Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Page 11
/
Reglugerð
fyrir Söludeild Kaupfélags Þingeyinga.
______ /
. 1. gr.
Aðaltilgangur söludeildarinnar er, að fullnægja þeim versl-
unarþörfum kaupfélagsmanna, sem fyrirfram pantanir þeirra
og önnur -verslunarstörf félagsstjórnar ná ekki til, og með því
styðja að því, að þeim aðaltilgangi félagsins verði náð, að
gera félagsmenn sem sjálfstæðasta í verslun og óháðasta kaup-
mönnum.
2- gr.
Að tilgangi sínum vinnur Söludeildin með því:
a. að hafa til sölu í Húsavík almennar verslunarvörur, sem
félagsstjórn og framkvæmdarstjóri útvega.
b. að selja aðeins gegn borgun og borgunartrygging um
leið og kaup eru gerð.
, 3- Sr'
Söludeildin rekur störf. sín undir aðalumsjón félagsstjórnar-
innar, og á ábyrgð K. P. í heild. Hún hefir sérstakan efna-
hag, tilkostnað og fyrirkomulag, svo sem reglugerð þessi
skipar fyrir.
4. gr.
Framkvæmdarstjóri gerir allar vörupantanir fyrir Söludeild-
ina,' með ráði félagsstjórnar og gæslustjóra.
/