Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Blaðsíða 3

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Blaðsíða 3
við þaksléttuna, að bera þykkt lag af allskonar áburði undir þökurnar. Það sagði hann vera „yfrið gagnlegt“ og svo hefir það sannarlega reynzt í 100 ár, um það höfum við fulla vissu, allir sem ekki neita staðreyndum. Raunar er þak- sléttan löngu aflögð sem „jarðarbót“ hjá bændum, sú aðferð varð of seinvirk og dýr þegar vinnuafl tók að gerast dýrt, samanborið við það sem áður var, þegar lengstum var raun- verulegt atvinnuleysi í sveitum landsins, velflestum, lang- tímum saman. Þessarar ræktunaraðferðar virtist heldur ekki lengur þörf, er ný tækni kom til sögunnar. — Síðast sá ég ný- gerða þaksléttu 1949, á Kolfreyjustað við Fáskrúðsfjörð. Samt er þaksléttan enn eigi lögð fyrir róða með öllu, sem fljótt á litið gæti virzt með ólíkindum. Enn eru drjúgar spildur sléttaðar og þaktar túnþökum ár hvert. Túnþökur (grasþökur) eru orðnar verzlunarvara ekki ómerkileg. Bænd- ur í námunda höfuðborgarinnar, og í námunda við aðra malarbúa, selja svarðmoldina, svo sem sjá má merki allvíða. Það mun enn vera fátítt að borgarbúar í Reykjavík geri grasfleti við hús sín með þeim hætti að sá grasfræi. Enn er það svo, er eigendur húsa og garðlóða vilja geia grasfleti sér og öðrum til gleði og þrifnaðar, þá kaupa þeir þökur og þekja blettina. Þetta er ekkert gamaldags fyrirbæri, sérstakt hér á landi, þótt margir muni halda að svo sé, grasþökur eru notaðar til að gera grasfleti í görðum víða um lönd. En auð- vitað hafa menn hér flutt þessi vinnubrögð með sér úr strjál- býlinu í þéttbýlið, eða tekið þau eftir búandi bændum, er þannig unnu að jarðabótum. Og borgarbúum hefir orðið þetta að góðu, og það sem meira er, Reykvíkingar og margir aðrir kaupstaðabúar hafa í þessu sambandi gerzt snjallari og búfróðari túnræktarmenn heldur en allur þorri bænda, eins og nú fer fram, hjá þeim velflestum, þótt lýgilegt sé. Það mun sjaldgæft að þeir sem í hlut eiga verði sér ekki úti um búfjáráburð til að bera undir þökurnar. Það þykir sjálfsagt, er rótgróinn vani byggður á erfðatrú og öruggri reynslu. Því meiri mykja, eða annar lífrænn áburður, sem látinn er undir þökurnar, því betri verður grasflötin. Svo miklir bú- fræðingar eru Reykvíkingar allflestir, og þeim verður að trú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.