Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Qupperneq 33

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Qupperneq 33
35 Athugasemdir: Á þessum reikningi hafa á árinu orðið þessar breytingar: Tekjur sparisjóðsins hafa vaxið um . . kr. 1539 55. Reksturskostnaðurinn hefir staðið í stað. Utborgan v^xta hafa hækkað um . . — 1267 61 Tekjur viðlagasjóðsins hafa hækkað um — 274 14 Efnahagur sparisjóðsins hefir því farið batnandi, þótt minna af vöxtunum hafi verið lagt við innstæðurnar en að undanförnu. Pessir ársreikningar sparisjóðsins sýna, að það er bæði auðvelt og mjög kostnaðarh'tið að reka svona lagaða spari- sjóðsstarfsemi í kaupféiagi, og með sameiginlegri stjórn. Stjórn og umsjón sjóðsins er mjög lítill viðauki við störf formanns og framkvæmdarstjóra félagsins, því verkahringur sparisjóðsins nær ekkert út fyrir verkahring félagsins. For- maður félagsins þekkir hvern einasta viðskiftamann sjóðsins, bæði innstæðueigendur og lántakendur, þvf alt eru það félagsmenn, og hann er kunnugur efnahag þeirra og ástæð- um. Hann þekkir manna best allar ástæður félagsheildarJ innar, og sér því, hvernig fénu verður best varið eftir at- vikum á hverjum tíma, hvort heppilegra og hagfeldara sé, að ávaxta það í rekstursfé félagsins eða lána það einstakl- ingum. Það léttir líka framkvæmdarstfóra á margan hátt sitt erf- iða og vandasama starf, að hafa umráð á þessu staVfsfé, og gerir honum mögulegt bæði að stuðla að þörfum fram kvæmdum innan félagsms os: að hjálpa félagsmönnum út úr hjálíðandi fjárþröng. Margra ára reynsla K. R. hefir fyllilega sannað þetta svo að ekki verður á móti mælt með nokkrum rökum. Með því fyrirkomulagi, sem nú er á sparisjóði K. P\, kemur það aldrei fyrir, að nokkur innlögð upphæð þurfi degi lengur að vera vaxlalaus, því sé hún ekki þegar lán- uð út, rennur hún samstundis í veltufé K. I5. og ávaxtast

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.