Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Blaðsíða 4
6
Þessi tillaga var samþykkt með 31 atkvæði gegn 1.
9. Formaður K. F1., sem einnig er formaður S. í. S.,
flutti all-ítarlega skýrslu um starfsemi S. í. S. á árinu
1918, og hag þess og fyrirætlanir. Gat hann þess, að
á þessu ári hefði starfsemi útflutningsnefndar og Lands-
verslunar mjög mikið dregið úr framkvæmdum og starfi
S. í. S. Pó hefði það haldið uppi viðskiftaskrifstofum
sínum í Kaupmannahöfn og í New York undir forstöðu
þeirra Odds Jónassonar og Guðmundar Vilhjálmssonar,
með allgóðum árangri. Lýsti hann að lokum að nokkru
aðstöðu S. í. S. í Reykjavík og framtíðarhorfum og
fyrirætlunum þess þar.
10. Framkvæmdarstjóri skýrði frá, að frá Flateyar-
deild hefði komið til félagsstjórnar málaleitun um lán
til þess, að koma upp samlagsfiskihúsi í Flatey, og
hefði félagsstjórn tekið því máli vel, ef fulltrúafundur
væri því samþykkur. Ut af þessu var í einu hljóði
samþykkt þessi ályktun:
»Fundurinn ályktar að K. Þ. styrki Flateyardeild til
þess, að byggja fiskihús og saltskúr hancfa fiskisamlagi
Flateyinga, með því, að lána þeim byggingarefni fyrir
alt að 3000 kr. gegn þeim tryggingum, sem félagsstjórn
tekur gildar.*
11. Teknar til umræðu tillögur félagsstjórnar til breyt-
inga á reglugerð um stofnsjóð félagsmanna í K. P., og
samþykktar þannig:
a. Við 2. gr. Greinin orðist svo: »Nú gengur mað-
ur í félagið, og er. honum skylt hið fyrsta ár að
greiða auka-inntökugjald frá 5—10 kr. eftir mati
deildarstjóra. Sé hann fyrverandi félagsmaður, eða
eigi jafn mikla eign í sjóðnum, eða hafi öðlast
fyrir erfð, eða afsal annars manns, er inn,lausnar-
rétt á á sjóðeign sinni, er hann undanþeginn
aukaframlaginu.
b, Við 7. gr. Priðji liður greinarinnar falli allur í
burtu. Niðurlag greinarinnar orðist þannig: »Nú