Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Side 27
og á að byggja. En leyfilegt er, að benda á eina veiln stóra,
í fræðslu og leiðbeiningakerfinu, og raunar rannsóknar-
kerfinu líka, á sviði jarðræktarinnar. Það er hinn áberandi
skortur á verklegri ræktunarkunnáttu, jafnvel sérstaklega
hjá þeim annars vel skólalærðu mönnum, sem fást við að
kenna bændaefnum og leiðbeina bændum og fræða þá. Verð-
ur þetta hvað bagalegast og blátt áfram hættulegt, þegar að
öðru leyti kemur til hin mesta vísindaþekking og vísindatök
á málunum.
Flestir eru þessir aðilar hálfgert handlama, hversu vel sem
þeir eru lærðir fræðilega og vísindalega, ef þá skortir að
mestu eða öllu verklega þekkingu og starfskunnáttu á því
sviði sem fræðastarfsemi þeirra beinist að. Þannig er t. d.
hætt við að jurtakynbótamenn, hversu lærðir sem þeir eru,
svo dæmi séu nefnd, eigi erfitt með að ná fullum árangri,
ef þeir hafa aldrei lært undirstöðuatriði jarðræktar, hvernig
vinna skal jörð og rækta svo vel fari, jarðveginn, sem jurt-
irnar eiga að vaxa í, og þannig mætti lengi telja.
Plægingakunnátta er lítil á landi hér, og nýtízku traktor-
plógar ætlaðir til að plægja akra og tún sjaldgæf verkfæri.
A árunum 1965—1969 voru fluttir inn 2452 hjólatraktorar
en ekki nema 65 traktorplógar. Af plógunum hefir senni-
lega eigi minna en helmingurinn verið brotplógar. Sést þá
hve tví- og þrískera túnplógar eru fátíðir. Það var ekki fyrr
en á árinu 1970, að annar bændaskólinn eignaðist slíkan
traktorplóg, hinn skólinn er enn plóglaus. Þess hefir sem sé
ekki þótti þörf að eiga plóg á búi, á bændaskólunum, þrátt
fyrir ríkidegan vélakost. Kristján Karlsson skólastjóri keypti
nýbrotsplóg og notaði á Hólum. Þegar Kristján hafði látið af
störfum á Hólum, var plógurinn seldur. — Þótti víst óþarf-
ur með öllu! — Skoðunin: „við höfum ekkert með plóg
að gera“, hefir verið furðu lífseig, jafnvel á ótrúlegustu
stöðum. Þetta segir meira um hversu mörgu er áfátt í ís-
lenzkri jarðrækt, þ. e. túnrækt, heldur en langar skýrslur.
Þeir fáu bændur sem ráðast í að kaupa sér nýtízku traktor-
plóga hafa orðið að treysta algerlega á eigin getu við að kom-
ast upp á að nota plógana, það er ekki í annað hús að venda.
29