Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Page 47
JÓHANNES SIGVALDASON:
UM LÍFIÐ I JARÐVEGINUM
Nokkrar athuganir d dýralífi i reitum dburðartilrauna
i Tilraunastöðinni d Akureyri.
Sumarið 1969 fengu Náttúrugripasafnið á Akureyri og
Rannsóknarstofa Norðurlands styrk úr Vísindasjóði til
rannsókna á dýralífi í jarðvegi. Var það sumar unnið að
frumathugunum á því sviði, m. a. valdir og afmarkaðir reit-
ir á mismunandi gróðurlendi, sem áætlað var að taka sýni
úr, tæki útveguð eða smíðuð til rannsóknanna, og nokkur
sýni voru tekin bæði til þess að reyna aðferðir og einnig til
þess að gera frumkönnun á því hvað fyndist af dýrum í mold-
inni. Frá þessum byrjunarathugunum grejnir Helgi Hall-
grímsson safnvörður í ritgerð í Ársriti Ræktúnarfélags Norð-
urlands 66. árgangi, 2 hefti 1969. I inngangi þeirrar ritgerð-
ar segir Helgi: „.. . Flestir líta á jarðveginn sem dautt fyrir-
bæri og meðhöndla hann samkvæmt því. Menn vita að ræt-
ur plantnanna vaxa í moldinni og þar er að finna ánamaðka,
en lengra nær þekking almennings ekki. . .“ Það má segja
að hér sé nokkuð kröftuglega til orða tekið, en því miður
hefur Helgi þarna nokkuð til síns máls. Þekking okkar ís-
lendinga á náttúrunni nær alltof skammt. Hinn almenni
borgari þessa lands hefur því miður látið sig of litlu skipta
náttúru landsins. A allra síðustu árum hafa þó umræður um
náttúruvernd og mengun umhverfisins, sem víða um lönd
er komin á alvarlegt stig, opnað augu margra fyrir því, sem
í kringum okkur er. Enn sem komið er nær sá áhugi vart
51