Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 8

Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 8
Fimmta ritgerðin er uin Sjöundármorðin. Þau eru alkunnug enn í dag, enda þótt hálf önnur öld sé liðin. Á Sjöundá bjuggu rétt eftir 1800 tvenn hjón, Bjarni Bjarnason og Guðrún Egilsdóttir, og Jón Þorgrímsson og Steinunn Sveinsdótlir. Bjarni og Steinunn fella hugi saman og ráða Jón og Guðrúnu af dögum. Þetta mál er að því leyti ólíkt hinum eldri málum, að sekt hinna sökuðu sannast fullkomlega um það, er máli skiptir, og málið er rekið með fullum hraða, og reyndar bet- ur en menn áttu þá að venjast, eftir að sýslumaður fékk vitneskju uin morðin. Hér eru allgóðar heimildir, og hefur Iiöfundur að sjálfsögðu notað þær rækilega. Höfundur átelur réltilega ýmiskonar vanrækslu pró- fasts og sóknarpresls Sjöundárfólks og jafnvel við- leitni prófasts til að svæfa málið, enda fór landsvfir- dómur hörðum orðum um þetta. Er greinargerð höf- undar allrækileg og ljós, og virðist þar naumast mega að finna, sem máli skiptir. Það varðar litlu, þó að höf. virðist að ófyrirsynju víta prófast fyrir jiað, að hann snýr sér ekki til aðsloðarmanns sýslumanns, heldur til hans sjálfs, er prófastur skýrir frá orðrómi um morðin og aðgerðum sínum um skoðun á líki Guðrún- ar Egilsdóttur. Ég held líka, að höfundur sé of harður við síra Eyjólf Kolbeinsson, er hann sakar hann um rof á skriftamálum, þegar af þeirri ástæðu, að prestur sýnist ekki liafa talað við Bjarna og fengið játningu hans með þeim liælti, að Bjarni væri að trúa Iionum fyrir sekt sinni í þeirri veru, að hann væri að skrifla fyrir honum í þess orðs merkingu. Armars má sennilega um þelta deila. Höf. telur líklegt, að flestir hinna 4 meðdómenda sýslumanns, sem kváðu upp dóminn yfir Bjarna og Steinunni, hafi verið lögrétlumenn. Þdtta virðist mjög ólíklegt, með því að lögrétumenn voru eftir 1764 aðeins nefndir 20 talsins, og einungis nefnd- ir úr þremur sý.flum, næstum alþingisstaðnum. Sýnist óh'klegt, ef ekki útilokað, að nokkur þeirra manna, sem verið höfðu fyrrum lögréttumenn í Þorskafjarð- arþingi, hafi getað verið meðdómendur eftir 1800. En þetta skiptir auðvitað engu máli. Það er misskilning- ur, að sýslumaður ,sé vítalaus af vanrækslu um skoð- un á líki Jóns Þorgrímssonar, þó að sækjandi ætti líka að annast um það. Sýslumanni var skylt að rannsaka hvert atriði sakarinnar í embættisnafni, þó að sækj- anda væri það líka skylt að láta slíka rannsókn fara fram. Líkrannsókn gat einnig leitt til sýknu eða orð- ið sökunaut til linkenndar, og var og er dómara ]>á skylt að leiða allt slíkt í ljós eftir föngum. Höfundur mælir heldur kuldalega til Magnúsar Stephensens yfirdómsforseta, og sakar hann jafnvel um hlutdrægni. Satt er það, að hann vítti slundum nokkuð harðlega glöp óæðri dómenda, en ósjaldan var þess full þörf. Einnig var stundum, þó aðallega í dómum á fyrstu árum landsyfirdómsin,?, hart veitzt með orðum að illræmdum glæpamönnum, en slíkt var arf- ur fyrri tíða, og lagðist smám saman niður í dómara- tíð Magnúsar. Höfundur segir Magnús hafa verið ó- sparan á skætingi ,,niður fyrir sig.“ Þetta virðist ekki maklegt, því að óhætt er að segja, að hann hafi lengst- um í yfirdóminum verið langmannúðlegastur í garð smælingja, sem fyrir sökum voru hafðir, og þó að hann væri bæði lærðastur dómara þar í sinni tíð og hinn mikilhæfasti maður, að hinum ólöstuðu, þá réð hann auðvitað ekki nærri alltaf dómsniðurstöðum. Ásakan- ir um hlutdrægni (þ. e. að halla réttu máli viljandi) hugg ég, að erfitt verði að sanna á Magnús. Hins vegar hefur honum auðvilað getað missýnzt, eins og öðrum dauðleguin mönnum. Magnús er oft sakaður um lélegt rnálfar. En það er þó sannast að segja, að hann skrif- aði betra mál íslenzkt en meðdómendur hans, Isleifur Einarsson og Bjarni Thorarensen, svo sem það birtist í dómsatkvæðum þeirra. Hér er það, eins og oftar, að höf. leiðréttir sagnir og munnmæli, svo sem þá sögn, að Brun fangavörður liafi jiungað Steinunni, meðan hún var í tukthúsinu við Arnarhvol. Höfundur upplýsir það, að Brun var þá dáinn fyrir nokkru. Sjötta rilgerSin nefnist Hamra-Setla. Kona sú hét Sesselja Loftsdóttir og bjó með manni sínum, Stein- grími Böðvarssyni, á Egilsstöðum í Múlajiingi fvrir og um 1540. Var hún, ásamt vinnumanni þeirra, Bjarna Skeggjasyni, sökuð um það, að hún hefði ráðið bónda sinn af dögum. Um vígsökina eina var þó ekki að véla, því að Bjarni hafði einnig, og víst áður, fallið með dóttur hennar. Líklega hefur hún svarið fyrir vígið, en aflausnar kirkjuvaldsins þurfti hún fyrir sifjaspellin, og má líklega skilja svo ummælin í bréfi, þar sem tal- að er um aflausnarbeiðni hennar til Gissurar biskups Einarssonar. Annars er allt óljóst um málalok, en þjóðsagnir hafa að nokkru fyllt í skörðin. Heimildir eru allfátæklegar um mál þessi, einungis nokkur bréf í Fornbréfasafni, sem höf. hefur auðvitað notað. Björn Jónsson á Eyvindará kemur nokkuð við sögu. Við má jiví bæta, að hann hefur verið stórbóndi og stórætt- aður, því að hann fékk Þórunnar dóttur Einars Þór- ólfssonar á Hofstöðum og varð faðir mikillar ættar. Sjöunda og síSasta ritgerSin heitir „DauSi Natans Ketilssonar.“ Það er yngsta glæpamálið, sem þarna er tekið til meðferðar, og niðjar Natans í þriðja lið eru nú menn á góðu reki. Höfundur ritar nokkuð langt mál um Natan sjálfan og skapgerð hans, eftir því sem ráða þykir mega af gögnum þeim, sem enn eru til um at- hafnir hans og framkomu. Skal ósagt látið um niður- FRJáLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.