Frjáls verslun - 01.04.1950, Blaðsíða 22
ísland.
Verðmæti innfluttrar vöru í jan-
úarmánuði nam 19,9 millj. kr., en
útfluttrar vöru 17,4 millj. kr. Varð
vöruskiptajöfnuðurinn í mánuðinum
Jiví óhagstæður um 2,5 millj. króna.
I febrúar urðu vöruskiptin okkur
hagstæð um 1,6 millj. kr. Nam
verðmæti útflutlra afurða 25,5 millj.
kr., en inn fluttum við vörur fyrir
23,9 millj. kr.
Eftir tvo fyrstu mánuði ársins er
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 0,9 millj. kr. Innflutningurinn
nemur 43,8 millj. kr., en útflutn-
ingurinn 42,9 millj. kr. Á sama
tímabili í fyrra var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um 18 millj. kr.
Vöruskiptajöfnuðurinn í marz-
mánuði varð óhagstæður um 2 millj.
kr. Alls nam innflutningurinn 31
millj. kr., en útflutningurinn 29
millj. kr. Er vöruskiptajöfnuðurinn
fyrstu 3 mánupði ársins óhagstæður
um 2,9 millj. kr.
Viðskintasamningur var UTidirrit-
aður milli íslands og Vestur-Þýzka-
lands 15. marz s.l. Samkvæmt samn-
ingi bessum er gert ráð fyrir, að
íslenóingar selii Þióðverium fisk
og síld fyrir 2,5 millj. dollara. Enn-
fremur síldarmjöl, síldarlýsi. gær-
ur o. fl. vörur. Frá Vestur-Þvzka-
landi kaupa íslendingar vörur fvrir
2,5 millj. dollara, svo sem útgerðar-
vörur, vefnaðarvörui, járn og stál,
raflagningarefni, rafmagnsvörur,
vélar, járnvörur, kemiskar vörur
linoleum, áburð, sement. gler, leir-
vörur, o. f 1. vörur.
Samkvæmt viðskiptasamningi
þeim, er gerður var milli íslendinga
og Spánverja s.l. haust og undir-
ritaður skömmu fyrir jólin, er gert
ráð' fyrir allmiklum viðskiplum.
Gert er ráð fyrir, að íslendingar
selji Spánverjum saltfisk, hesta,
Jjorskalýsi og aðrar fiskafurðir.
Munu Spánverjar ráðgera að borga
Jietla með vefnaðarvörum, fiskinet-
um og netagarni, skófatnaði, leðri,
nýjum og þurrkuðum ávöxtum, á-
vaxtamauki og safa, víni og vín-
anda, superfosfati, kali, salti og
hyggingarefni.
Aðalfundur Félags matvörukaup-
manna í Reykjavík var haldinn 16.
marz s.l. Formaður var endurkos-
inn, Guðmundur Guðjónsson, með-
stjórr.endur voru einnig endurkosn-
ir þeir Sigurliði Kristjánsson og
Lúvík Þorgeirsson. Auk þessara eiga
sæti í stjórninni Axel Sigurgeirsson
og Björgvin Jónsson. Varastjórn var
öll endurkosin, þeir Kristján Jóns-
son, Gústaf Kristjánsson og Sigur-
jón Jónsson.
Rætt var um úthlutun gjaldeyr-
is- og innflutningsleyfa, skömmtun-
armál, verðlagsmál, og hina miklu
vöruvöntun, þar sem kaupmenn
standa með hálftómar húðir, en
fólkinu vantar hinn nauðsynlegasta
varning.
i
Noregur.
Stærsta iðnfyrirtæki landsins,
Norsk-Hydro, hefur nú að mestu
lokið við endurbyggingu og aukn-
ingu fyrirtækisins samkvæmt þeirri
áætlun, er stjórnendur fyrirtækisins
gerðu strax eftir styrjöldina. Hefur
nýjasta verksmiðja fyrirtækisins við
Glomfjörð í Norður-Noregi nýverið
tekið til starfa. Er framleiðsla
Norsk-Hydro af köfnunarefni þá
komin upp í 150 })ús. tonn á ári,
en það gerir 1 millj. tonn af salt-
pétursáhurði, sem er aðalfram-
leiðsluvara verksmiðjanna.
Verðmæti árlegrar framleiðslu
verksmiðjanna er um 11 millj. £.
þar af eru 9 millj. £ fyrir útfluttan
áburð.
Verksmiðjur Norsk-Hydro fram-
leiða til eigin nota 400 þús. kilo-
wött af raforku árlega. Hjá fyrir-
tækinu vinna nú um 6 þús. manns.
Á síðustu 4—5 árum hefur fyrir-
tækið varið 12 millj. £ í nýjar verk-
smiðjur og raforkuver. Hefur næst-
um allt þetjta fjármagn verið úr
eigin sjóðum fyrirtækisins. Verk-
smiðjur Norsk-Hydros eru nú virtar
að verðmæti á samtals 50 millj. £.
Norðmenn vinna nú að byggingu
14 raforkuvera, þar sem aflstöðv-
arnar verða neðanjarðar, og unnið
er að undirbúningi fimm í viðbót.
Munu raforkuver þessi geta fram-
leitt milli 1—1,5 millj. kilowött ár-
lega. Bygging þessara raforkuvera
mun kosta milli 50—75 millj. £.
Eins og er þá geta raforkuver lands-
ins framleitt 3 millj. kilowött ár-
lega.
Bandaríska ritvélafirmað Rem-
ington Rand Company hefur í
hyggju að stofnsetja ritvélasamsetn-
ingarverksmiðju í Osló. Er í byrj-
un áætlað að framleiða 5 þús. ritvél-
ar á ári í verksmiðju Jtessari, og
66
FRJÁLSVERZLUN