Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Blaðsíða 3
5
b. Eftirstöðvar af skuldum Valtýs Brandssouar og
Ásm. Björnssonar greiðist úr varasjóði K. F*.
Sfðan voru reikningarnir samþykktir í einu hljóði.
7. Lagður fram reikningur Minningarsjóðs Jakobs
Hálfdanarsonar 1918 og samþykktur athugasemdalaust.
8. Urðu langar og ítarlegar umræður um sparisjóð
K. F*., skipulag hans og starfsemi, alt í sambandi við
tillögur nefndar þeirrar, sem síðasti aðalfundur K. F1.
kaus til að endurskoða lög sjóðsins. Að umræðunum
loknum, var tillaga nefndarinnar, um afnám sparisjóðs-
ins og stofnun innlánsdeildar, borin upp til atkvæða og
feld með 28 atkvæðum greiddum, gegn 9.
F’ví næst var borin upp tillaga frá Sigurjóni Frið-
jónssyni, svo hljóðandi: >Aðalfundur K. F>. samþykkir
fyrir sitt leyti, að samsteypa verði gerð á sparisjóði fé-
lagsins og sparisjóði Húsavíkur, á þeim grundvelli, sem
eigendur þess sjóðs hafa samþykkt á aðalfundi sínum í
Marz 1917, þó með því skilyrði, að sýslufélag Suður-
F*ingeying» verði þátttakandi í fyrirtækinu að ’/e og K.
F>. að 2I(>. Felur fundurinn félagsstjórninni, að gera samn-
inga um þetta mál við rétta hlutaðeigendur og ef sam-
komulag verður, að koma málinu í framkvæmd. Hinn
sameinaði sjóður heiti Sparisjóður F>ingeyinga. Náist
ekki samkomulag, felur fundurinn félagsstjórninni, að
þoka bókfærsiu sparisjóðs K. F>. í það horf, að hann
fáist viðurkendur af stjórnarráðinu, sem löglegur spari-
sjóður.«
F>essi tillaga var feld með 20 atkv. gegn 18.
Loks var «borin upp tillaga frá F>órólfi Sigurðssyni,
þannig hljóðandi:
»Fundurinn felur félagsstjórninni að þoka skipulagi
og bókfærslu sparisjóðs K. Þ. í það horf, að hann fá-
ist viðurkendur af stjórnarráðinu, sem löglegur spari-
sjóður og heimilar henni, að semja um sameiningu hans
við sparisjóð Húsavíkur, ef aðgengileg kjör fást.«