Frjáls verslun - 01.02.1952, Blaðsíða 24
Þflssi (tlugsi var sæmdur verðlaun í A-flokki í brezku RÍUKga-
sýningarsamkeppninni 1951. Er þctta áhrifamikil sölusýning
á ,,Christy’s“ höttum.
fyrirtæki, sem nær í eitthvað af þeim mörgu bikurum,
sem keppt er um árlega og veittir eru fyrir beztu sýn-
ingarglugga. Hverjum bikar fylgir að auki álitleg
j>eningau])phæð til handa þeim, sem annazt hafa út-
stillingu í verðlaunagluggana, og jafnvel ferðalag til
annarra landa, þar sem þeir geta leitað sér aukinnar
menntunar í starfinu og uppörvun fvrir næstu sam-
keppni.
Ég mun ekki ræða þetta meira að sinni, en máli mínu
til skýringar fylgja hér með þrjár myndir. Eru það
myndir af verzlunargluggum, sem hafa hlotið verð-
laun í mismunandi vöruflokkum, bæði frá samkeppni,
sem náð hefur til allra verzlana landsins, og svo frá
samkeppni, sem einkafyrirtæki hafa stofnað til.
Sveinbjörn Árnason.
TILI.AGA FBA „FBJALSKI VEBZLCN“
Verðlaun:
KR. 1000,00
veitir F. í. I. fyrir bezta
verzlunargluggann, er
sýnir tilbúinn fatnað.
F. í. I. samkeppnin 8.—20. maí?
Skipan útflutningsmálanna.
Framhald af bls. 4.
í sambandi við utanríkisverzlunina. En viðskijitadeild
utanríkisráðuneytisins hefur jafnframt haft með hönd-
um nokkra afurðasölu. Á þetta einkum við sölur til
þeirra landa, þar sem ekki getur verið nema um einn
kaupanda að hverri vörutegund að ræða, eins og t. d.
í Póllandi, en hinsvegar margir seljendur hér. Auk
þess kemur viðskiptadeildin oftast fram sem seljand-
inn, þegar vörur eru seldar héðan til erlendra ríkis-
stjórna, t. d. þegar síldarlýsi er selt matvælaráðuneyt-
inu í Bretlandi. Á s. 1. ári voru fluttar út að meira eða
minna leyti á vegum viðskiptadeildarinnar vörur að
verðmæti samtals um kr. 105 millj. Nemur sú upphæð
nál. 14% af heildarútflutningnum. Til samanburðar
má geta þess, að árið 1948 nam verðmæti afurða, sem
fluttar voru út að nokkru eða öllu leyti á vegum ríkis-
ins, um 45% af heildarútflutningnum. Hefur útflutn-
ingur á vegum hins opinbera farið minnkandi síðustu
árin.
Frá borði ritstjórnarinnar.
Framhald af bls. 22.
læsilegasta, og aðstandendum þess til sóma. Af inni-
haldi blaðsins má m.a. nefna grein eftir Ólaf Björnsson,
jirófessor, er hann nefnir dreifingakostnaður og verzl-
unarálagning, svo og grein um samvinnufélögin og
skattamál þeirra. Einnig er þar greinakorn, sem vert
er að gefa frekari gaum. Fjallar það um nauðsyn þess,
að verzlunarlöggjöfin verði tekin til gagngerðar end-
urskoðunar og samræmingar þeim kröfum, sem gerð-
ar eru í dag í þessum efnum. Eru þetta vissulega orð
í tíma töluð.
Verzlunarlöggjöfin er um margt ófullkomin og langt
á eftir tímanum. Er nauðsynlegt að ákvæði hennar
verði endurskoðuð gaumgæfilega, og þau hert í mörg-
um tilfellum til muna.
Viðskiptamálaráðherra þarf að beita sér fyrir end-
urskoðun verzlunarlöggjafarinnar þegar á næsta al-
þingi og leita áður álits allra þeirra, sem þar eiga
hlut að máli.
24
FRJÁLS VFRZLUN