Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 5

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 5
LANGTÍMAÁÆTLUN NORÐMANNA í LANDBÚNAÐARRANNSÓKNUM Hér hefði ekki verið eytt rúmi til að fjalla um þetta mál, ef ekki væri á öðrum grunni að byggja en persónulegu mati mínu. Nýlega kom út á vegum Tilraunráðs landbún- aðarins í Noregi (Norges landbruksvitenskaplige forsknings- rád, skammstafað NLVF) álitsgerð með heitinu Langtíma- áætlun í landbúnaðarrannsóknum (Langtidsplan for land- bruksforskning, Oslo, 1973). Það, sem eftir er af þessari grein, mun verða varið til að fjalla um þessa álitsgerð. Gerð- ur verður grófur almennur útdráttur úr henni með áherzlu á þau atriði, sem varða ísland sérstaklega og bætt inn ís- lenzkum dæmum. Álitsgerð þessi er um 100 blaðsíður og skiptist í 7 kafla. í fyrsta kafla er gerð grein fyrir verkinu. Þar kemur fram að þessi skýrsla er fjórða langtímaáætlunin, sem samin hefur verið, síðan ráðið var stofnað árið 1949. Bent er á, að lang- tímaáætlun sem þessi, þurfi að vera undir stöðugri gagnrýni og endurskoðun, og það eru einkum þrjár hliðar tilrauna- starfseminnar, sem athyglin beinist að. í fyrsta lagi skipulag rannsóknarstarfseminnar, sem að- lagast þarf tímum sem breytast, einkum þar sem rannsókna- verkefnin spanna samtímis óskyldar greinar og fleiri en eina stofnun. í öðru lagi er verkefni NLVF-langtímaáætlunarinnar að gera upp á milli og raða rannsóknum og verkefnum, eftir því hve landbúnaðurinn og þjóðfélagið hefur brýna þörf fyrir úrbætur áhverju sviði. í þriðja lagi er það markmið með langtímaáætluninni að marka almenna stefnu í þessunt efnum og í framhaldi af því að benda á viðfangsefni, sem ætla má, að vaxandi athygli beinist að í framtíðinni. Með því að deila rannsóknum niður í rannsóknarsvið, er stefnt að því að finna, hvaða vandamál kalla að í land- búnaði, sem rannsóknarstarfsemin verður að reyna að leysa. 7

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.