Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Blaðsíða 89
94
Arsrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
Lýsing afbrigðanna.
Beauty of Hebron (Hebronskartöflur). Enskar að upp-
runa. Fengnar frá gróðrarstöðinni í Reykjavík. Hafa reynst
mjög vel. Talið bráðþroska kartöfluafbrigði erlendis. —
Rær eru bieikrauðar að lit; ungar kartöflur oft mikið Ijós-
ar, með rauðleitari augu. Skurðflöturinn gulhvítur. Nokk-
urnveginn hnöttóttar, en þó sumar lítið eitt aflangar.
Stofnholan djúp, augun meðaldjúp. Grasið fremur stór-
vaxið, blómin hvít. Kartöflur þessar eru vænar vexti og
hafa í 4 ár gefið mesta uppskeru allra afbrigða. Eftir
stærð hafa þær skifst þannig að tölu: Stórar ó.5%. Ut-
sæði 47.5 %. Smáar 46 %. Meðalkartöfluþyngd 26 gr.
Mjölvismagn 10.1%. Meðalkartöflur að þjettleik og bragð-
gæðum.
Mossros. Fengin frá Luleá, norðarlega í Svíþjóð. Hún
er rauð að lit. Skurðflöturinn hvítur. Stórvaxin, nær
hnöttótt, en þó lítið eitt flöt. Augun djúp og mörg.
Grasið er í meðallagi að vexti, blómin hvít. Fremur bráð-
þroska afbrigði og hefir gefið jafna og góða uppskeru.
Eftir tölu hefir hún skifst þannig: Stórar 11.9%. Útsæði
43.9°/o. Smátt 40.2%. Meðalkartöfluþyngd 34 gr. Mjölvis-
magn 8.9%. Reynist oft í lausara lagi, en sæmilega bragð-
góð.
Helguhvammskartöflur. Fengnar frá Helguhvammi í
Miðfirði 1904 og ræktaðar hjer síðan. Pær eru Ijósrauð-
ar að lit, skurðflöturinn hvítleitur, vottar oft fyrir rauð-
leitum hring. Lögunin regluleg, mikið til hnöttótt. Aug-
un meðaldjúp, fremur mörg. Grasið fremur þróttmikið,
blómin hvít. Kartöfluvöxturinn mikill og allbráðþroska,
en kartöflurnar fremur smávaxnar. Pær hafa skifst þann-
ig eftir tölu: Stórar 5.4%. Útsæði 45.8%. Smátt 48.8%.
Meðalkartöfluþyngd 20 gr. Mjölvismagn 10.6%. Sæmi-
lega góð kartafla að þjettleik og bragði.
Remarkable. Er ensk að uppruna. Fengin frá gróðrar-
stöðinni í Reykjavík 1909. Hefir reynst þar fremur vel,