Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1957, Blaðsíða 143

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1957, Blaðsíða 143
í S LAN DSKLUKKAN í SMÍÐUM 143 Eldi. En annars var auðvitað allt það efni honum áður kunnugt frá frumheimildum þeim, sem hann hefur leitað til. Þá er komið að heildarhandritunum af Klukkunni. Fyrsta uppkastið (A) er 232 blað- síður; tölusetninguna 79 vantar, en hinsvegar hafa tvær blaðsíður verið tölusettar 185. Tvennskonar pappír er í handritinu. Fyrstu 128 blaðsíðurnar eru skrifaðar á óstrikuð blöð í venjulegu „kvarto“-broti; skriftin aðeins öðrumegin á blaðinu. Blaðsíðurnar 129—232 eru á lausum stílabókarblöðum í brotinu 190x241 mm, með 23 línum; skrifað báðumegin á blaðið. Dagsetningar eru á bls. 1: „17. apríl 1942“, og á síðustu blaSsíðunni, 232: „Faugar- vatni 7. sept. 1942.“ Ennfremur á bls. 129, þar sem nýi pappírinn tekur við og Þrettándi kapítuli hefst: „Akureyri 12. júní“. Þetta kemur ágætlega heim við hina fyrrnefndu dagsetningu í Minnisbók a: „Akureyri 11. júní geflogen.“ (43) Næsta handrit (B) að fyrsta bindinu er einnig í ,,kvarto“-broti — eins og öll þau heildarhandrit, sem verður lýst hér á eftir — og tölusett bls. 1—262. En blaðsíðurnar eru í raun og veru fleiri. í fyrsta lagi hefur Sjöunda kapítula verið skotið inn milli bls. 101 og 102; hann var frá upphafi tölusettur sér, 1—11, en síðan lOla—lOlk, til þess að fella hann inn í heildartölusetninguna. í stað blaðsíðnanna 106, 109,110 og 123 eru: 106a, b, c, 109a, b, llOa, b og 123a, b, c. Tvö blöð hafa verið tölusett 29. í innskots- kaflanum hafa bls. 1—4 fyrst verið skrifaðar einu sinni, og svo byrjað að semja kaflann á ný. Eins er um bls. 102—106, upphafið að næsta kafla. Þessu handriti fylgja einnig fáein sundurlaus blöð með efni úr sögunni. I Klukkunni B er aðeins skrifað öðrumegin á blaðið, eins og í öllum þeim heildarhandritum, sem ég á eftir að segja frá . Dagsetning er á bls. 1: „Hveradölum, Skíðask. 16. sept. 1942“. Höfundurinn hefur þannig byrjað á þessu handriti rúmri viku eftir að hann hafði lokið við A. Aðrar dag- setningar eru bls. 26, neðarlega: „18. sept.“, og bls. 27, efst til hægri: „22. sept.“; hér hefur þá orðið nokkurra daga hlé milli annars og þriðja kaflans. Á bls. 151, í lok tólfta kaflans, eftir setningu, sem endar á orðunum „eða gera þau upptæk grunuð um laun- verslun“: „Sk.skál. 6. nóv.“, og svo, á undan næstu setningu, „Að lokum innbyrtu þeir þennan svarta Íslendíng“: „Sk.sk. 18. nóv.“; hér hefur aftur orðið hlé. A bls. 243, fyrir framan næstsíðasta kaflann, þann nítjánda: „Sk.-sk. 27. jan.“ Og loks, á síðustu hlað- síðunni, 262: „Byrjað 14. sept. 42 lokið 29. jan (Hveradölum) — (a. m. k. sex vikur fallið úr)“. Það greinir þannig lítilsháttar á milli þessarar dagsetningar og þeirrar á bls. 1. Þriðja handritið (C) að Klukkunni er vélritað og tölusett bls. 1—140. Þó vantar hér fjöldamörg blöð; af öllu handritinu eru ekki nema 60 eftir. T. d. vantar alveg fimmta, sjöunda og þrettánda kaflann; aðeins áttundi kaflinn er óskertur. En þessi skörð má skýra á einfaldan hátt, eins og bráðum verður vikið að. Á síðustu blaðsíðunni er dagsetning, skrifuð með bleki: „Þessi vélritaða afskrift var gerð á Laugarvatni apríl og maí 1943.“ Fjórða handritið (D) er einnig vélritað og tölusett bls. 1—-140 alveg eins og C.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.