Frjáls verslun - 01.06.1952, Qupperneq 11
Úr sögu Ijósmyndatækninnar :
Þróun
GEVAERT
Ijósmyndavöruverksmiðjanna
Árið 1894 hóf Liéven Gevaert, sem þá var rúmlega
tvítugur að aldri, framleiðslu og stórsölu á ljósmvnda-
páppír við rue Anselmo í Antwerpen. Áður en hann
hóf framleiðslu sína, hafði hann fengið viðurkenningu
fjölda ljósmyndara fyrir ágæti þess ljósmyndapappírs,
sem hann vann við að framleiða.
Framleiðslan var í byrjun eingöngu unnin sem
handverk, og fáar hendur unnu þar erfitt verk. En
þróunin var ör, og hann varð brátt að útvega sér betri
húsakynni fyrir hina hraðvaxandi ljósmyndapappírs-
framleiðslu.
Árið 1900 hóf hann að byggja á því landsvæði. þar
sem Geraert-verksmiðjurnar breiða nú úr sér, en það er
við Mortsel, rétt utan við Antwer|)en. Það er í raun og
veru mjög sögulegt að virða fyrir sér hinar miklu verk-
smiðjubyggingar, sem hafa aukizt næsta ólrúlega á
síðustu 50 árum. Stóriðja, sem í dag hefur 5.500 manns
í vinnu, hafði 5 starfsmenn árið 1904 Verksmiðjan
nær nú yfir 167.000 fermetra landsvæði, og er hún út-
húin fullkomnustu tækjum til framleiðslu á filmum,
plötúm og pappír. Hún er að mestu leyti sjálfri sér nóg,
þ.e.a.s., hún hefur sín eigin „véla“-verkstæði, efnaverk-
smiðjur, eigin ]>rentsmiðjur og pa|)|)aframleiðslu, tré-
smiðju o.fl., o.fl. I borginni Heultje er ný verksmiðja
lilheyrandi Gevaert, sem framleiðir celluloid og alls-
konar efnivörur fyrir Ijósmyndara. Þar að auki á
Gevaert verksmiðjur í mörgum löndum, og umboðs-
menn eru í flestum löndum heims.
Framleiðsla fyrsta flokks ljósmyndavarnings krefst
fullkominnar nákvæmni og fjölda margbrotinna
framleiðsluaðferða.
Það er fróðlegt að skoða sig um í hinum ýmsu og
mjög ólíku salarkynnum Gevoerí-verksmiðjanna, þar
sem þúsundir handa vinna í daufri ljósglætu frá rauð-
Ivióven (lovaert (18fi8—1985K
um og grænum lömpum myrkraherbergjanna. Loftið
er mjög stöðugt, en sérhver vinnusalur hefur sitt
ákveðna „loftslag,“ hita og raka, og er loftið hreinsað
með þar til gerðum „filterum“ mjög nákvæmlega. Rör
og aðrar leiðslur liggja eins og net umhverfis allt
verksmiðjusvæðið og framleiða hita og kulda eftir því,
sem við á í hverri byggingu.
Allan sólarhringinn ganga aflgjafar verksmiðjunn-
ar, vélárnar, þúsundir verksmiðjufólks vinna, hver við
FRJÁLS VERZLUN
63