Dagblaðið - 25.09.1981, Page 24
Eyjamenn stórtækir ívideovæðingu:
Ætla að ieggja kapal
um allan kaupstaðinn
—geta þá valið úr 10 sjönvarpsdagskrám og eiga möguleika á móttöku
gervihnattasendinga með tilkomu aukabúnaðar
Fullvíst má telja að innan skamms
verði Vestmannaeyingar komnir með
10 rása kapalsjónvarp. Fyrir nokkru
var gengið frá kapallagningu í
svonefnt Dverghamarshverfi og nú er
fyrirhugað að videovæða allan
kaupstaðinn. Hafa Eyjamenn tekið
óumdeilanlega forystu í þessum
málum hér á landi.
„Ég hef kannað undirtektir fólks i
bænum um nokkurn tíma og ef fer
sem horfir tel ég yfirgnæfandi líkur á
að sjónvarpskapall verði lagður um
alla byggðina,” sagði Guðmundur
Þ.B. Ólafsson, bæjarráðsmaður, við
DB. „Borgarafundur verður haldinn
nk. þriðjudag og ég vonast fastlega
eftir að hugmyndir mínar og annarra
þeirra sem beitt hafa sér fyrir
þessum framkvæmdum verði
samþykktar.”
Það sém um ræðir er að skipta
byggðinni í Eyjum niður í 10 hverfi.
Myndi hver hluti starfa sjálfstætt
undir umsjón þriggja manna nefnd-
ar. öll kerfin væru síðan samtengd
þannig að íbúarnir gætu náð öllum
dagskránum. Þegar liggja fyrir
teikningar og kostnaðaráætlun.
Taldi Guðmundur að hámarks-
kostnaður yrði um 2000 krónur pr.
einbýlishús en mun minni fyrir
blokkaríbúðir. Auk möguleika á
snælduefni opnast möguleiki fyrir
FM-sendingar á útvarpi og einnig
þarf ekki mikið til að ná sendingum
frá t.d. gervihnetti BBC, sem sendur
verður á loft á næsta ári. Þurfa Eyja-
menn þá aðeins að festa kaup á
sterkum móttakara.
,,Ég tel að þessi aðferð — að láta
fbúana sjá um framkvæmdir í sínu
hverfi — komi mun sterkar út en að
Iáta t.d. bæjarfélagið vera að vasast í
þessu. Þá yrði eilífur slagur um hvar
ætti að hefja framkvæmdir, en með
þssu er það algerlega undir íbúunum
komið hvenær þeir fá kapalsjón-
arpið,” sagði Guðmundur.
„Hugmyndin um staðbundið
sjónvarp er gömul hér í Eyjum, kom
líklega fyrst upp fyrir einum 15—16
árum, en hún féll um reglugerðir um
sjónvarpsrekstur. Það er kominn
tími til að breyta þessum úreltu
lögum um útvarps- og sjónvarps-
rekstur, en það er nú eins og það er,
kerfið gefur sig aldrei fyrr en búið er
að hafa það að fífli. Sjónvarpið
stendur uppi varnarlaust fyrir kapal-
sjónvarpsmöguleikum.”
-SSv.
*
}■ W j
• ■
Þeir Magnús Úlafsson, til vinstri, og Siguröur Eyjólfsson voru í óða önn að flá dilka, þegar Dagblaðsmenn litu inn l sláturhúsi Kaupfélags lsfirðinga I gœr. Fyrir aftan þá
er Bjöm Jónsson. DB-mynd: Sigurður Þorri.
MANNEKLA VIÐ SLÁTRUN Á ÍSAFIRDI
Slátrun er nú hafin eða að hefjast
viðast hvar um landið. Féð hefur verið
rekið af fjalli og réttað.
í sláturhúsi kaupfélagsins á fsafirði,
þar sem myndin var tekin, hófst slátrun
sl. þriðjudag. Þar verður unnið sleitu-
laust fram undir lok október enda er
þess vænzt að yfir tíu þúsund fjár verði
slátrað þar.
