Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1950, Qupperneq 24

Frjáls verslun - 01.06.1950, Qupperneq 24
Hinrik AuSunsson verzl- unarstjóri í Reykjavík and- aðist 14. júní s.l. eftir nokk- urra vikna veikindi, aðeins 44 ára að aldri. Hann var fæddur og upp- alinn í Hafnarfirði, f. 17. sept. 1905, sonur hjónanna Auðuns Níelssonar og Guð- rúnar Hinriksdóttur, og var hann elztur inargra systkina. Það varð því hlut- skipti lians þegar á ungum aldri, að taka hendi til hverra þeirra verka, er til féllu, og ljá þannig foreldrum sínum lið í lífsbaráttunni. Gengdi hann ýmsum störfum á ungdómsárum sínum og fram á fullorðinsaldur, var m. a. hifreiðars.tjóri og sá um fólksfluninga milli Revkjavíkur og Hafnar- fjarðar. Fyrir u. þ. b. 15 árum flutti Hinrik til Reykjuvíkur og átti þar síðan heima. Gerðist hann þá verzlnnar- maður og vann nokkur ár hjá Jóhannesi Jóhannssyni kaupm. á Grundarstíg 2, en síðan gerðist hann verzl- unarstjóri, fyrst Verzlunarinnar Freyju og síðar í matvöruverzluninni Blöndu, Bergstaðastræti 15. og hafði gegnt verzlunarstjórn um 10—12 ára skeið, nú er hann lézt. Hinrik Auðunsson var maður vel virtur af þeim, sem honum kynntust, enda bauð hann af sér góðan þokka og var traustur til orðs og æðis. Verk sín vann hann af alúð og kostgæfni, og ekki var ræktarsemi hans síðri innan heimilis. Gestrisinn var hann í bezta máta, og félagslyndur var hann vel. Má það m. a. marka af því, að hann var einn af fundasæknustu mönnum í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Er hryggilegt til þess að vita, þegar manndómsmenn falla frá svo ungir. Hann var kvæntur Kornelíu Kristinsdóttur, og eign- uðust þau hjónin tvö hörn, sem enn eru í bernsku. Kristinn Jónsson kaup- ma'Sur í Húsavík, andaðist á heimili sínu 1. jú!í s.l., eftir stutta legu. Hann var fæddur 26. júní í Húsavík, sonur ]irest-hjónanna sr. Jóns Arasonar og Guðríðar Ól- afsdóttur. Á unglingsárum gekk Kristinn í Gagnfræða- skólann á Akureyri og lauk jiaðan prófi. Síðan tók liann brátt við bústjórn hjá föður sínum, og áður en hann varð hálfþrítugur, hafði hann einnig stofnað verzlun í Húsavík, en hana hefur liann starfrækt æ síðan, nú um meira en 30 ára skeið. og einnig bátaútgerð um tíma. Ekki komst Kristinn hjá trúnaðarstörfum fyrir sam- borgarana, enda var hann einkar vel tiI íorustu fall- inn. Sat hann l. d. lengi í sparisjóðsstjórn, rafveitu- nefnd, sóknarnefnd og hreppsnefnd, auk margs annars, sem of langt yrði að rekja. Kristinn var mikilhæfur maður og kaupmaður ágæt- ur. Fór verzlun hans sídafnandi, þrált fyrir harð- snúna samkeppni frá elzta kaupfélagi landsins. Var lipurð hans, fyrirhyggju og framsýni við brugðið. Einbeittur var hann, dugmikiU og úrræðagóður. IJin- ar alkunnu Ijóðlínur Gríms: „þéttur á velli og þé.ttur í lund, þrautgóður á raunastund", þannig færðar til eintölu, eru sem kveðnar um Kristin Jónsson. Hann var hinn höfðinglegasti í allri reynd og afar vörpu- legur að vallarsýn. Hann var glaður og reifur við gest og gangandi. en þó alvörumaður undir niðri. Hann las mikið og var því margfróður orðinn. Húsvíkingar og aðrir vinir Kristins mega harma fráfall hans, og þeir gera það líka áreiðanlega. Kona hans, Guðbjörg Óladóttir úr Kelduhverfi, lifir mann sinn. Þau hjónin eignuðust sex börn, sem nú eru öll komin til fullorðinsára. 100 FRJÁI.S VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.