Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Blaðsíða 23
25
talinn meðal eigna K. F\ á efnahagsreikningi. Hann er nú
orðinn allálitleg upphæð, og hefði vafalaust orðið miklu
meiri, ef styrjöldin hefði ekki truflað alt fjárhagsástand, svo
sem raun er á orðin.*)
Breyting sú, sem gerð var á formi og fyrirkomulagi
fjárhagsreikningsins, eins og áður er sagt, veldur því, að
samanburður hinna einstöku reikningsliða við f. á verður
ekki réttur. Skuldamegin á reikningnum kemur þetta sérstak-
lega fram á innstæðum bæði sameigna og séreigna sjóðanna.
Samanburðurinn sýnir aðeins 1671 kr. hækkun á inn-
stæðum sameignarsjóðanna, en hún er í rauninni miklu
meiri. Að undanförnu hefir varasjóður Söludeildar verið tal-
inn með sameignarsjóðunum, en nú ekki, því hann er lát-
inn standa fyrir tapi Söludeildar vegna verðfalls á vöru-
forða hennar. — Innstæða kostnaðarsjóðs var og áður talin
með sameignum, en er nú talinn í eftirstöðvum þessa
*) það er ástæða til að vekja eftirtekt samvinnumanna á þess-
'um sjóði. Hann er samvinnufélögunum í S. I. S. alveg það sama
sem stofnsjóður Söludeildar er félagsmönnum í K. Þ. og á sama
hátt til orðinn, þ. e. hreinn ágóði af viðskiftum við S. I. S. —
Kaupmenn og þeirra Iiðar og liðsforingjar hafa á síðustu miss-
irum, í blöðum sínum og bæklingum, látið látlausar árásir dynja
á S. I. S., en í hina röndina dekrað við kaupfélögin, og reynt að
telja þeim trú um, að af Sambandinu stæði þeim fjárhagsvoði
og féfletting, í samanburði við að skifta við stórkaupmennina.
Þessi umhyggja grósseranna fyrir hagsmunum kaupfélaganna er
næsta brosleg, af því hún er svo gagnsæ lævísi til þess, að ná
til sín viðskiftum kaupfélaganna, sem þeir vita að eru betri og
trúverðugri viðskiftamenn en smákaupmennirnir, einmitt vegna
samábyrgðarinnar, sem þeir þó fyrirdæma, og reyna að hræða
menn á, eins og börn á Grýlu. Af þessum toga eru allar árás-
irnar á Sambandið spunnar, og allar fortölur kaupmanna um að
það féfletti kaupfélögin og sé langt um^kostnaðarsamari og fá-
vísari viðskiftamiðill en grósserarnir. Út af þessu mælti spyrja
herra grósserana, t. d. G. G. og B. Kr., hve miklum sjóðum þeir
hafa safnað af verslunarágóða sínum handa þeim, er við þá
skifta. Félagsmenn í K. P. hafa á fáum erfiðum viðskiftaárum
eignast rúmlega 26 þús. króna sjóð, sem S. I. S. hefir safnað
handa þeim, og þó verið þeim hagfeldari viðskiftamiðill en
nokkur grósseri.