í ísafirði er slátrað fé af öllum
bæjum við Djúp og einnig fé úr
Súgandafirði. Djúpbáturinn Fagranes
sér um að flytja fé frá þeim stöðum sem
flutningum af landi verður ekki við
komið.
Mikil mannekla er í sláturhúsinu á
ísafirði. Þar vantar tilfinnanlega fleira
fólk í vinnu. Þar starfa nú í kringum 25
manns en þyrftu helzt að vera yfir
þrjátíu. Mjög erfitt er að fá fólk frá
ísafirði í slátrunina, þar hafa flestir
yfirdrifið nóg að gera. Hafa skóla-
krakkar í bænum því hjálpað til og
fólk úr sveitunum við Djúpið. -KMU.
Dýrt að verzla í f ríhöf ninni á Kef lavíkurf lugvelli:
HÆGT AÐ GERA MUN BETRI
KAUP í ÖÐRUM FRÍHÖFNUM
,,Ég kann engar skýringar á þessu,
því áður fyrr var fríhöfnin í Keflavík
ein sú alódýrasta,” sagði Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða, um niðurstöður könnunar sem
skrifstofa Flugleiða í Frankfurt gerði
20. september á verðlagi í fjórum
fríhöfnum í Evrópu.
Borið var saman verð í Keflavík,
Amsterdam, Kaupmannahöfn og
Luxemborg og á áfengi, tóbaki,
myndavélum, sjónaukum og útvörp-
um. í ljós kom að nær allt áfengi var
dýrast í Keflavík, tóbak var á svipuðu
verði þar og annars staðar en hægt
var að gera góð kaup í sjónaukum í
Keflavik. Myndavélar voru heldur
dýrari í Keflavík en Amsterdam, og
sömuleiðis útvörp, en fríhafnirnar f
Luxemborg; og Kaupmannahöfn
voru ekki með útvörp, myndavélar
eða sjónauka til sölu.
-SA.
Níu árekstr-
ar á ellef u
minútum
Hvorki meira né minna en níu
árekstrar urðu á ellefu minútum
snemma í morgun á höfuðborgar-
svæðinu. Engin slys yurðu á fólki en
mikið eignatjón. Ekki kunni lögreglan
nokkra skýringu á þessum ósköpum,
engin hálka né slæmt veður. Kannski
menn séu syfjaðari er hausta tekur.
__________________-ELA.
Eldur f
geymslu
Kassa-
gerðarinnar
Slökkviliðinu var tilkynnt um eld i
Kassagerðinni við Kleppsveg um tvö-
leytið i gærdag. Reyndist þar hafa
komið upp eldur í geymslu í kjallara en
þar voru spænir geymdir. Eldurinn var
ekki mikill en töluverður reykur.
Skemmdir urðu ekki teljandi. Slökkvi-
lið hvarf af vettvangi eftir að hafa
slökkt eldinn en kallað var á það aftur
um fjögurleytið. Hafði þá glóð mynd-
azt í spónunum aftur. Var höfð vakt á
meðan spónageymslan var hreinsuð.
Aftur var kallað á slökkviliðið um
fimmleytið í nótt og þá á sporphaug-
ana. Var þar logandi i spónadrasli.
Ekki vissi slökkviliðið hvort héi hefði
verið um sömu spænina að ræða en
það þó talið trúlegt.
-ELA.
ÉJÍ
sz:
fl
VIN|NIN(jURJ
í VIKU HVERRI
Ö
Askrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo Ijónheppinn
að fá að svara spurningunum I
leiknum „DB-vinningur i viku
hverri”. Við auglýsum eftir
honum á smáauglýsingaslðum
blaðsins í dag.
Vinningur I þessari viku er
Crown-sett frá Radíóbúðinni,
Skipholti 19 Reykjavlk.
Fylgizt vel með, áskrifendur,
fyrir nœstu helgi verður einn ykkar
glœsilegu Crown-setti rlkari
c ískalt
Seven up
p
hressir betur.