Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Page 31
utan við aðalumræðuefni mitt að þessu sinni. Nú er allvíða
farið að byggja mykjuhús á þann hátt að allt lendir í vand-
ræðum. Byggingarlærðir menn, sem auðvitað ætla vel að
gera, láta bændur steypa mykjukjallara undir fjósum sínum,
dyralaus hús með ferálnar ljóragati hátt á vegg. Svo veit
bóndinn ekki sitt rjúkandi ráð, hvernig hann á að ná mykj-
unni út úr haughúsinu og tæma það. Hann hefir fregnir af
mykjudælum og mykjusniglum, en veit óljóst hvernig um
þarf að vera búið og að staðið, við að nota þau tæki. Oft er
ekkert fyrirhugað frá hendi byggingafræðingsins um þessa
hluti. Það gleymist blátt áfrarn, að þegar teiknað er og skipu-
lagt, á hvaða tækni er völ, og hvaða tækni hentar að nota,
við þessar og hinar aðstæður, við að koma mykjunni úr
haughúsi á völl.
Við heimsækjum bónda sem er nýbúinn að byggja hjarð-
fjós að nýjum háttum, með heilsteyptum kjallara og litlum
glugga hátt á þeim vegg sem nær að mestu úr jörðu, að því
er virðist án áætlunar og fyrirsagnar um mykjuna, hvernig
skuli að unnið við útkeyrslu hennar. Bóndinn keypti sér
dælu, sem honum var sögð mundi henta til að dæla mvkju.
Árangurinn varð algerlega neikvæður, enda var haughúsið
alls ekki þannig teiknað né byggt að hægt væri að dæla úr
Jrví. Þá keypti bóndinn mykjusnigil. Við þann búnað hefir
hann baslazt síðan. Hann nær miklu af mykjunni út ár
hvert, en getur aldrei tæmt haughúsið.
Við hittum bónda sem býr sem einyrki og einbúi. Hann
er svo vel settur, að hann kemur mykjunni í bæjarlækinn,
án verulegrar fyrirhafnar. Honum segist svo frá: Dag hvern,
haust og vor og vetrarlangt, á ég svo annríkt við gegningar
og fénaðarhirðingu, að ég hefi alls engan tíma til að koma
mykju á völl og fást við ávinnslu. Á sumrin er það að sjálf-
sögðu heyskapurinn. Ég kaupi því tilbúinn áburð á túnið
og læt mykjuna í lækinn. — Um þetta búskaparlag er ekkert
að segja. Það bjargast á meðan það gengur, en erfitt er að
hugsa sér slíkt sem varanlegan búskap, og á býlum bænda
yfirleitt.
Loks heimsækjum við bónda á myndarbýli í einni beztu
33
3