Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1950, Blaðsíða 1

Frjáls verslun - 01.04.1950, Blaðsíða 1
12. ARG. 3.-4. HEFTl - 1950. Það vantar ekki að spáð sé illa fyrir efnalegri velgengni okkar, eins og nú standa sakir. Ef unt vœri að bjarga því, sem bjarga þarf með hraklegum forspám í blöðum og útvarpi, vœru engin vandrœði fyrir höndum. Ef marka mœtti þessar illspár ýmsra ráðamanna okkar œtti þó að mega álykta að þessir sömu menn hefðu gert sér ljóst, hvar við raunverulega erum staddir og ef til vill líka hvað hefur valdið því að svo er komið sem komið er. En fyrr en menn hafa gert sér ljósar ástœðumar fyrir ófarnaðinum er þess ekki. að vœnta að breytt sé um stefnu. En ef litið er til þeirra manna sem verstu hafa spáð er mikill vafi á að þessir menn hafi raunverulega skilið orsakir þess sem miður fer og enn vafasamara er þó hvort þeir séu þess umkomnir að bœta úr nokkru. i þessu sambandi er vert að Jíta á eina staðreynd: I nœr því 20 ár höfum við búið við margvísleg höft í viðskiptum og athafna- lífi landsins. Þau höft hafa vaxið úr mjóum vísi og upp í að ná til alls rekst- urs landsmanna. Kóróna þessarar stefnu er áœtlunarbúskapurinn, sem við höfum stofnað til. Hver er svo árangurinn? Svarið við þessari spurningu er allstaðar. Það er ekki aðeins handbœrt, ef litið ér til gjaldeyrisskortsins í bönkunum eða efnis- skortsins í iðnaðinum. Svarið má líka sjá á heimilum borgaranna, hvar sem komið er. Nú segja sjálfsagt margir að tuttugu ára haftastefna eiqi ekki sökina, þar komi margt annað til, svo sem stonuUr atvinnuveair og f'eira. En þrátt fyrir það þó viðurkenna verði að við búum við stopula framleiðslu þá er ómót- mœlanlegt að haftastefnan er sú orsökin, sem mest ber á ef rétt er skoðað. Ahrif hennar sem ekki aðeins fjármunaleg heldur líka sálarleg og það and- streymi, sem við berjumst við oq birtist í margskonar spihingu á rót sína að rekja til þessarar stefnu. En ráðamenn okkar sýnast ekki vera fljótir til að viðurkenna að haftastefnan hafi beðið skipbrot. Við sjáum engin merki þess að breytt verði um til frjálsara fyrirkomulags á sviðum atvinnumálanna. Við sjáum ekki örla á neinni byrjun, hvað þá meira. Hraksoár eru lítilsvirði. Hitt er meira virði að fara að viðurkenna að rangt hafi verið stefnt og snúa beri við. Ef ráðamenn okkar hefðu kjark til slíkra játninga vœri mikið unnið en hitt getur aftur verið vafa blandið hvort sömu mennirnir og leiddu okkur út í ófamaðinn séu menn til að leiða okkur út úr honum aftur.

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.