Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Page 8

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Page 8
8 LANDSBÓKASAFNIÐ 1964 meistara eftir Bólu-Hjálmar og með hendi hans, og Rímur af Skarphéðni Njálssyni og bræðrum hans eftir Símon Eiríksson frá Djúpadal. Systir Michael Zessa, O.S.B., Saint Paul’s Priory, Sl. Paul Minnesota, gaf safninu vélritað eintak ritgerðar sinnar um sögu Benediktsmunkareglunnar á Islandi: History of the Benedictines in Iceland. Despina Karadja, prinsessa, Stella Maris, Marine Drive, Rottingdean, Sussex, gaf mjög myndarlegt safn greina eftir Ingihjörgu Olafsson, aðalframkvæmdastjóra KFUK á Norðurlöndum, en safninu fylgja einnig greinar um Ingibjörgu og ljósmyndir af henni frá ýmsum tímum. Af öðrum gefendum handrita skulu þessir nefndir: Jakobína Johnson, Seattle Wash., Theodóra Hermann, Gimli Man., Magnús Jochumsson, fyrrv. póstmeistari, Reykjavík. Af eldri gjöfum skal hér einnar minnzt: Jón Gauti Pétursson gaf í apríl 1963 bréfa- safn föður síns, Péturs Jónssonar frá Gautlöndum. Landsbókasafn flytur öllum gefendum handrita heztu þakkir. Við handritadeild safnsins vinna nú tveir fastir starfsmenn: Lárus H. Blöndal og Grímur M. Helgason, og veitir Lárus deildinni forstöðu. Nýtt bindi handritaskrár verður prentað, þegar komið er nægilegt efni í bindi, og vinnur Lárus m. a. að undirbúningi þess. Grímur M. Helgason gerir á öðrum stað í árhókinni nokkra grein fyrir kvæðaskrá þeirri, er unnið hefur verið að um árabil. Pótt því verki sé ekki lokið, geta menn þegar haft mikil not skrárinnar, og er því rétt, að henni sé lýst í þessu riti. Ölafur Pálmason vann í ígripum á vegum safnsins að hréfaskrá, sem áður hefur ver- ið minnzt í árbókinni, og veitti Menningarsjóður sem fyrr nokkurn fjárstyrk til þessa verks. Mörg bréfasöfn bíða könnunar, svo að hér er um mjög brýnt verkefni að ræða. Starfsmenn Handritastofnunar Islands höfðu á árinu aðsetur í handritasal safnsins, og verða þeir fastagestir þar, unz þeir fá samastað í húsi því, er senn verður hafizt handa um að reisa á háskólalóðinni. - , Verkaskiijting milli annarra bókavarða var svipuð og áður. Geir Onnur starísemi ° . Jonasson annaðist ýmsa aðdrætti, og reyndist það oft fyrirhafnar- samt verk, því að ganga verður mjög ríkt eftir prentskilum við suma. Sem betur fer, er hér ekki um marga aðila að ræða, og er þess því vænzt, að þeir hæti ráð sitt og greiði þannig á sinn hátt fyrir starfsemi safnsins. Geir hjó ennfremur hækur í hendur bókbindurum safnsins og sá um tímaritakost þess, auk þess sem hann hefur lengi unnið að rækilegri skrá um íslenzk tímarit. Loks má geta, að liann hirti um rit þau, er safn- inu hárust frá stofnunum Sameinuðu þjóðanna, en það er mikil syrpa á ári hverju. Ásgeir Hjartarson samdi á árinu skrá yfir íslenzk rit 1963 og þær skrár aðrar, sem birtar eru í þessari árbók, en var ennfremur gjaldkeri safnsins. Ólafur Fr. Hjartar hafði umsjón með bókaskrám safnsins og vann að endurskoðun þeirra og samræmingu, en einnig að skráningu erlendra bóka.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.