Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Side 37
Ársrit Ræktunarfjelegs Norðurlands.
41
Samtals hafa 150 nemendur sótt námsskeiðin eða 15
á ári að meðaltali.
2. Ársritið.
Af því eru komnir 9 árgangar og að auki dálítill bækl-
ingur, sem kom út fyrsta árið um stofnun fjelagsins, eru
það samtals tæpar 52 arkir eða rúmar 5 arkir á ári að
meðaltali. í »Ársritinu« hefir verið skýrt frá starfsemi fje-
lagsins á ári hverju, þar hafa árlega verið birtar aðalfund-
argjörðir fjelagsins og reikningar. En auk þess hefir rit-
ið flutt margar fræðandi ritgerðir og skýrslur t. d. til-
raunaskýrslur. í þeim ætti að felast frumdrög íslenzkrar
jarðræktarfræði. Hjerumbil 5la eða um 500 blaðsíður af
ritinu hafa verið fræðandi ritgerðir og skýrslur. Ritjð hafa
fjelagsmenn fengið ókeypis.
3. Leiðbeiningaferðir
hafa verið farnar árlega um einhvern hluta fjelagssvæðis-
ins og nú síðustu árin um það alt, milli Hrútafjarðar og
Langaness, eftir að-sambandið komst á við hreppabúnað-
arfjelögin.
Á ferðum þessum hafa starfsmenn fjelagsins meðal
annars mælt fyrir vatnsveitingum á engi og framræslu,
leitað að sverði, valið garðstæði, mælt fyrir vatnsleiðslu
í bæi o. fl. Þá hafa þeir leiðbeint mönnum í garðrækt,
túnrækt og áburðarhirðingu, sagt fyrir um girðingar og
margt fleira. Erindi hafa þeir flutt hingað og þangað um
fjelagssvæðið á búnaðarfjelagafundum og endranær. Retta
alt hefir haft mikinn og góðan árangur og hefir vafalaust
enn rneiri árangur þegar fram líða stundir.
Víða eru nú komin grasgefin áveituengi, þar sem áður
voru harðir og graslitlir bakkar eða fúnir forarflóar.
Görðum hefir fjölgað þó hægt fari, eftir landshags-
skýrslunum að dæma, en betur má ef duga skal. Fjelag-
ið má ekki hætta fyr en garður er kominn upp á hverj-
um bæ. Vatnsleiðsla er nú víða komin í bæi, þar sem