Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Síða 62
66 Arsrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
vanalega með hvítum blómum. Jarðeplin eru hnöttótt
með djúpum augum, flestum í toppendunum. Pau eru
rauð að iit. Mjög eru þau bráðþroska, mjölefnisrík (10,8
°/o) og bragðgóð. — F*au vaxa bezt í sand- og leirblendn-
um jarðvegi. — Uppskeran er aldrei mikil, en jöfn. I
harðindaárum er hún tiltölulega mest í samanburði við
uppskeru af öðrum afbrigðum. — Jarðepli þessi hafa ver-
ið ræktuð á Akureyri um langan aldur, blönduð öðrum
jarðeplum. Eru þau að líkindum ensk að uppruna. —
Ræktunarfjelag Norðurlands Ijet velja nokkrar þroskamikl-
ar plöntur af jarðeplum þessum. Af þeim er þetta rauða
kyn runnið. — Meðaltal af 9 ára uppskeru er 9252 pd.,
þurefni 1542 pd., af dagsláttu.
Helguhvammsjarðepli. F*au eru rauð að lit eins og
Akureyrarjarðepli og líkjast þeim mjög. — Er að líkind-
um upphaflega sama kyn, en þau hafa orðið mismunandi
fyrir önnur skilyrði, þar sem önnur hafa lengi verið rækt-
uð vestur á Vatnsnesi, en hin á Akureyri. — Aðaleinkenn-
in eru hin sömu, en meðaluppskera nokkru meiri eða
9562 pd., þurefni 1542 pd., af dagsláttu. — Mjölefni hefir
reynst að vera 10,0 °/o.
Professor Mœrcker. Rætur og gras er þroska mikið.
Blómin hvít. Jarðeplin eru stór, hnöttótt eða flatvaxin með
mörgum djúpum augum. Spírurnar bláleitar. — Mjölefni
8,7 °/o. — Eru í meðallagi góð til matar. Jarðepli þessi
vaxa bezt í lausum jarðvegi, blönduðum af mold, sandi
og leir. — í votviðrum og hitum vaxa þau bezt. Pau þríf-
así betur, ef notaður er tilbúinn áburður ásamt búpenings-
áburði. í góðum árum og hentugu tíðarfari verður upp-
skera mjög mikil. Meðaltal hjá R. N. hefir verið 9080 pd.
og af þurefni 1427 pd. af dagsláttu. — Kyn þetta er upp-
runalega þýzkt, en fengið hingað frá Svíþjóð.
Bodö. Grasið er þroskamikið með hvítum blómum.
Renglur og rætur er mjög greint og jarðeplin fjöldamörg.
Pau eru aflöng, lítið eitt flatvaxin með hnúðlaga endum.
Augun eru lítil og fá. Pessi jarðepli þrífast bezt í laus-