Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Side 7
9
nauðsynja fyrirtækis. Út af þessu lagði félagsstjórnin
fram svo hijóðandi tillögu til fundarályktunar:
»tlm leið og fundurinn skorar á S. í. S. að sleppa
engu góðu tækifæri til kaupa á skipi til vöruflutninga
frá útlöndum til kaupfélaganna, einkum á Norður og
Austurlandi, ályktar hann að lýsa yfir því, að Kaupfélag
Þingeyinga skuli leggja fram til skipakaupanna eigi
minna fé en 100 þúsund krónur, gegn því, að sam-
bandið ábyrgist félaginu að minsta kosti 4'/2°/o ársvexti
af fénu, og tiltölulegan hluta af ágóða skipsútgerðarinn-
ar eftir þeim reglum, sem sambandið setur. — Ákveður
fundurinn, að leggja fram af sjóðeignum félagsins 50
þúsund kr., en felur deildastjórunum að útvega hinn
hluta fjárins hjá innstæðueigendum í deildunum, gegn
skírteinum og tryggingum, sem félagið gefur út. Láns-
fé þetta standi afborganalaust r 10 ár, en eftir þann
tíma áskilur kaupfélagið sér rétt til að innleysa það til
sín, enda getur eigandi þá sagt láninu upp með árs
fyrirvara. Af þessum lánum deildanna greiðast 4'/2°/o
ársvextir og auk þess ágóða-uppbót, sem getur numið
alt að 2°/o á ári,«
Pessi tillaga var samþykkt með 33 atkvæðum.
í öðru lagi hafði Sigurjón Friðjónsson komið fram
með tillögu, er hann óskaðf að væri bókuð þannig:
»Fundurinn skorar á S. í. S. að kaupa svo fljótt sem
við verður komið skip til vöruflutninga fyrir íslensk
samvinnufélög. Ályktar fundurinn að K. Þ. leggi fram
að minnsta kosti 100 þús. kr. á sameignargrundvelli til
þeirra skipakaupa, þannig að félagið sé skuldað fyrir
upphæðinni, á líkan hátt og fasteignareikningur K. I5.
fyrir skuldum, sem stafa af húseignum félagsins, en
skuldin síðan afborguð smátt og smátt með tekjum af
vöruflutningunum.«
Með því tillaga félagsstjórnarinnar var samþykkt, var
þessi tillaga sjálfkrafa fallin án atkvæðagreiðslu.