Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Page 9
11
ingarvott frá kaupfélagsmönnum fyrir vel unnið en frem-
ur lágt launað starf á undanförnum árum.«
28. í sambandi við síðasta mál kom fram og var
samþykkt svo feld yfirlýsing:
»Fundurinn treystir því, að stjórn K. Þ. leiti eðlilegs
samræmis um laun starfsmanna K. F*. og að launakjörin
séu svo, að með þeim séu hæfir starfsmenn tryggðir
til frambúðar.«
29. Kom fram og var samþykkt í einu hljóði þessi
fundarályktun:
♦ Fundurinn ákveður, að úr kostnaðarsjóði K. P. sé
greiddar 2500 kr. til hinna sunnlensku sveita, sem tjón
hafa beðið af Kötlugosunum á næstl. hausti.«
30. Samþykkt í einu hljóði: »Fundurinn felur félags-
stjórninni að leita fastlega eftir því, hvort stjórnarvalda-
leyfi. geti fengist til þess, að ólæknisfróðir menn geti
fengið kennslu og löggildingu til þess, að gera hina
lögboðnu ketskoðun og stimplun við sláturhúsin. Enn-
fremur felur hann félagsstjórninni að tryggja það með
samningi fyrirfram, að eigi sé greitt meira fyrir ket-
stimplunina en lög mæla.«
31. Samþykkt í einu hljóði: »Fundurinn heimilar
félagsstjórninni að láta gera bráðabirgðaumbót á bryggju
K. P. nú í sumar og felur henni að undirbúa fullkomna
umbót á bryggjunni sem allra fyrst.«
32. Samþykkt: »Fundurinn telur nauðsynlegt, að mat-
vöruúthlutun geti á þessu ári að nokkru leyti komist á
fyrir uppdeildir K. P. við sláturhúsið í Reykjadal, og
felur félagsstjórninni að annast um framkvæmd þess,
eftir því sem hún sér fært með tilliti ti! pantana deild-
anna. Kostnaður við flutning varanna leggst á þær.
Jafnframt felur hann henni að byggja þar skýli yfir
hesta, sem fyrst um sinn geti að einhverju leyti notast
til vörugeymslu. Ennfremur felur fundurinn félagsstjórn-
inni að leggja fyrir næsta aðalfund K. P. álit um,
hvernig haga skuli flutningum, geymslu og afhendingu