Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Page 7
Ársrit Ræktunarfjelegs Norðurlands. Q
15. Vatnsveitingar með vjelum. Málaleitun kom fram frá
Olafi Sigurðssyni á Hellulandi, að honum væri veitt-
ur 100 kr styrkur til þess að gera tilraun með vatns-
lyftivjel til áveitu á engjar. Eftir nokkrar umræður
var samþykt að veita umsækjanda 100 kr. til þess að
fullkomna vataslyftívjel þá, er hann hefir í smíðum,
birti hann svo árangur af þeirri tilraun síðar.
ló. Umferðaplœgingar. Um það mál urðu alllangar umræð-
ur, en loks komu fram svohljóðandi tillögur:
»Fundurinn felur stjórninni að kaupa 4 plóghesta
næsta sumar, og ráða mann til að vinna með hest-
unum hjá fjelagsmönnum og sjá honum fyrir verk-
færum, fyrir sanngjarnt kaup, sem stjórn Ræktunar-
fjelagsins ákveður.«
Feld með 14:11 atkvæðum.
»Fundurinn telur æskilegt, að Ræktunarfjelagið út-
vegi þeim búnaðarfjelögum, sem þess óska, vel
hæfan mann til að framkvæma plægingar og jarða-
bætur að vorinu, og veita þeim aðstoð með lán á
verkfærum, ef sjerstök þörf krefur.«
Samþykt með 16 : 6 atkvæðum.
17. Breyting á starfsemi Ræktunarfjelagsins í þá átt, að
það taki að sjer leiðbeiningar í búpeningsrækt. I því
máli var samþykt svohljóðandi tillaga:
»Fundurinn sjer sjer ekki fært að ráða þessu máli
til lykta að þessu sinni, en felur stjórn fjelagsins
að athuga það og gera tillögur um það til næsta
aðalfundar.«
18. Pá var framhaldsumræða um fjárlög fjelagsins, og
samþykt svohljóðandi:
FJÁRHAQSÁÆTLUN
Ræktunarfjelags Norðurlands fyrir árið 1914.
Tekjur:
1. Afurðir tilraunastöðvarinnar . . . kr. 1700.00
Flyt . . . kr. 1700.00