Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Page 20
Af öðrum viltum dýrum, sem nytjuð eru hér á landi, má
nefna rjúpu, en miklar rannsóknir hafa farið fram á lifnað-
arháttum hennar. Auk þess eru margar fuglategundir nytj-
aðar, og ber þá einkum að geta æðarfuglsins, en honum
hefur fækkað ískyggilega á síðari árum.
Fiskirœkt.
Fiskirækt er mikið sinnt hér á landi og náðst hefur veru-
legur árangur í henni. Vegna þess, hve fiski fjölgar ört, ern
miklir möguleikar á að ná fljótvirknm árangri í kynbótum
hans.
Vötn, sem vel eru fallin til fiskiræktar, eru víða um land,
þannig að hér er nm efnilega búgrein að ræða, ekki sízt þar
sem fóðuröflun fyrir þennan fisk ætti að vera auðveld inn-
anlands.
Hagnýting úrgangsefna til fóður- og matvcelaframleiðslu.
Þessi grein á alllangt í land hér á landi, þar sem úrgangsefni
eru tiltölulega fá og landrými mikið. Erlendis er í þessum
efnum hugsað um nýtingu úrgangs frá trjákvoðuiðnaði og
olíuiðnaði auk úrgangs frá þéttbýli. Hér á landi má þó
nefna mun betri nýtingu á úrgangi frá sláturhúsum og fisk-
vinnslustöðvum til skepnufóðurs.
Fullvinnsla landbúnaðarafurða.
Innan þessa rannsóknasviðs er mikið verk að vinna, þótt
margt hafi verið vel gert. Kröfur um fullvinnslu afurða hafa
lengi verið uppi, en við ramman reip er að draga í markaðs-
málum erlendis.
A síðari árum hafa komið fram nýjar aðferðir við geymslu
matvæla, svo sem geislun, notkun örbylgja og frostþurrkun.
Breyting og þróun framleiðsluvara og sölustarfsemi.
Við framleiðslu landbúnaðarvara, sem og við aðra frarn-
leiðslu, hlýtur sífellt að vera tekið mið af óskum kaupenda.
Gott sölukerfi er bæði hagur framleiðenda og neytenda.
22