Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1946, Side 7

Frjáls verslun - 01.03.1946, Side 7
VERZLUNARSKÓLABÁI. KUR að þeir hafa ráðið vel ráðum sínum. Það er skemmst frá að segja, að Vilhjálmur Þ. Gíslason er og hefur verið afburða vinsæll skólastjóri, og veit ég að fáir eða engir munu véfengja það, allra sízt nemendur hans, því hann hefur sem sé einnig liaft með höndum umfangsmikil kennslustörf innan skólans. T. d. er íslenzkukennslu hans við brugðið sem fyrirmyndarkennslu, og mun sú vera reyndin, að nemendur hans njóti þá ekki einungis fræðslu heldur blátt áfram ununar. Vilhjálmur kann h'ka listina að stjórna. Er það þó áreiðanlega ekki vandalaust verk, á jafn fjöl- mennunr stað og Verzlunarskólinn er. Skóla- stjórn Vilhjálms er einkennd af festu, skapstill- ingu og glaðlyndi — aldrei af bráðræði, ofstæki eða harðúð. Honum þykir vænt um nemendur sína og sýnir þeinr nrargskonar umhyggjusemi. Hann hefur alla tíð látið sér mjög annt um hag skóla síns, enda hefur skólinn tekið stórfelldunr framförum undir handleiðslu lrans. Stærsta fram- farasporið mun óefað vera stofnun lærdónrsdeild- ar skólans, og þau réttindi, að fá að brottskrá istúdenta, senr síðan eiga beinan aðgang að há- skólanánri. Fyrir þessu takmarki hafði Vilhjálm- ur barizt unr nokkur ár, og því ber lionunr vænst- ur skerfur af heiðrinum. Auk skólastjórnar sinnar Irefur Vilhjálmur fengizt nrikið við fræðistörf og ritstörf, og liggja eftir lrann margar bækur, frumsanrdar og þýdd- ar. Er hann vafalaust einn nreð bókvísustu mönn- unr á landi hér. Hann er einnig góðkunnur út- varpsfyrirlesari og starfar að mörgum félagsnrál- um. — — Nenrendafjöldi Verzlunarskólans hefur svo að segja farið árvaxandi, og er nú eftirspurn eftir skólavist orðin langtum nreiri en húsrými skól- ans leyfir, og sanra er að segja unr eftirspurn eftir verzlunarnrenntuðu fólki. Það er því augljós og knýjandi nauðsyn að lrefjast handa unr nýja skólabyggingu. Nokkuð fé til þeirrar franr- kvæmdar lrefur þegar safnazt, fyrir tilstuðlan Nemendasanrbandsins og fleiri aðila, en ekki virðist vera nægur kraftur í þeirri fjársöfnun. Verzlunarstéttinni verður að skiljast, að hún dregst aftur úr rás tínrans, ef hún vanrækir að viðlralda og efla menntastofnun sína og gera lrenni auðið að svara réttmætum kröfum og þró- un samtíðarinnar. Ég vil því eindregið skora á skólaráð Verslunarskólans, N enrendasanrbandið, alla skólanemendur, eldri og yngri, alla kaup- sýslunrenn, allt verzlunarfólk — senr sagt alla ís- lenzka verzlunarstétt — að hefjast nú enn fleiri handa unr að konra byggingarnráli skólans í höfn. Með sterku átaki á það að geta lánast á 2—3 ár- um. Engunr er þessi þörf augljósari en skólastjór- anum sjálfum. Hann lrefur nrargoft rætt unr að úrbætur á þessu sviði væru bráðnauðsynlegar. Síðast við skólaslitin í dag drap hann á þetta nrál, og hinunr sanngjörnu tihnælum hans verður verzlunarstéttin að sinna. Ekki vil ég skilja svo við þennan stað og stund, að ég ekki minnist einnig liúsmóðurinnar í Verzlunarskólanunr, frú Ingileifar Arnadóttur Gíslason, konu skólastjórans. Hún hefur ávallt verið nranni sínunr samhent um velgengni skól- ans og hag nemenda. Allir geta gert sér í liugar- lund það ónæði og hávaða, sem hlýtur að vera samfara 300—400 ærslafullunr unglingum, senr stunda nám á öllum tímum dagsins, frá árla nrorgni til síðla kvölds — og franr á nætur, þegar skólaskenrmtanir eru haldnar. Þrátt fyrir þetta lreyrast aldrei æðruorð frá frú Ingileifu. Þau hjónin virða gáska æskunnar á lrinn betra veg- inn og vita vel unr gildi gleðinnar og lrlátursins fyrir langlífið. Að svo nræltu vil ég færa þeinr lrjónunum þakkir Nenrendasanrbands Verzlunarskólans fyr- ir framúrskarandi velvild í garð nemenda — og jafnframt árna þeim góðra lieilla í allri framtíð, með von unr að skólinn fái að njóta þeirra enn unr langan aldur, og hann vaxi af þeim og þau af honunr. Það kannast allir við táknið V, senr þýðir „victory“ eða sigur. Ég vil nú í kvöld gefa því svolítið yfirfærða nrerkingu — þríþætta — og er þá þetta V upphafsstafur þeirra sigurvegara, senr hér er að minnast. Þeir eru: Verzlunarskólinn, Vilhjálmur og vinsældir þeirra. Ég bið nú alla viðstadda að rísa úr sætum og mynda V-táknið, og lrrópa nífalt skólahúrra fyrir Verzlunarskólanum, Vilhjálmi Þ. Gislasyni og konu hans og vinsœldum peirra allra. Þau lengi lifi! Baldur Pálmason. FRJÁLS VERZLUN 55

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.