Frjáls verslun - 01.06.1950, Síða 28
^ÚÁÍHUt
Jvaupmaðurinn: Er gott að auglýsa í blaði yðar ?
Ritstjórinn: Það megið þér reiða yður á. Þorleifur
kaupmaður auglýsti I því fyrir skömmu eftir létta-
dreng, og daginn eftir eignaðist konan hans tvo drengi.
«
Allir rnenn verSa að eiga sér hvíldurstundir. Ilið
þenkjandi höfuð og hin þjónandi hönd verða uð hafa
tíma til að hlaða lífsgeyminn nýrri orku. — GILPIN.
•
Skrifarinn: jNú er ég orðinn gamall og gráliærður
í yðar þjónustu, og nú hafið þér sagt mér upp. Fæ
ég ekki einhver ellilaun hjá yður, forstjóri góður?
Forstjórinn: Jú, Sveinn minn. Þér megið taka með
yður hárlitunarflöskuna mína. Þá sjást ekki lengur á
yður nein ellimerki.
•
Vinnuþjarkar eru venjulega heiðvirðir menn. Vinnu-
semin lyftir þcim ofar öllum freistingum. -— BOVEE.
Maður nokkur kom inn í búð og bað um að fá að
skoða veggfóður.
— Hér er mjög falleg tegund, sagði afgreiðslu-
maðurinn. Það er Ijóst og gerir herbergin björt og
viðkunnanleg.
— Konan mín segir að svona veggfóður sé afleitt.
Börnin skíta það undir eins út.
— Hér er annað nokkuð dökkleitt.
— Konan mín getur ekki liðið svona veggfóður.
Hún segir að það geri stofurnar svo dimmar.
— Hér er ein gerðin enn, sem hvorki er of ljós
eð’a dökk.
— En það er svo kuldalegt. Konan mín er svo
kulvís.
— Hér er ennþá eitt, mjög stílhreint og fallegt.
— Nefnið þér það ekki, maður! Það er ekkert, sem
fer eins í taugarnar á konunni minni, eins og þessi
stílföstu munstur.
— Hérna er J)á eitt, með hvítum og rauðum rós
um, óreglulegum.
— Konunni minni líkar þetta áreiðanlega ekki. Hún
segir að rósirnar upj)litist svo fljólt.
— Á ég að segja yður nokkuð, maður minn, sagði
afgreiðslumðurinn, sem nú var að missa þolinmæð-
ina. Þér biðjið um veggfóður, en í staðinn ætla ég
að ráðleggja yður að biðja um skilnað.
•
Stundum er mikill ávinningur að hafnu peningum.
TERENCE.
„Frjáls Verzlun“
Otgefandi: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Formaður: Guðjón Einarsson.
Ritnefnd: Einar Ásmundsson, form., Birgir
Kjaran, Gísli Ólafsson, Njáll Símonarson og
Gunnar Magnússon.
Skrifstofa: Vonarstræti 1. 1. hæð, Reykjavík.
Sími 5293.
BORGARPRENT
Fyrirtækið hafði fyrir sendil gamlan karl, sem
þótti æði gott í staujnnu. Einu sinni kom skrifstofu-
stjórinn að máli við hann:
- Ef þér væruð ekki svona drvkkleldur, Jónatan
minn, mundi ég trúlegast gera þig að bókara hjá okkur.
— Uss, þegar ég er fullur. finnst mér ég vera for-
stjóri. svaraði Jónatan.
•
Efastu um jafnrétti mannanna? Heldurðu að sólur-
geislinn hiti mér fyrr en skóhurstaranum, sem krýp-
ur við fœtur mér? — THACKERAY.
•
Hinn æruverðugi skril'stofustjóri var nýlátinn og
greftraður. Einn morguninn kom bókarinn inn til for-
stjórans og sagði:
— Ja, nú er Steingrimur dáinn, og ég vildi gjarna
koma í staðinn fyrir hann.
Forstjórinn leit óblíðum augum á unga manninn
og mælti:
— Þér megið það mín vegna, en það er mál, sem
ekki heyrir undir mig, heldur kirkjugarðsvörðinn.
•
Þegar við hverfum héðan úr heimi og erum lögð í
moldu, fetar prinsinn sama einstigið sem verkunmður-
'inn. — CERVANTES.
•
Ungur maður kom inn í blómabúð og vildi kauj>a
rauðar rósir. Allt í einu féll hann í þungar hugsanir.
— Þér ætlið auðvitað að segja Jrað með rósum, sagði
kaujtmaðurinn brosandi. Þá duga ekki minna en þrjá-
tíu stykki.
— Nei, nei, sagði ungi maðurinn. Það er nóg að
þær séu sex. Ég vil ekki segja of mikið.
Hafirðu eitt sinn unnið til heiðurs, bíður þín meiri
sæmd. — LA ROCHEFOUCAULD.
104
FRJÁLS VERZLUN