Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Page 141
146
Arsrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
lendi og flæðengi blautt og þurt. Sje gott gras, sljett og
mjúk rót, slæst engu ver en með Ijá. Á snöggvum,
störungsfitjum, með hnúskum og dældum, eins og víða
vill verða, slær hún lakara en Ijár, ekki þó svo illa, að
ekki megi vel við una fyrir þá, sem engjaráð hafa. Á
harðvelli, sem ekki er því grasgefnara, vill þjettasti þel-
inn verða eftir í rótinni. Á þurrum flæðengjum sló vjel-
in mjög vel; sje smágresi í rótinni, mun hún þó tæplega
eins heydrjúg og Ijár. Á blautum engjum er aftur á móti
ýmsum vandkvæðum bundið. Ilt að slá þar, sem hest-
arnir geta ekki gengið hiklaust. Sje leir í rótinni, vill hey-
ið atast út, og í mjög miklum mosa og vatni hættir til
að setjast í greiðuna. Mjög blaut engi verður því tæpast
gert ráð fyrir að slegin verði með sláttuvjel. Engu að
síður er reynsla sú, sem fengin er, betri en eg hafði bú-
ist við, og alt önnur en alment er álitið um sláttuvjelar
hjer norðanlands. þess mætti geta, að Eggert Davíðsson,
bóndi á Möðruvöllum, fjekk einnig sláttuvjel í sumar;
sló hann með henni míkið, bæði á túni og engi, og læt-
ur hið bezta yfir. Segir að sláttuvjelin hafi borgað míkið
í verði sínu í sumar. Að því scm mjer er kunnugt, hafa
8 sláttuvjelar verið starfandi á Norðurlandi í sumar. Pað
er nú fengin sú reynsla, að það er vafalaust, að á mörg-
um bæjum er mikið, bæði á túni og engi, sem má slá
með sláttuvjel. Og þar sem minna er með hanaaðgera,
geta tveir eða fleiri bændur átt hana í fjelagi. Fyrir einn
mann mun sláttuvjel tæplega kaupandi á minna land en
15 dagsláttur. Vjelin kostar nú hjer um bíl 240 kr. En
auk þess er mikið betra að hafa sjerstak brýnsluáhald,
sem kostar um 22 kr. Sje slegið hiklaust í 10 tíma, má
ætla henni 5 — 6 dagsláttur á túni og nokkru meira á
engi. Pægir hestar venjast vjelinni fljótt. Sumir hestar,
er reyndir voru í sumar, drógu strax fullum fetum. Ein-
stöku varð líka að sleppa sökum óþægðar, vegna þess
líka að menn voru eðlilega sárir á tímanum að nota
harm tíl tamninga. Um mennina er ekki svo mikið að