Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Side 5

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Side 5
7 hefir utanfélagsmaður keypt stofnsjóðseign eða fengið að gjöf eða erfð, og er þá félaginu óskylt að innleysa hana.« c. Við 9. gr. Greinin orðist þannig: »Við pantanir og við skiftingu vetrarforða K. P. skal taka tillit til stofnsjóðseigna félagsdeildanna.« 12. Við reglugerð Söludeildarinnar kom fram og var samþykkt sú breyting, að í stað 14. greinar komi svo hljóðandi grein: »Um útborgun úr stofnsjóði Söludeildar gilda sömu reglur og um útborganir úr stofnsjóði K. P. samkvæmt 7. gr. reglugerðar þess sjóðs 1., 2. og 4. lið, þó eigi nema með því nafnverði, sem stjórnin telur rétt á hverj- um tíma.« 13. Frá Bárðdæladeild kom fram og var samþykkt svo feid tillaga: »Fundurinn leggur áherslu á, að á næsta hausti verði gerð tilraun með aflífun sauðfjár á sláturhúsum K. Þ. með skoti.« 14. Voru teknar til umræðu tillögur þær, sem fram hafa komið, og lagðar voru undir síðustu aðalfundi deilda K. F5., til breytinga á lögum félagsins, 16.— 20. gr. Eftir ítarlegar umræður kom fram og var samþykkt svo feld fundarályktun: »Fundurinn ályktar að fresta fullnaðarúrslitum máls- ins, og felur félagsstjórninni að undirbúa það og leggja á ný fyrir deildir félagsins og næsta aðalfund K. F*. 15. Pá var gengið til kosninga á stjórn og starfs- mönnum félagsins, og með því að formaður og fram- kvæmdarstjóri sá, sem um langt skeið hefir haft það starf á hendi, hefir formlega sagt því starfi lausu frá þessum fundi, þá var byrjað á kosningu nýs formanns og framkvæmdarstjóra og Sigurður Sigfússon í Húsavík kosinn í einu hljóði. í félagsstjórnina voru endurkosnir þeir Steingrímur f

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.