Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Page 77

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Page 77
fræði, að halda því fram að svo verði að öðru jöfnu, þótt ég verði á þessu stigi málsins að grípa til þess óvísindalega ráðs að höfða til brjóstvitsins. FÓÐRUN KÚA í GELDSTÖÐU Nýlega birtist grein eftir ungan búvísindamann, Jón Viðar Jónmundsson, í Búnaðarblaðinu (2. tbl., 1973) um fóðrun hámjólka kúa. Um þá grein er fátt annað en gott að segja, þótt frágangur mynda hefði mátt vera betri ásamt nokkuð nánari útskýr- ingum varðandi fóðrunina um burðinn, „bláþræðinum í fóðrun hámjólka kúa“ eins og réttilega er fram tekið. I greininni segir, að tilraunir norskra vísindamanna bendi til þess að rétt sé að fóðra hámjólka kýr samkvæmt hinum góðu gömlu reglum. Eftir því sem næst verður komizt við lestur greinarinnar, telja þeir Norðmenn að kýrnar eigi, auk gróffóðurs, að fá 3—4 kg af kjarnfóðri á dag síðasta hálfan mánuð fyrir burð, eða alls um 8 FE á dag. Út af fyrir sig þykir mér þetta ekki óskynsamleg fóðrun kúa sem komast í 30 kg dagsnyt og jafnvel þótt um lægri nyt væri að ræða, eins og heyverkun er nú almennt háttað. Fróðlegt væri í þessu sambandi að gera könnun á því, hve margir bændur á Islandi, sem eiga kýr sem mjólka yfir 25 kg á dag í hæstri nyt, fóðra þær samkvæmt þessum „hefðbundna" hætti. Þegar talað er um niðurstöður rannsókna, er aldrei of vel fram tekið, hve breytileikinn getur verið mikill. Meðaltal- inu er aldrei úthúðað nógsamlega. Samkvæmt eigin reynslu af fóðrun kúa meðal bænda á svæði R. N., grunar mig að þeir bændur heyri til undan- tekninga, sem gefa eins mikið kjarnfóður í geldstöðu og hér er um að ræða. Nú er mjög erfitt að kenna því um að bænd- ur hafi ekki verið hvattir til að nota kjarnfóður. Má í því sambandi nefna ýmsan áróður fyrir því á prenti allt frá ár- inu 1887 (Hermann Jónasson, Búnaðarritið 1. h. 1. árg. 1887 og Ólafur Jónsson, Ársriti R. N., 1961). 6 81

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.