Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Blaðsíða 102
102
PRENTSMIÐJUKVEÐSKAPUR Á 18. ÖLD
Þess má að lokum geta, að Skúli tók upp þá nýlundu að auglýsa bækur Hólaprent-
smiðju í Löþingisbókinni 1743, og er ])eim sið haldið þangað til 1747. Auglýsinguna
hefur hann undirritað eiginhendi 1743, en eftir það er nafn hans prentað.
II
SÆNSKT SKÁLD í íSLENZKRI PRENTSMIÐJU
Bogi Benediktsson getur þess í Feðgaæfum, bls. 58, að brúðkaupskvæði til séra
Þórðar Olafssonar og Kristínar Bogadóttur hafi verið prentað í Hrappsey 1788, en
höfundar er ógetið. í útgáfu Jóns Sigurðssonar af ljóðmælum séra Jóns Þorlákssonar,
II. bd., bls. 333—335, eru prentuð tvö kvæði til þessara brúðhjóna, annað undir nafni
konu skáldsins, en hún var systir brúðarinnar, og segir útgefandi, að kvæðin séu prent-
uð í Ilrappsey 1788, sbr. og bók Jóns Helgasonar um Hrappseyjarprentsmiðju, bls.
58—59. Bogi tölusetur prentgripina í skrá sinni. Þetta brúðkaupskvæði er nr. 64, og
er Ijóst, að ekki hefur verið prentað nema eitt kvæði við brúðkaup Kristínar og séra
Þórðar, og er hvorugt þeirra, sem prentað er í ljóðmælunum.
í Landsbókasafni er eintak af brúðkaupskvæði því, sem um getur í Feðgaæfum,
prentað annars vegar á arkarblað, nú 40.7X33.8 cm, en gæti verið eitthvað skert.
Prentað er í tveim dálkum; í fremra dálki brúðkaupskvæði á sænsku eftir Magnús Mó-
berg, er þá var prentari (stílsetjari) í Hrappsey, sænskur maður, í aftara dálki þýðing
Jóns Þorlákssonar á kvæði Magnúsar. Letrið er gotneskt, nema nöfnin Thorder Olle-
sons og Christin Bogedotters efst vinstra megin, sem prentuð eru með upphafsstöfum
í latínuletri. Beggja vegna súlur vafðar blaðskrauti.
Pá
Herr
Thorder Ollesons
Och
Jungfru
Christin Bogedotters
Bröllops-Dag
D. 1788.
Af
M. M
Om jag wore qwick och snáll
Skulle jag rátt lustigt sjunga,
Om den III, som denna Qwáll
Brinner hos Twá q[w]icka Unga;
Om den Gláde och Behag,
Som uppfyller detta Lag.
A
Síra
Þordar Olafssonar
0g _
Jomfrú
Christinar Bogadottur
Brwdkavps-Dege
Þann 1788.
Af
J. Th.
Ef eg hære miúka Ment
mundag kveda þan/f um Bríma
sem um Brúdar-Blómstur tven/ít
blikar Kvölds aa þessum Tíma.
Um þa/7 Glede og Yndis Sid,
er her prýder Samqwæmid.