Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Page 61

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Page 61
vorurn þarna (3. 7., 1968), og hafði þó rignt tveimur dög- um áður. Á Fonti má greina sundur ferns konar gróðurlendi. 1. SKORPUGRÓÐUR (MOSASKORPA) í þessu gróðurlendi ber mest á þéttum smávöxnum mosa, sem myndar þétta skorpu, en í skorpunni eru flatar lamba- grasþúftir (Silene acaulis), geldingahnappur (Armeria mar- itima), kattartunga (Plantago maritima) og heimskautsfrce- hyrna (Cerastium arcticum), og mynda þessar tegundir sums- staðar samfelldan gróður eða þófa, af svipaðri hæð og þykkt og mosinn. Á stöku stað er einnig mikið af grasvíði (Salix herbacea) í þessu gróðurlendi og annarsstaðar blettir af krækiberjalyngi (Empetrum). Kornsúra (Polygonum vivipar- um) er og á stöku stað. Þetta gróðurlendi er helzt norðaust- an megin, nálægt uppblástursrofinu. Það er áberandi hve allar háplöntutegundirnar í þessu gróðurlendi eru breið- blaða og þykkblaða, og mynda þétta þófa, af samanfléttuð- um, gömlum og nýjum blöðum. T. d. eru blöð kattartung- unnar allt að 0,7 sm á breidd, en sjaldan meira en 1—1,5 sm á lengd. Mosinn í þessu gróðurlendi virðist vera mest Sch- istidium apocarpum og Sch. maritimum, einnig nokkuð af Drepanocladus uncinatus, Rhacomitrium canescens (grá- mosi), og Ulota phyllantha. 2. GRASLENDI EÐA VALLLENDI Hér eru grastegundir ríkjandi, og mynda þéttan þófakennd- an gróður, svo að aðrar tegundir eiga þar erfitt uppdráttar. Jafnvel mosinn víkur fyrir grasinu. Helzt eru það geldinga- hnappur, kattartunga og kornsúra, sem á stöku stað tekst að smeygja sér inn á milli. Grösin voru ekki blómguð þegar við vorum þarna, og því erfitt að greina í þeiin tegundir, en þó þóttumst við þekkja þar fjallasveifgras (Poa alpina) 5 65

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.