Frjáls verslun - 01.06.1952, Blaðsíða 6
Hvert skal halda !
Sumarleyfin eru nú að komast í algleyming. Þús-
undum saman hópast fólk í ferðalög um allan heim,
fólk úr öllum stéttum, og á öllum aldri, sem stefnir
venjulega að eina og sama marki: að losa sig úr viðj-
um hversdagsleikans. Menn eru yfirleitt búnir þeim
eiginleikum að hafa ánægju af því að ferðast; kynnast
nýju umhverfi og forvitnast um hagi þeirra er fjær
búa. Við íslendingar ferðumst mikið; sennilega eig-
um við heimsmet í því eins og svo mörgu öðru —
miðað við íbúafjölda. Gamla Frón fullnægir ekki leng-
ur ferðaþrá okkar, því að eftir að við komumst inn á
alþjóðabraut þykir jafn sjálfsagt að skreppa til Hafn-
ar eða Parísar nú og það þótti fyrir nokkrum árum að
heimsækja Akureyri. Við höfum eignast glæsilega far-
kosti, sem á skömmum tíma geta flutt okkur til fjar-
lægra landa, þannig að okkur er nú kleift að eyða
sumarleyfinu meðal annarra þjóða, ef efni og ástæð-
ur leyfa.
Straumurinn til Evrópu.
Allar líkur benda lil þess, að fleiri ferðamenn leggi
land undir fót á þessu sumri en nokkru sinni fyrr. Sér-
slaklega á þetta þó við um Bandaríkjamenn, en búist
er við að tala þeirra, er heimsækja Evrópu á þessu ári,
verði allt að 400,000. Upphæðin, sem þessir ferðamenn
flytja til gamla heimsins í dollurum, er áætluð $450
milljónir. Aldrei fyrr hafa ]>antanir á fari með skipum
og flugvélum austur yfir Atlantshaf verið svo margar
sem nú. Veldur þessu einkum þrennt. I fyrsta lagi hefur
styrjaldaróttinn, sem gagntók fólk svo mjög s.l. ár. horf-
ið að mestu leyti. I öðru lagi hafa fargjöld með flug-
vélum lækkað til mikilla muna, þannig að nú kostar
hringferðin New York — London $486, ef farið er á
svonefndum „ferðamannaklassa.“ Hins vegar er venju-
legt fargjald á þessari leið $711, svo munurinn er ekki
svo lítill. Getur nú millistéttafólk leyft sér að ferðast
til Evrópu í sumarleyfi sínu, sem áður var einungis
58
FRJÁLS VERZLUN