísitölu.
4. Önnurmál.
Félagsmenn eru hvattir til að koma á fundinn og sýna
skírteini við inngöngu.
STJÚRNIN.