Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Blaðsíða 131
136 Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
eftir; má þá setja næstu viku fyrir neðan, meðan rúm
leyfir. Dálkarnir fyrir kaupgjaldið eru svo útfyltir og viku-
vinnu kostnaður reiknaður út. Er þá komið vikulegt
kostnaðaryfirlit yfir hvert verk fyrir sig. Mundi mörgum
góðum bónda þykja hin mesta skemtun að svo glöggu
yfirliti og naumlega vilja sleppa því aftur, er hann hefði
haft það um stund. Þetta form mætti einnig nota til
þess að draga saman úr töflu nr. 1, og væri þá dagarn-
ir notaðir fyrir vikur, en í stað mannanafna kæmi karlar,
konur, unglingar, eða eins margir flokkar og kaupgjald
væri margskonar. Hjer væri þá komið samandregið og
fyrirferðalítið 6 vikna kostnaðaryfirlit um hverja vinnu-
grein fyrir sig. Það er fyrirhafnarminna en hitt, og mundu
margir láta sjer það nægja.
Bændur hafa vanalega mörgu að sinna og getur þeim
því orðið óhægra að halda þessu í reglu af eigin ram-
leik. Par sem margt fólk er í heimili, er handhægt að
gera hverjum að skyldu að halda töflu yfir það, sem
hann vinnur á degi hverjum. Til þess má nota töfluform
nr. 1. Vinnutöflurnar eru svo afhentar bónda vikulega,
og er honum þá auðgert að draga þær saman. Pað starf
mætti eins fela öðrum manni, er bóndi trúir til þess, og
væri hann þá laus við alla fyrirhöfn. En eftirlit er nauð-
synlegt. Margir vinnumenn eru bændaefni og víða eru
bændasynir að vaxa upp. Hjer berst bændum í höndur
gagnlegur skóli fyrir þá og uppeldismeðal. Slíkar dag-
legar athuganir venja menn við reglusemi og beina hug
þeirra að búnaðinum. Hvorttveggja er þeim sjálfum fyr-
ir beztu og nútímanum nauðsynlegt.
Sýnishorni af þessum vinnuskýrslum er útbýtt gefins
frá fjelaginu til allra búnaðarfjelagsmanna, er það vilja
þiggja, °g á skrifstofu fjelagsins eru þær til sölu fyrir
mjög lágt verð. Svo enginn þarf að bera þann kostnað
fyrir brjósti.
d. Fóðureyðsla hinna einstöku búpeningstegunda kem-
ur í næstu dálkum á skýrslunni. Aðalatriðin hjer eru kýr