Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.02.1952, Blaðsíða 21
Hin konunglega lest kom til King’s Cross stöðvar- innar í London um eftirmiðdaginn. Fjölskyldan fylgdi fallbyssuvagninum, sem sveipaður var fána, yfir Tra- falger Square til WestminSter. Þessi látlausa fjöl- skyldu-líkfylgd eftir götum Londonar var e.t.v. áhrifa- meiri en ríkisútförin daginn, sem hann var jarðsettur. Mér er minnisstætt smáatvik, sem skeði, er þessu fór fram, en fáir sáu. Kóróna heimsveldisins, sem öll er sett dýrmætum steinum, hafði verið tekin úr glerskápn- um í Tower í London og lögð ofan á fánann, sem var yfir loki kistunnar. Þrátl fyrir það, að líkvagninn var á hjólum með gúmmíbörðum, mun hristingur vagns- ins hafa orsakað það, að Malta-krossinn á toppi kór- ónunnar, en í hann er greyptur stór safír, átta meðal- stórir demantar og 192 smærri demanlar, féll af kór- ónunni, og ég sá hann detta á götuna. Mér kom auðvitað strax í liug að beygja mig eftir honum og bjarga djásninu frá eyðileggingu. En þá varð mér Ijóst, að slík't var ekki samhoðið virðingu minni, svo að ég skrefaði keikur áfram. Til allrar hamingju hafði liðsforingi, sem gekk með fallbyssu- vagninum, einnig orðið var við slysið. Eldsnöggt beygði hann sig niður, tók krossinn upp og stakk hon- um í vasann. Er þetta eitt snarasta viðbragð, sem ég hef séð. Þetta var einkennilegt atvik, og enda þótt ég sé ekki hjálrúarfullur, kemur mér til hugar, hvort þetta liafi ekki verið illur fyrirboði. Undir hinu stóra hvolfþaki í Weslminster hafði verið búið virðulega um kistu föður míns. í þá fjóra daga, sem kistan iStóð þarna, gengu um milljón manns fram hjá henni; óslitinn straumur fólks leið þar fram hjá nótt og dag. Sex þjóðhöfðingjar komu til þess að vera viðstaddir útförina, Kristján konungur Dana, Hákon Noregs- konungur, Caról konungur af Rúmeníu, Boris zar af Búlgaríu, Leópold III. Belgíu-konungur og Lehrun Frakklandsforseti. Auk þess kom sægur af erlendum prinsum, ambassadorum, stjórnmálamönnum, hers- höfðingjum og öðru fyrirfólki, jem voru fulltrúar þjóða sinna við útförina. Samkvæmt hirðvenju bar jnér kvöldið fyrir útförina að halda ríkisveizlu og op- inbera móttöku í Buckingham Palace fyrir hina tignu gesti. Þetta var mjög glæsilegt samkvæmi, en þó er ekki hægt að segja, að örlaganornirnar hafi verið hlið- hollar hinum tignu mönnum, sem þarna voru. í frönsku sendinefndinni var Pétain marskálkur, þjóðhetjan frá Verdun. Frá Sovjet-Rússlandi voru Tukhachevskv, að- stoðar-landvarnarmálaráðherra, sem tekinn var af lífi ári seinna, og M. Litvinov utanríkismálaráðherra, sem skömmu seinna féll í ónáð. Frá Þýzkalandi voru Baron von Neurath utanríkisráðherra og síðar „verndari“ ERLENDAR KAUPSTEFNUR Marz—maí 1952. Frankfurt, Þýzkalandi 9.—14. marz. Vín, Austurríki 9.—1G. marz. Verona, Ítalíu 9.—17. marz. Utrecht, Hollandi 25. marz—3. apríl. Milano, ítalíu 12.—29. april. Lyon, Frakklandi 19.—28. apríl. Brussel, Belgíu 26. apríl—11. maí. London-Birmingham 5.—1G. maí. Brezka iðnsýningin. Valencia, Spóni 10.—25. maí. París, Frakklandi 17. maí—2. júní. Tékkóslóvakíu og von Rundstedt, síðar vfirhershöfð- ingi Þióðverja á VesLurvígstöðvunum. Italíukonungur sendi Umberlo son sinn. Austurríkismenn sendu Stahr- enberg fufl?ta, sem tveimur árum seinna varð landflótta frá ættlandi sínu. Frá Finnlandi kom von Mannerheim marskálkur. Mér fannst í hjarta mínu, að slík veizla væri í senn óeðlileg og ógeðfelld, þar sem ekki var enn búið að jarðsetja föður minn, en það varð ekki komizt hjá að gegna skyldu sinni. Þegar síðustu gest- irnir voru farnir. brugðum við bræðurnir okkur frá til hess að framkvæma fyrirætlun, sem við höfðum tekið ráð okkar saman um. Allan bann tíma, sem kista föður míns hafði staðið uppi í Westminster, höfðu hermenn úr lífvarðarsveit- inni staðið heiðursvörð við hana. Mér hafði dottið í hug, að við bræðurnir gætum á einfaldan og látlaus- an liátt sýnt föður okkar hinztu virðingu með því að gera slfkt hið sama. Við höfðum haft samráð um þetta við foringja lífvarðarsveitarinnar. Við Bertie, Harry. George og ég skiptum nú í snatri um föt og fórum í viðhafnareinkennisbúninga og komum til Westminster skömmu fyrir miðnætti. Án þess að fólk yrði vart við, tókum við okkur stöðu á meðal hermannanna við kist- una. Enda þótt svo væri orðið framorðið, var stöðugur straumur af fólki fram hjá kistunni, en ég efast rnn, að margir hafi tekið eftir fjórum sonum konungsins, sem þar stóðu vörð, hreyfingarlausir og studdust við sverð sín. Við stóðum þarna í tuttugu mínútur. Það ríkti dauðaþögn, og kertaljósin vörpuðu bjarma sín- um á fólkið. Mér fannst ég á þessu augnabliki standa nær föður mínum og öllu, sem hann hafði unnað, en áður. Yfir höfðum okkar hljómaði klukkusláttui Big Ben.------ FRJÁLSVERZLUN -.31

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.