Frjáls verslun - 01.03.1946, Side 23
NÝBREYTNI í HÚSAGERÐ
Samkvæmt nýjum fregnum frá Bandaríkjunum, er nú a'ð
liefjast þar stór-framleiðsla á nýstárlegri gerð tilbúinna húsa.
Utan frá að sjá líkjast þau lítið venjulegum húsum, en minna
iillu heldur á ávaxtaskál á hvolfi. Þau eru hyggð úr aluminíum
og er haldið uppi af einni stoð úr stáli, sem er reist á traustri
undirstöðu um miðbik hússins. Ofan á þessa stoð er fest stór-
eflis hettu, sem snýst fyrir vindi og er til loftræstingar. Vegg-
irnir eru því ekki undirstaða hússins, heldur er þeim haldið
uppi. Frá aðalstoðinni liggja stálvírar, sem styðja þakið, vegg-
ina og gólfið, sem er um það bil fet frá jörðu. Vírendarnir
eru svo grafnir í jörðu.
Innanhúss eru mörg rúmgóð herbergi: tvö svefnherhergi,
tvö haðherbergi, stór dagstofa og eldhús. Þar eru líka inn-
byggðir skápar, sem eru þannig gerðir, að á þeim er op í
axlarhæð, og á hak við það eru hillur, sem festar eru á snúru.
Sé ýtt á hnapp hreyfast hillurnar eftir snúrunni, fram hjá
opinu. Það eru þrír slíkir skápar í hverju húsi, og er í þeim
nægilegt rúm fyrir þvott, ytri fatnað og hækur. Hitaleiðslum
og lofthreinsunartækjum er komið fyrir á mjög haganlegan
hátt. Húsin eru lýst með óbeinni lýsingu.
unni og lest asnalegar skáldsögur, í stað þess að hirða um
þitt eigið heimili. Svo kem ég þreyttur heim af skrifstofunni
og verð að hafa alla þesssa óreglu fyrir augunum. Það er
óþolandi!“
„Er það nú eitt rifrildiskastið enn“, hrópaði frú Flys. „Ég
er fyrir löngu orðin þreytt á þessu. Þú hefðir sannarlega átt
að giftast ryksugu, í staðinn fyrir heiðarlegri konu, eins og
ég er“.
„Já, alveg rétt“, sagði forstjórinn liiturlega. „Einmitt. Það
Iiefði þó verið stór munur á“.
„Þú kemur sífellt með kvartanir og aðfinnslur", sagði frú
Flys. „En við gelum skilið að fullu og öllu núna á stundinni,
ef þú kærir þig um. Ég heimta hara viðunandi lífeyri, skal ég
segja þér. Ég læt ekki slíkan nöldurssegg, sem þig, leika á
■mig allt mitt líf. Þú gengur með hreingerningarbrjálæði. Þú
ert tilfinningalaus og harðhrjósta, og þú getur sjálfur farið
fram í eldhús og þvegið upp, og á eftir geturðu skrúhhað allt,
hátt og lágt, eins lengi og þér sýnist, úr því að ég get ekki
gert það nógu vel. Og hana nú!“
Með þessum orðum þeytti frú Flys frá sér bókinni og reis á
fætur. Ilún kastaði heiftarlegu augnaráði til eiginmannsins,
um leið og hún kjagaði fram í eldhúsið og tók að hjástra við
hádegisverðinn.
Forstjórinn gekk inn í herbergi sitt, opnaði skúffu í skrif-
borðinu, tók þar fram fægiklút og byrjaði að strjúka rykið af
húsgögnunum. Það skyldi þó vera regla á hlutunum í hans
eigin herhergi, hvað sem tautaði og raulaði. Hann tók ösku-
hakka og skrautstyttur og fægði það allt, eins og frekast var
unt. Svo opnaði hann gluggann og dustaði klútinn.
Að því loknu kveikti hann aftur í vindlinum, sem slokknað
hafði í, settist í hægindastól og beið þolinmóður eftir hrenndu
steikinni.
Enn sem komið er hefur aðeins ein verksmiðja framleiðslu-
rétt á húsum þessum, og hýst hún við að afkasta smíði 200
húsa á dag, í byrjun næsta árs. Þetta er fyrrverandi flugvéla-
verksmiðja. Fyrirhugað er að fleiri slíkar verksmiðjur fái
samskonar réttindi, og er gert ráð fyrir að framleiðslan verði
185000 hús á ári, áður en langt líður.
•
Þessi nýja húsagerð liefur vakið geysilega athygli í Banda-
ríkjunum og almenna hrifningu. Einn höfuðkosturinn við húsin
er, hve ódýr þau eru. Þau kosta $ 6.500.00. Þau eru mjög létt
í vöfum og meðfærileg og valda því hvorki erfiðleikum í flutn-
ingi né óhæfilegu flutningsgjaldi. Eitt slíkt hús er aðeins
3 tonn að þyngd. En þau hafa einn slæman ókost, eins og
flest tilbúin hús, þ. e. að skipulagsráðin veita ekki leyfi til
að reisa þau I stærri borgum.
~ •
Húsameistarinn, sem teiknaði þetta hús, heitir Buckminster
Fuller, og er það við hann kennt.
(Hér fylgja myndir af húsi þessu, utanhúss og úr dagstofu
hússins).
FRJÁLS VERZLUN
71