Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Blaðsíða 119
124
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
En sú þekking, sem aðeins virðist hafa sjergildi fyrir
einstaklinginn, getur oft haft víðtækari þyðingu og orð-
ið undirstaða almennrar þekkingar, sje henni safnað sam-
an og dregnar af henni hinar rjettu ályktanir.
F*að er sagt um oss íslendinga, að vjer sjeum námfúsir
og fræðiþjóð. Sjálfsagt mun það satt, að vjer lesum mik-
ið og vitum mikið, samanborið við aðrar þjóðir, sem
betri fræðsluskilyrði hafa. En fróðleiksfýsnin getur kom-
ið fram á ýmsum sviðum og í ýmsum myndum. Allur
fróðleikur hefir ekki jafnmikið menningar- og hagsmuna-
gildi. það skiftir því nokkru, í hverja átt fróðleiksþránni
og fræðslunni er stefnt. Það er ekki tilgangur minn að
fara að rita hjer um íslenzkar stefnur í þeim efnum, en
gott og ekki óþarft ritgerðarefni væri það fyrir þann,
sem með kynni að fara og leiðum að lýsa. Pað sem eg
vildi sjerstaklega minnast hjer á, er búnaðarþekkingin.
Ohætt má fullyrða, að hún hefir orðið útundan hjá okk-
ur, ekki sízt hin verklega. Hugur fjöldans hefir meira
lagst í aðrar stefnur. Að síðustu tímum hefir fremur lít-
ið verið ritað um búnað. Og það- sem ritað er, er óvíða
lesið. Landbúnaður hefir þó verið annar aðalatvinnuveg-
ur vor frá því fyrsta. — Vjer höfum verið og má jafnvel
telja oss enn, fremur veitandi en þiggjandi í einstökum
bókmentagreinum. í búnaðarlegu tilliti hefir fátt verið
lagt til málanna. Þar megum vjer flest þiggja. Oft líklega
meira en vjer höfum gott af. Vjer verðum að fara utan til
búnaðarnáms og fáum þannig útlenda búnaðarfræðslu.
Hún er vandmeðfarin, en þó má margt úr henni vel
reynast í höndum hagsýnna og glöggskygnra manna. í
búnaðarskólunum verður kenslan mikið að styðjast við
erlenda búnaðarreynslu. Annars er ekki kostur, meðan
bækur eru fáar og fræði vor svo skamt á veg komin.
Þó höfum vjer og verðum að hafa mikla sjerstöðu í
búnaðarháttum sökum efnahags almennings, náttúrufars
landsins og afstöðu þess í viðskiftaheiminum. F*ví síður
getum vjer verið svo mjög upp á aðra komnir í þessu