Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Síða 127
þannig að meðan ekki er búið að mæla og kortleggja túnið
er erfitt að heimfæra sýnið og niðurstöðu efnagreininganna
á réttan blett í túninu. Nauðsynlegt er, í náinni framtíð, að
mæla upp og kortleggja tún, ræktanlegt land og beitilönd,
þannig að hægt verði að gera áætlanir um nytjar einstakra
jarða og sveita. Koma þarf á heildarskipulagi og eftirliti
með kortlagningu túna, þar vinni ekki hver í sínu horni,
en því miður hafa orðið nokkur mistök í uppmælingu túna,
sem er afleiðing þess að engar kröfur eru gerðar til mæling-
armanna og af því að eftirlit með starfi þeirra hefur ekkert
verið. Landnám ríkisins, sem greitt hefur styrk út á mæld og
kortlögð tún, hefur ekki enn fengizt til að hafa á hendi
skipulag og eftirlit á uppmælingu túnanna. Vonandi stend-
ur þetta til bóta og einhver aðili fáist til eða verði skikkaður
til að skipuleggja og hafa eftirlit með uppmælingu og kort-
lagningu túna.
Niðurstöður jarðvegsefnagreininganna og ábendingar um
áburðarnotkun voru sendar til ráðunauta búnaðarsamband-
anna í apríllok og maíbyrjun. Voru þær heldur síðbúnar.
Nauðsynlegt er að niðurstöðurnar séu komnar til ráðunauta
uppúr miðjum apríl, þannig að þeir hafi nokkurn tíma til
að koma þeim til skila, en nauðsynlegt er að fara með niður-
stöðurnar heim til hvers bónda og gera fyrir hann áburðar-
áætlun eða að minnsta kosti að skýra út fyrir honum niður-
stöður efnagreininganna.
AÐRAR EFNAGREININGAR
Ýmis störf hefur Rannsóknarstofan verið beðin að inna af
hendi fyrir aðra aðila en bændur. Má þar til nefna efna-
greiningar á sjó úr Akureyrarpolli vegna mengunarrann-
sókna, sem fram fara á vegum Akureyrarbæjar. Rannsóknir
á byggingarefni fyrir ýmsa aðila, sem þó urðu minni en
áætlað hafði verið. Efnagreiningar voru einnig gerðar á
neyzluvatni héðan og þaðan, m. a. vatn austan af Héraði,
frá Lagarfossi. Reyndist það hið merkilegasta vatn. Stein-
130