Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Page 92
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands. 97
að stærð, fáar litlar. Skiftist þannig eftir stærð og tölu:
Stórar 8.4 %, útsæði 54.4 %, smátt 37.2 %. Meðalþyngd
25 gr. Mjölvismagn 10.6 %. Tæplega í meðallagi þjettar
kartöflur, en fremur bragðgóðar.
Early Puritan. Mun í fyrstu upprunnin frá Ameríku.
Fengin hingað frá Luleá í Norðurbotnum. Hún er nær
því hnöttótt og gulhvít á hýði og skurðflöt. Augun ekki
djúp og fremur fá. Mikið jöfn að vexti og hefir gefið
fremur góða og jafna uppskeru. Skiftist þannig eftir stærð
og tölu: Stórar 6.4%, útsæði 63.8%, smáar 29.8 %.
Meðalkartöfluþyngd 30 gr. Mjölvismagn 9.3 %. Mjög vel
þjett og bragðgóð kartafla.
Hraunakartöflur. Fengnar hjá Guðmundi Davíðssyni á
Hraunum í Fljótum. Fær eru óreglulegar að lögun en
nálgast þó mest hnattlagið. Hýðið er gulleitt og skurð-
flöturinn mjög gulleitur. Augun djúp og mörg. Gras-
vöxturinn fremitrrýr; blómin hvít. Hefir aldrei gefið mikla
uppskeru að þyngd, en margar kartöflur, fremur smáar.
Hefir verið hlutfallslega bezt, er vaxtartími hefir verið
stuttur. Pær skiftast þannig: Stórar 4.6%. Útsæði 38.6
%. Smátt 56.8 %. Meðalkartöfluþyngd 17 gr. Mjölvis-
magn 7.8 %. Kartöflurnar eru nokkurnveginn þjettar og
hinar bragðbeztu (sætastar) af öllum afbrigðunum.
General Cronje. Stórvaxin kartafla, dálítið aflöng, sljett
og flatvaxin. Hýðið hvítgult, gljáandi; skurðflöturinn hjer
um bil samlitur. Augun grunn og fá; renglurnar þrótt-
miklar og fara víða. Grasvöxtur í meðallagi; blómin blá.
Hefir gefið heldur góða uppskeru. Kartöflurnar fáar, en
mjög vænar. Stærðarhlutföll þannig: Stórar 10.2%. Út-
sæði 49.6 %. Smáar 40.2 %. Meðalkartöfluþyngd 29 gr.
Mjölvismagn 9.9%. Fremur [ojettar; mjölkendar og góð-
ar kartöflur til matar.
Júli. þýzkar að uppruna (Paulsen Nassengrund). Af-
langar, flatvaxnar kartöflur. Gulhvítar að lit, með enn
gulieitari skurðfleti. Augun mjög grunn og fá. Grasvöxt-
7