Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1950, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.04.1950, Blaðsíða 14
„Samvittighed" Christensens vissi ég ekkert, lield- ur það, að hann var drykkfelldur nokkuð og ekki sem reglusamastur né lrirðusamur, en ég hygg að hann hafi í engu misséð sig eða tekið neitt það, er hann ekki átti. Það er sannfæring mín. Enda komst það upp sama árið í hverju tapið lá: Það voru vínbirgðir verzlunarinnar, senr gleymzt höfðu að mestu, og námu þær, er ávantaði, um 8 þúsund krónum. Meira hafði og gleymzt við upptalninguna. Árið eftir hitti ég Herluf Bryde á götu hér og bað hann að sanna orð þau, er í bréfinu voru. Hann kenndi ellibrellum föður síns, bað mig afsaka — enda var „sá gamli“ þá dauður — og lét mér í té skriflega yfirlýsingu sína um það, hve vel — og ráðvandlega — ég hefði ávallt reynzt. Svo fór um sjóferð þá, en um áranrótin næstu (1910) komst ég í Landsbankann, og h-ef ég sagt frá því annarsstaðar. Það var vorið 1908 (fremur en 1907) að nrig minnir, að mikil samkeppni var unr harðfisk- kaup, einkum milli Brydesverzlunar og Thor Jensens fyrir Milljónafélagið. Var ég þá send- ur út af örkinni fyrir Brydesverzlun suður á Vatnsleysuströnd og til Keflavíkur, til þess að kaupa svo mikið af harðfiski, sem ég gæti feng- ið, og var Hans gamli Linnet í Hafnarfirði feng- inn mér til aðstoðar í þessu efni. Fórum við ríð- andi úr Hatnarfirði og riðum báðir lötu. Vegur var þá enginn yfir hraunin, og leiðin því leið og seinfær. Símasamtölin frá báðum aðiljum til þeirra, er kaupa áttu, gengu á víxl oft á dag; ávallt var verið að bjóða hærra og hærra, og held ég að það hafi endað með því, að við Linnet vorum látnir bjóða 155 krónur í skippundið, en Thor Jensen hætti, er komnar voru 150 krónur. Síðar frétti ég að Brydesv-erzlun hefði tapað um 150 þús- und krónum á þessari verzlun sinni! — Grun- aði mig árið eftir, að trúnaðarstarf þetta mundi ekki liafa aukið á tiltrú mína hjá „gamla mann- inum“ og hann minnzt þess, þegar hann skrifaði uppsagnarbréfið í ágúst 1909, en vitanlega buð- um við Linnet engurn eyri meira fyrir fiskinn en skipun frá skrifstofunni hljóðaði urn, enda var Herluf Bryde þá hér og réði verðinu sjálfur. Árið áður (1907) var ég sendur til Borgarness, til þess að kaupa ull. Varð að því hagnaður lvinn mesti. Verzlunarstjóri þar var þá Jón Þorsteins- son (Eyjalæknis Jónssonar), og fórum við sunnu- dag einn ríðandi vestur að Álftá á Mýrum til sil- ungsveiða. Á miðri leið eða vel það urðum við þess vör (kona ]óns og Einar Magnússon voru með í förinni), að Einar hafði gleymt öllum öngl- unum. Samt var haldið áfram og veitt á örygg- isnælur þær allar, er frúin, Guðrún Heilmann, kona Jóns Þorsteinssonar, hafði á sér. Það var í smásprænu einni, skammt fyrr vestan Skálholts- hamar, að við renndum í djúpan hyl og settumst utan með honum, til þess að handsama silunga þá er í nælunum héngu, því um leið og þeir komu upp fyrir yfirborð vatnsins, hoppuðu þeir upp í fang okkar og sumir í land; en sjaldan hef ég séð svo mikla mergð fiska í litlnm polli sem þarna voru, enda veiddum við 46 silunga þarna um daginn, aðeins á 3—4 klukkutímum. Öll þau vor og sumur, sem ég var við Brydes- verzlun, reri ég hér iit á milli eyja, vestur fyrir Gróttu, Suðurnes og upp að Kjalarnestöngum. Hef ég sagt frá þeim sjóferðum mínum, nokkr- um, á öðrum stöðum. Lengi vel var Friðrik Ól- afsson frá Bakkakoti, en síðar dyravörður við ís- landsbanka, formaður á báti þeim, er við íeng- um lánaðan í ferðir þessar, en oft tók ég að mér formennskuna eða þá Lúðvík G. Lárusson, Þórð- ur Finsen og einu sinni Gísli gamli, Pétursson á Lindargötunni. Ávallt var beitt kræklingi en ó- sjaldan ræksnum, og oftast fiskuðum við vel. Ró- ið var síðari hluta laugardags og sjaldan konrið heirn aftur fyrr en undir hádegi sunnudagsius eða nokkru eftir það, enda lá við að við lentum 58 FRJÁLS verzlun

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.