Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Qupperneq 101
PRENTSMIÐJUKVEtíSKAPUR Á 18. ÖLtí
101
Hver var að kveðja á Hólum um veturnætur 1746? í orðunum Sa Myked Synest er
bersýnilega fólgið fangamark: S. M. Son. tíarf þá ekki lengi að leita: Skúli Magnússon.
Lesa mætti úr orðunum: Sýslu Madur Skagfirdinga, og ef til vill til þess ætlazt hálft
í hvoru.
A Hólum var biskupslaust frá andláti Steins biskups Jónssonar 3. des. 1739 þangað
til Halldór biskup Brynjólfsson kom heim úr vígsluför sinni sumarið 1746. Voru Skúla
Magnússyni falin forráð stólseigna árið 1741, og hélt hann þeim, þangað til Halldór
biskup var heim kominn. Haustið 1746 voru skipaðir úttektarmenn við afhendingu
stólseigna í hendur biskupi þeir Bjarni sýslumaður Halldórsson á Þingeyrum og Guðni
sýslumaður Sigurðsson í Kirkjuvogi. Tóku þeir til starfa 7. október, en 27. okt. er út-
tektargerðin undirrituð af úttektarmönnum og vitundarvottum, ásamt Halldóri hiskupi
og Skúla sýslumanni. Dagsetningin á prentaða blaðinu hendir til. að 25. okt. hafi út-
tekt verið lokið. Llttektarskjölin eru bundin í bók í arkarbroti, ekki allþunna, og hafa
þau ekki verið tilbúin til undirskriftar fyrr en tveimur dögum síðar.
Niðurlag últektargerðarinnar er á þessa leið:
Ad sijdustu beiddist Sijslumadurenn Skúli Magnúss Son alits af Stoolsens úttektar-
mönraum, og 0drum goodum mön/zum, sem hier eru naalæger, livert þeim virdest
Stoollenn illa forstandenn, eda i lakara Stande, en þa hann hafe vidtekid. Hvar til vær
Sameigenlega svörum, ad ei annad sia kunrcum, enn ad hann hafe Stoolsens Hús og
Inventarium vel og sæmelega forstaded, bæde, so miket, sem ahrærer Husanna og
Inventarii Reparation , og virdest oss þad i eingvu sijdur Stande vera, sem þvi, er hann
medtók, sijnest vered hafa. Til Sluttningar voru Her. Biskupenn og Sijslumadurenn
Skúle adspurder, hvert þeir hefde nockud framar ad prætendera, edur frambera, sem
þessu Erende vidkiæme, og þeir villdu hier laata innfæra; og kom þad ecke framm af
þeirra haalfu.
Þessum Giörninge til Stadfestu eru vor underskrifadra nöfn og afþryckt Signet.
Að Hoolum í Hiallta Dal, þann 27da Octobris, Anno 1746.
Bjarne Halldorsson G. Sigurdsson
Joon Eggertsson Thorgrymur Thorgrymsson
Sem viðkoinendum Underskrifum
Halldor Brinjolfsson S. Magnusson
Undir eru innsigli þessara sex.
Þess var áður getið, að úttekt muni hafa verið lokið 25. okt., og þá er Skúla kunnugt
orðið um atkvæði úttektarmanna, þá er hann úr allri áhyrgð og laus við erfitt og öf-
undsamt starf með fullri sæmd. Þá getur hann lekið „afskeid fra Hoolum“ með léttara
hjarta.
Skúli Magnússon kveður 25. okt. 1746, en hann er líka kvaddur með árnaðaróskum
Sá H. E. S., sem svo hlýlega kveður, getur ekki annar verið en Halldór Eiríksson,
prentarinn, sem Skúli spandi austan úr Danzig eftir 13 ára útivist. Hefur hann þá
sundurgerð í Afskeidinu að prenta með tveim litum, sem þá var fátítt i smáprenti.