Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1957, Blaðsíða 13

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1957, Blaðsíða 13
LANDSBÓKASAFNIÐ 1955—1956 13 að gera þetta í sambandi við nýja safnhúsbyggingu, enda komst nefndin að þeirri niður- stöðu, að nauðsyn bæri til að reisa nýtt safnhús, á öðrum stað, vegna þess 1. Að gamla húsið væri þegar fyrir löngu of lítið. 2. AS ekki væri unnt að stækka það, eins og nú væri komið. 3. Að gamla húsið gæti ekki talizt lengur tryggilegur geymslustaður fyrir þau miklu verðmæti, sem þar eru geymd, ef eitthvað kæmi fyrir. — Þessi nefnd kynnti sér nokkuð möguleika fyrir nýjum stað fyrir safnhús og taldi mögulegt að reisa það á Melum, vestan Suðurgötu, gegnt lóð Háskólans. Taldi hún, að það hús ætti einnig að rúma Þjóðskjalasafn, eins og sjálfsagt er og nauðsynlegt. — Af lauslegum viðræðum við skipulagsstjóra bæjarins, skilst bókasafnsnefndinni nú, að möguleikar væru á slíku, og er nauðsynlegt, að þeir séu kannaðir sem fyrst og til fullrar hlítar af yfirstjórn þess- ara mála. En reynist þetta hægt, þá má kalla, að grundvöllur sé fenginn fyrir umræðum um framkvæmd á nánara samstarfi og sameiningu safnanna. Þá þykir rétt að ræða nokkuð um söfnin hvort um sig, hlutverk þeirra og fjárhags- ástæður, áður en hægt er að snúa sér að því að athuga, að hverju og hve miklu leyti nánari samvinna og sameining þeirra sé fjárhagslega og skipulagslega hagkvæm. Á fyrstu árum Háskólans var nokkurt fé veitt úr ríkissjóði til bókakaupa vegna að- kallandi þarfa einstakra deilda, en allt var það í smáum stíl, enda ekkert verulegt hús- næði fyrir bókasafn í alþingishúsinu, þar sem Háskólinn starfaði þangað til 1940. Þó áttu einstakar háskóladeildir nokkurn bókakost. 1910 veitti ríkið gömlu embættismanna- skólunum, Presta-, Lækna- og Lagaskólunum, samtals 1500 kr. til bókakaupa. Við stofn- un Háskólans var þessi fjárveiting hækkuð í 1800 kr. og stóð svo til ársins 1914. A því ári hækkaði fjárveitingin í 8 þús. kr. En árið eftir var hún 2500 kr. Síðan fékk Háskól- inn 3 þús. kr. á ári til bókakaupa til 1920. Þá fékk Háskólinn Sáttmálasjóðinn í sínar hendur, og hefur sá sjóður síðan staðið undir bókaöflun Háskólans. Eini beini stuðn- ingur ríkisins við Háskólabókasafnið síðan 1920 er sá, að það hefur síðan 1940 greitt laun háskólabókavarðar. Kostnaður Háskólans af bókasafninu mun á síðustu árum hafa numið um 70 þús. kr., eða um 13 þús. kr. meira en vaxtatekjur Sáttmálasjóðs, eins og þær leggja sig, en þeim var í upphafi ætlað að hrökkva einnig fyrir utanfararstyrkjum kandídata, námsferðum prófessora o. s. frv. Er nú svo komið vegna rýrnandi verðgildis peninganna, að ekki verður lengur hjá því komizt að leita til ríkisins á ný um framlög til Háskólabókasafnsins, sem er orðið allt of stór liður i fjárhagsáætlun sjóðsins, þótt hann sé raunar mikils til of lágur miðað við þarfir Háskólans. Skal þetta síðasta atriði rakið nokkru betur. Auknar þarfir Háskólans á bókakosti stafa í fyrsta lagi af því, að hann hefur um langan tíma orðið að búa við allt of kröpp kjör um öflun bóka vegna fjárskorts og því hlotið að dragast aftur úr í flestum greinum. I öðru lagi má nefna það, að síðan 1920, er Sáttmálasjóður tók að sér að standa undir bókaöflun skólans, hafa þarfirnar aukizt stórkostlega, einkum á síðustu 10—15 árum. Veldur þessu stórhækkað bókaverð og bókbandskostnaður, fjölgun háskóladeilda og stóraukin tala kennara og nemenda. Síð- an 1920 hefur stúdentatalan nífaldazt. Árið 1920 voru 14 prófessorar og dósentar í Háskólanum. Nú eru þeir 27. Á sama tíma hefur tala aukakennara sjöfaldazt, úr 6 árið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.