Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Blaðsíða 31
lands voru notaðar tcilur úr eftirtöldum ritum: Landhag-
skýrslum fyrir ísland, Hagskýrslum Islands, Búnaðarriti
og Hagtíðindum. Að auki voru svo fengnar tölur hjá Bún-
aðarfélagi íslands, Hagstofu íslands og Landnámi ríkisins,
einkum tölur, er varða hin síðari ár og enn eru ekki komn-
ar á prent. Tölur þær, er hér verða notaðar, varða heyfeng
og stærð ræktaðs lands. Notkun allra þessara talna var ýms-
um vandkvæðum bundin, og er í annari ritgerð (Bjarni E.
Guðleifsson, 1971) fjallað nánar um þann vanda. Hey-
fengurinn er ekki metinn með uppskeru túnanna í huga,
heldur er hér um að ræða mat á tiltæku fóðri fyrir búpen-
inginn komandi vetur. Þetta rýrir nokkuð gildi talnanna
til þeirrar kiinnunar, sem hér um ræðir, þar sem t. d. á
seinni árum hefur farið fram töluverður heyflutningur
til þeirra héraða, sem minnst hey höfðu. Var einungis unnt
að leiðrétta þetta nokkuð fyrir árið 1968 með aðstoð talna
úr Hagtíðindum (1969).
Tölur um túnastærð eru ekki síður vafasamar, einkum
vegna þess, að túnstærðin hefur ekki verið mæld kerfis-
bundið, heldur gengið út frá túnstærð eitthvert ár og
síðan hefur árlegri nýrækt verið bætt við. Urðu af þessu,
með tímanum, miklar skekkjur á túnastærð af ýmsum ástæð-
um, svo sem lýst er í Hagskýrslum 1961 — 1963. Hér hefur
stærð túna árin 1912, 1930 og 1968 verið lögð til grund-
vallar. Fram að 1912 eru notaðar túnastærðir, sem upp eru
gefnar í skýrslum, en sé nýrækt tímabilsins 1912—1930 lögð
saman, kemur í ljós, að samanlögð túnastærð yfir allt landið
árið 1930 verður 829 ha minni en mælingar sýna, og saman-
lögð nýrækt tímabilsins 1930—1968 veldur því, að túna-
stærðin yfir allt landið 1968 verður 17.414 ha of stór. Til
að finna túnastærð hvers einstaks árs, er nýræktin hvert ár
aukin hlutfallslega á árabilinu 1912—1930 og minnkuð á
sama hátt á árabilinu 1930—1968, þannig, að samanlögð
nýrækt falli saman við mælda eða áætlaða túnastærð árin
1930 og 1968. Með þessum leiðréttingum er þess vænzt, að
komizt verði sem næst rétti stærð túnanna.
Uppskera á ha er síðan reiknuð eftir þessum tölum um
3
33