Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Page 31

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Page 31
33 Þessi sjóður hefir aldrei fyrri á einu ári vaxið, eins mikið og skýrslan sýnir, og er það auðvitað mest af völdum dýr- tíðarinnar. En auk þess eru kaupfélagsmenn nú orðið mjög samtaka um, að auka og efla eignir sínar í sjóðnum á ýmsan hátt, og jafnvel langt fram yfir það, sem reglur K. Þ. gera félagsmönnum að skyldu, og er það gleðilegur vottur um vaxandi skilning og áhuga á, að minsta kosti persónulegum tryggingum til frambúðar. Að hinar sameiginlegu félagstryggingar séu mönnum al- mennt ekki enn orðnar jafn ljósar og hugfastar, virðist mega ráða af því, hversu litla rækt félagsmenn almennt hafa lagt við eignir sínar í stofnsjóði Söludeildar og eflingu þess sjóðs yfir höfuð, í samanburði við stofnsjóð þeirra í K. Þ. Sumir hafa seit eignir sínar í sjóðnum langt fyrir neðan sannvirði og nær því enginn leggur hina árlegu vexti við höfuðstóiinn, heldur taka menn þá alla út og annaðhvort eyða þeim eða færa þá yfir í stofnsjóð félagsmanna í K. Þ. og það munu raunar flestir gera. Af ummælum ýmsra félagsmanna hefir oft mátt skilja, að í raun og veru teldu þeir innstæður sínar í þessum sjóði litla eða enga eign, heldur aðeins hugsaðartöl- ur, sem settar væru á pappírinn til málamynda, og þó hafa þeir árlega fengið háa vexti af upphæðunum, sem þeir hafa flýtt sér að fá útborgaða, líklega til þess, að tapa þeim ekki alveg. — Þetta er meira en lítill misskilningur, og er ekki ó- hugsandi, að einstöku menn, sem betur skilja og langar til að ná í eignirnar með litlu verði, hafi óbeinlínis alið á þeim misskilningi. Máske á hann líka rót sína að rekja til þess, sem mælt er, að menn meti aldrei mikils, né kunni vel að fara með það fé, sem þeir fá gefins, eða algerlega án eigin áreynslu og tilverknaðar, því um stofnsjóð Söludeildar má það með sanni segja, þar sem Söludeildin hefir bókstaflega gefið mönnum þetta fé, fyrir að kaupa af sér vörur með betra verði en annarstaðar og oft betri vörur en annarstaðar fengust á sama tíma. Hafi nokkurntíma verið nokkur átylla til þess, að meta þennan sjóð minna en stofnsjóð félagsmanna í K. Þ., þá er 3

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.